Frjáls verslun - 01.08.1988, Blaðsíða 80
TOLVUR
VELGENGNIAPPLE Á ÍSLANDI
— MEIRI MARKAÐSHLUTDEILD HÉR EN Á HINUM NORÐURLÖNDUM
Ámi G. Jónsson yfirmaður tölvudeildar Radiobúðarinnar.
Vegna samdráttar í atvinnu-
lífinu hefur nokkuð hægt á sölu
einkatölva. Þetta hefur valdið
nokkru umróti hjá fyrirtækjum
sem sérhæfa sig í sölu á einka-
tölvum og vörum tengdum þeim.
En þrátt fyrir samdrátt og
krepputal hefur sala á tölvum
frá Apple aukist verulega að
undanfömu.
í viðtali við Fijálsa verslun sagði Ámi
G. Jónsson, yftrmaður tölvudeildar Radio-
búðarinnar, að líklega væri fjórða hver
einkatölva sem seldist í landinu frá Apple.
Sagði Ámi að eftirspum eftir Apple-tölv-
um og þá sérstaklega Macintosh-tölvunni
ykist ár frá ári enda hafa þessar tölvur
nokkra sérstöðu gagnvart öðrum einka-
tölvum á markaðnum. Mikil áhersla er
lögð á aðlaðandi vinnuumhverfi fyrir not-
andann auk þess sem mjög auðvelt er fyrir
notandann að læra að nota tölvuna.
Tölvudeild Radiobúðarinnar var stofn-
uð árið 1979 um svipað leyti og Apple hóf
útflutning á tölvum. Umsvif tölvudeildar-
innar vom ekki mikil fyrstu árin. En 1983
verða þáttaskil með tilkomu Apple Ile.
Þessi tölva varð strax vinsæl hér á landi
bæði sem tölva til almennrar vinnslu sem
og bókhaldsvinnu. Vélin hafði yfir að ráða
mjög góðri grafík á mælikvarða þess tíma
auk viðunandi vinnsluhraða. Önnur vél frá
Apple kom á markaðinn 1983. Hún hét
Apple-Lisa og var mjög fullkomin á sínum
tíma. Hún var fyrst véla með myndræna
framsetningu á kerfishugbúnaðinn sem
snéri að notandanum og henni var stjómað
með mús. Þessi vél þótti nokkuð dýr og
seldist ekki sem skyldi. Segja má að þessi
vél hafi verið undanfari Macintosh-tölv-
unnar sem sett var á markaðinn 1984.
Macintosh-tölvan seldist betur. Hún kost-
aði ekki eins mikið og Lisa en hún hafði
sömu myndrænu framsetningu og sama
notendavingjamleika og Lisa. Macintosh
var sett á markaðinn í Ameríku á mjög
dramtískan hátt og er dæmi um markaðs-
setningu sem tókst frábærlega, enda var-
an góð. Á fyrstu 79 dögunum seldust
100,000 tölvur í Bandaríkjunum.
Helsti gallinn á fyrstu Macintosh-tölv-
unni var sá að innra minni tölvunnar var
ekki nægilega stórt. Ur því var bætt árið
eftir og síðan hefur vélin verið í sífelldri
þróun.
Apple hefur ætíð lagt mikla áherslu á
samvinnu við hugbúnaðarframleiðendur.
Stærsti framleiðandi á hugbúnaði fyrir
Apple tölvur er Microsoft. Microsoft er
eitt stærsta hugbúnaðarfyrirtæki í heimi
og samdi m.a. DOS-stýrikerfið fyrir IBM
á sínum tíma. í dag framleiða flestöll
stærri hugbúnaðarfyrirtæki heimsins hug-
búnað fyrir Macintosh og sífellt bætast ný
fyrirtæki í hópinn. Sem dæmi um slíkt er
ameríska hugbúnaðarfyrirtækið INFOR-
MIX sem er eitt stærsta fyrirtæki sinnar
tegundar í hugbúnaði fyrir tölvur sem
keyra UNIX stýrikerfið. INFORMIX er í
þann veginn að setja á markaðinn mjög
öflugan töflureikni, fyrir Macintosh tölv-
ur, sem nefnist WINGZ.
En það er ekki aðeins á fslandi sem
velgengni Apple er mikil. í Wall Street
Joumal þann 20.10.1988 er þess getið að
salan hjá Apple hafi aukist um 53% frá því
árið áður en fjárhagsár Apple endar 30
september ár hvert. Hagnaður jókst enn-
fremur á milli ára um 84% og er 400 mill-
jónir USD fyrir síðasta fjárhagsár.
Eitt af meginverkefnum Apple á þessu
ári hefur verið að gera samskipti milli
Macintosh tölva og annarra tölva mögu-
leg, og er svo komið að nú er hægt að
tengja Apple tölvumar við alla viður-
kennda staðla. Þær em til dæmis með
möguleika á tengingu við SNA net frá IBM
TEXTI: ÞORSTEINN G. GUNNARSSON MYNDIR: GUNNAR GUNNARSSON
80