Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1988, Side 74

Frjáls verslun - 01.08.1988, Side 74
TÆKNI fjárhæðin fer yfir ákveðin og viður- kennd mörk leitar tölvan sjálf eftir heimild fyrir viðskiptunum. Tölvan kemst einnig strax að því hvort við- komandi kort er vákort, það er að segja hvort um stolið, glatað eða upp- sagt kort sé að ræða. Svona beinlínu- tengsl auka mjög á öryggi í viðskipt- um og gerir þau fljótvirkari og þjálli. Ef allt er í lagi með kortið og viðskipt- in mega fara fram, fær viðskiptavin- urinn strimil úr þessari litlu tölvu eða búðarskanna og ritar nafnið sitt á hann. Greiðlsukortanótur verða þar með úr sögunni." LÆKKAR KOSTNAÐ — Er ekki dýrt fyrir verslanir að setja upp svona tæki? „Hið nýja tölvukerfi mun lækka verulega allan kostnað við kortavið- skiptin. Hingað til hefur sá búnaður sem til þarf verið mjög dýr en mark- viss þróunarvinna Visa International hefur skilað árangri þannig að nú kostar hann aðeins fjórðung á við það sem hann kostaði áður. Hvert tæki hefur kostað um 100 þúsund íslenskar krónur en mun á næstunni kosta í kringum 25 þúsund krónur. Ennþá er óvíst hvort verslanirnar kaupi sjálfar þennan búnað eða leigi hann af okk- ur.“ — Hvenær er rágert að sjálfvirka Visa-tölvukerfið komist í gagnið? „Við stefnum að því að búnaðurinn verði kominn í gagnið eftir um það bil 6 mánuði og að þá verði búið að bein- tengja allmargar verslanir við móður- tölvu Visa.“ Einar sagði að virkni þessa nýja kerfis væri svipuð og virkni hrað- bankaþjónustu, þar sem um bein tengsl við móðurtölvu væri að ræða í báðum tilvikum og greiðslur kæmu samstundis inn á skrá móðurtölvu. „Þegar greiðslurnar koma inn um leið og þær eru færðar verður öryggið í viðskiptunum mun meira. Hættan á mistökum verður nánast engin.“ — En hvað gerist ef kerfið bilar? „Þetta er fyrirferðlítill og öruggur búnaður og ekki mikil hætta á að hann bili. En auðvitað verður að fylgjast VEISLXJ- ELDHÓS SKUTAHRAUM 17ð 220 HAFNARFIRÐI SÍMI 53706 Gæöa-mat sf. útbýr mat fyrir hvers konar tækifæri, allt frá gómsætum snittum upp í Ijúffengan og glæsilegan veislumat. Hitabakkar fyrir fyrirtæki, sendingarþjónusta. Smurt brauð og snittur, brauötertur, heitur veislumatur og köld borö. Tökum einnig aö okkur aö sjá um veislur, bæði stórar og smáar. Öll framleiösla í háum gæðaflokki í umsjá færustu matreiðslumanna. Fljót og góð þjónusta á afar hagstæöu veröi. Kristinn Jóhannesson heimasími — 53618 mjög vel með þessum búnaði og fara yfir hann reglulega. Ef allt þrýtur er alltaf hægt að grípa til gömlu aðferð- arinnar." DEBITKORT? — Verður gjalddaga korthafa Visa breytt þegar allar greiðslur eru farnar að berast beint og samstundis inn á móðurtölvu? Er hugsanlegt að við- skiptavinir verði rukkaðir oftar en einu sinni í mánuði? „Nei, greiðslufyrirkomulagi Visa verður ekki breytt. Nú þegar berast okkur allar erlendar peningaúttektir beint og í gegnum gervihnattasam- band en þrátt fyrir það eru þær aðeins borgaðar í upphafi hvers mánaðar. Hins vegar er vel hugsanlegt að þessi nýja tækni muni ná til fleiri við- skiptahátta en greiðslukorta. Tækn- ina og tækin er til dæmis hægt að nýta við tékkafærslur á þann hátt að ávís- anir og tékkhefti verða óþörf. Allt sem þarf er bankakort sem búðar- skanninn mun lesa á svipan hátt og kortin. Og framgangsmátinn yrði mjög líkur að því undanskildu að við- skiptavinurinn greiðir strax fyrir vör- una ef hann notar bankakortið. Það er til skoðunar að bankakerfið hagnýti sér þetta kerfi. Hugmyndir eru jafn- vel uppi um að í stað bankakorta fái fólk Visa-debitkort sem þýðir, and- stætt Visa-kreditkort, að varan er greidd beint. Ég vil taka fram að ekk- ert hefur verið ákveðið í þessu efni en möguleikamir eru margir og sam- vinna við bankana hugsanleg. í dag eru gefnar út um 2.2 milljónir ávísana í hverjum mánuði sem er mjög kostnaðarsamt kerfi. Notkun nýju tækninnar gæti dregið úr þess- um kostnaði auk þess sem draga mundi úr ávísanamisferli. Ef Visa-debitkort yrðu tekinn upp á þann hátt sem fyrr greinir væri hægt að greiða beint og án seðla út um allan heim en ekki einungis á íslandi. Þann- ig væri hægt að tryggja sig fyrir óhag- stæðum gengisbreytingum sem óneitanlega geta haft sitt að segja ef Visa-kreditkort eru notuð og upp- hæðin þannig borguð eftir á.“ KORTIN HAGKVÆM — Nú hafa stjómvöld rætt um að setja einhvers konar hömlur á korta- 74

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.