Frjáls verslun - 01.01.1989, Síða 5
RITSTJORNARGREIN
FRJALS VERSLUN 50 ÁRA
I janúarmánuði árið 1939 hóf tímaritið Frjáls
verslun göngu sína fyrir forgöngu manna sem
sinntu útgáfunni sem áhugastarfi.
50 ára afmælisins er minnst í þessu blaði með
fróðlegri upprifjun þar sem rakin er útgáfa og ferill
Frjálsrar verslunar. Birt eru viðtöl við fjóra fyrr-
verandi ritstjóra blaðsins og getið er um helstu
fyrirtæki sem voru starfandi í Reykjavík árið 1939
þegar útgáfa Frjálsrar verslunar hófst.
Blaðið á sér nú að baki hálfrar aldar feril sem út
af fyrir sig er ákveðið afrek. A síðasta hausti voru
gerðar þær breytingar á útgáfunni að tvö önnur
tímarit, Iðnaðarblaðið og Viðskipta & tölvublaðið,
sameinuðust Frjálsri verslun. Við það hefur út-
breiðslan aukist og þar með forsendur til að vanda
efni og ytri umgjörð blaðsins. Eftir sameininguna
er Frjáls verslun öflugri fjölmiðill en nokkru sinni
fyrr.
Ætlun okkar sem að útgáfu blaðsins stöndum er
að efla blaðið enn frekar með því að nýta þann byr
sem við finnum með Frjálsri verslun. Haldið verð-
ur áfram á þeirri braut sem þegar er mörkuð og
lögð á það megináhersla að Frjáls verslun rísi und-
ir nafni sem vandaður og öflugur fjölmiðill.
Afmælisins verður minnst frekar síðar á þessu
ári.
SKATTAARIÐ MIKLA
Einn af þingmönnum stjórnarandstöðunnar lét
þau orð falla á Alþingi í byrjun janúar að árið 1989
yrði „skattaárið mikla.“
Það þarf varla að koma á óvart að svona sé tekið
til orða þegar fyrir liggur að nýjar skattaálögur
vegna yfirstandandi árs nema samtals 7,2 millj-
örðum króna.
Hver ríkisstjórnin á fætur annarri gefst upp við
það verkefni að skera niður ríkisútgjöld og draga
úr þennslu hins opinbera. Eyðslustefnan heldur
velli, tekjuöflunin verður afgangsstærð og skatt-
heimta eykst stöðugt til að ná endum saman.
Menn muna ekki stærri stökk í skattheimtu en
þau sem voru tekin nú um áramótin. Ríkisstjórnin
ætlar að ná til breiðu bakanna, en staðreyndin er
sú að hin þunga skattheimta leggst á allan þorra
fólks og verður því afar óréttlát. Það stendur held-
ur ekki á viðbrögðunum því almenningur er fljótur
að átta sig á því þegar skattpíningin fer út í öfgar.
A endanum svarar fólk fyrir sig í kosningum en
nú þegar eru viðbrögðin komin fram í skoðana-
könnunum sem sýna að fylgið hrynur af ríkis-
stjórninni. Ætla má að hin ófyrirleitna skatta-
stefna stjórnarinnar valdi þar miklu.
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Helgi Magnússon — RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Valþór Hlöðversson —
AUGLÝSINGASTJÓRAR: Sjöfn Sigurgeirsdóttir og Kristrín Eggertsdóttir — LJÓSMYNDARAR: Grímur Bjamason, Gunnar
Gunnarsson, og Kristján Einarsson — ÚTGEFANDI: Frjálst framtak hf. — Tímaritið er gefið út í samvinnu við samtök í verslun og viðskiptum —
SKRIFSTOFA OG AFGREIÐSLA: Ármúli 18, sími 82300, Auglýsingasúni 31661 — RITSTJÓRN: Bíldshöfði 18, sími 685380 —
STJÓRNARFORMAÐUR: Magnús Hreggviðsson — AÐALRITSTJÓRI: Steinar J. Lúðvíksson — FRAMKVÆMDASTJÓRI: Halldóra
Viktorsdóttir - ÁSKRIFTARVERÐ: 1.975 kr. (329 kr. á eintak) - LAUSASÖLUVERÐ: 399 kr. - SETNING, TÖLVUUMBROT,
PRENTUN OG BÓKBAND: Prentstofa G. Benediktssonar - LITGREININGAR: Prentmyndastofan hf.
Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir
5