Frjáls verslun - 01.01.1989, Page 14
VIÐHORF
GALLUPKÖNNUN FYRIR FRIÁLSA VERSLUN:
SÓL HF. VINSÆLAST
— UM 23% VEUA VERÐBRÉFAFYRIRTÆKIN
ÞEGAR SPURT ER HVERNIG MENN MUNIÁVAXTA EINA MILUÓN
Sól hf. nýtur mestra vinsælda ís-
lenskra fyrirtækja samkvæmt
skoðanakönnun sem Gallup á ís-
landi gerði sérstaklega fyrir Frjálsa
verslun. Spurt var um viðhorf til
fyrirtækja. Neikvæðast er viðhorf
til Sambands íslenskra samvinnufé-
laga. Straumur sparifjár virðist
liggja til verðbréfafyrirtækjanna,
en í könnuninni var fólk spurt hvar
það vildi ávaxta sparifé sitt. Um
23% nefndu verðbréfafyrirtækin
en hlutdcild þeirra í heildarmark-
aðnum nam 6-7% í lok árs 1988.
Frjáls verslun fékk Gallup á ís-
landi til að framkvæma fyrir sig
skoðanakönnun í gegnum síma í
desember sl. Úrtak 1000 manna var
valið af Reiknistofnun Háskólans
úr þjóðskrá Hagstofunnar með
leyfi Tölvunefndar. Fólkið er af
landinu öllu og á aldrinum 15-70
ára.
Karlar eru 49% og konur 51%
úrtaksins og aldursskipting er sem
hér segir:
15-24 ára................... 21.4%
25-34 - .................... 23.9%
35-44 - .................... 21.1%
45-59 - .................. 21.0%
50-70 - .................... 12.6%
100.0%
Skipting úrtaksins eftir búsetu er
sem hér segir:
Höfuðborgarsvæðið ................ 55%
Annað þéttbýli ................... 36%
Dreifbýli.......................... 9%
100%
ÁVÖXTUN SPARIFJÁR:
ÖRYGGIÐ SITUR í FYRIRRÚMI
Gallup á íslandi kannaði fyrir Frjálsa verslun viðhorf
fólks til ávöxtunar spariijár.
Spurt var: „Ef þú ættir eina milljón króna og gætir
ávaxtað hana eftir nokkrum leiðum, hvern af eftirtöld-
um kostum mundir þú velja?“
Svörin voru sem hér segir (í %):
1. Leggja inn í banka/sparisjóð.................. 40.7
2. Kaupa spariskírteini/skuldabréf Ríkissjóðs .... 30.0
3. Kaupa verðbréf í verðbréfafyrirtæki .......... 23.2
4. Annað/veit ekki/svarar ekki .................. 6.1
100.0
Fólk var einnig spurt: „Hvers vegna mundir þú velja
ennan kost?“
vörin voru sem hér segir (í %):
1. Mesta öryggið ............................... 37.6
2. Besta ávöxtunin/kjörin ...................... 24.5
3. Þekki best til þessa kosts................... 10.2
4. Auðvelt að leysa út........................... 7.1
5. Besta ávöxtunin miðað við öryggi.............. 6.2
6. Annað ........................................ 6.9
7. Veit ekki .................................... 7.5
100.0
Og enn var fólk spurt:
„Hvaða banki, sparisjóður eða verðbréfafyrirtæki yrði
fyrir valinu við að ávaxta fjárhæðina?"
Svörin voru sem hér segir (í %):
1. Landsbankinn ............................. 23.3
2. Búnaðarbankinn ........................... 10.6
3. Fjárfestingarfélag íslands................. 8.4
4. Iðnaðarbankinn ............................ 7.9
5. Samvinnubankinn ........................... 5.5
6. Útvegsbankinn.............................. 3.7
7. Sparisjóður Reykjavíkur og nágr............ 3.1
8. Verslunarbankinn .......................... 2.9
9. Kaupþing .................................. 2.4
10. Sparisjóður Hafnarfjarðar ................ 2.4
11. Sparisjóður Kópavogs ..................... 2.2
12. Sparisjóður Vélstjóra .................... 2.2
13. Alþýðubankinn............................. 2.0
14. Verðbréfamarkaður Iðnaðarbankans.......... 1.3
15. Annað..................................... 7.3
16. Veit ekki ............................... 14.8
100.0
wm.
TEXTI: HELGI MAGNÚSS0N
14