Frjáls verslun - 01.01.1989, Side 20
OPINBER REKSTUR
fram endurskoðun á því hvernig fram-
kvæmdavaldið, sem annast fram-
kvæmd fjárlaga, hefur nýtt fjárlaga-
heimildir Alþingis, svo og hvort farið
hafi verið út fyrir þær. Líklegt þykir
að slík endurskoðun skili bestum ár-
angri þegar sá sem framkvæmir hana
er óháður þeim sem endurskoðunin
beinist að.
Stjómarskráin gerir reyndar ráð
fyrir því að ríkisstjóm standi Alþingi
reikningsskil á framkvæmd fjárlag-
anna með framlagningu ríkisreikn-
ings, sem Alþingi endurskoðar og
samþykkir. Til þessa verks hefur Al-
þingi valið þrjá yfirskoðunarmenn.
Með auknum umsvifum ríkisins verð-
ur umfang verksins hins vegar meira
en svo að þrír menn fái við það ráðið.
Ríkisendurskoðun er því einnig ætlað
að vera yfirskoðunarmönnum til að-
stoðar við störf þeirra. Að auki skal
hún vera þingnefndum til aðstoðar við
störf er varða fjárhagsmálefni ríkisins
LITASTÁL ER
LISTASTÁL
Plasthúðaðar stálklæðningar á
þök og veggi frá Inter Profiles eru
til í 17 litum.
- Prófílhæð 20 mm og 35 mm
- Allir fylgihlutir
- Skrúfur frá SFS
- Þéttilistar frá DAFA
- Verkfæri frá BOCH
- Fáanleg bogalaga
- Fáanleg með ALUZINK húð
- Ókeypis kostnaðaráætlanir
VERÐIÐ ER HAGSTÆTT
GÆÐI XJR STALI
og er litið á það sem þátt í að auka
möguleika þingsins til eftirlits með
framkvæmda valdinu.
HLUTVERK RÍKISENDURSKOÐUNAR
Ríkisendurskoðun er ætlað að ann-
ast afar víðtæka endurskoðun á
reikningum ríkisins. Hún skoðar
reikninga stofnana, sjóða og annarra
aðila þar sem kostnaður eða reikn-
ingslegt tap er greitt af almannafé.
Ennfremur reikninga fyrirtækja og
stofnana sem rekin eru á ábyrgð ríkis-
sjóðs eða ríkissjóður á að hálfu leyti
eða meira, þar með talin hlutafélög og
ríkisbankar.
Þá getur stofiiunin rannsakað
reikningsskil sveitarfélaga sem varða
sameiginlega starfsemi þeirra og rík-
isins, svo og þeirra stofnana og félaga
sem ríkið á hlut í. Hún getur krafist
reikningsskila af þeim sem fá fé eða
ábyrgðir frá ríkinu og kallað eftir
greinargerðum um ráðstöfun styrkja
og annarra framlaga.
Ríkisendurskoðun er ætlað að
fylgjast með framkvæmd fjárlaga jafn-
óðum og gera Alþingi grein fyrir fram-
vindu hennar. Þetta er nýmæli að því
leyti að yfirleitt hefur slík skoðun farið
fram eftir á, en nú þurfa þingmenn
ekki lengur að leita til fjármálaráðu-
neytisins, vilji þeir leita upplýsinga
um stöðu ríkissjóðs og framkvæmd
fjárlaga.
Loks er í verkahring Ríkisendur-
skoðunar að gangast fyrir svonefndri
stjómsýsluendurskoðun hjá ríkisfyr-
irtækjum. í því felst að kanna með-
ferð og nýtingu á mannafla og fé,
innra skipulag og verkaskiptingu og
það hvemig viðkomandi stofnun skil-
ar hlutverki sínu. Ríkisendurskoðun
vekur athygli stjómvalda á því sem
henni þykir hafa farið úrskeiðis og
gerir tillögur um úrbætur.
Af þessari upptalningu má sjá að
Ríkisendurskoðun er ekkert óvið-
komandi sem lýtur að meðferð opin-
berra fjármuna. Til þessa verks hefur
hún víðtækar heimildir samkvæmt
lögum. Hún hefur aðgang að öllum
gögnum sem máli skipta, fylgiskjöl-
um, skýrslum, bókum og bréfum.
Hún getur leitað úrskurðar fógeta ef
ekki er veittur aðgangur að gögnum,
svo sem hent hefur í svokölluðu
læknamáli.
SKIPULAG 0G STARFSFÓLK
Hjá Ríkisendurskoðun starfa þijá-
tíu og átta manns, þar af fjórir löggiltir
endurskoðendur og fimmtán við-
skiptafræðingar. Yfirmaður er ríkis-
endurskoðandi, Halldór V. Sigurðs-
son, og staðgengill hans, Sigurður
Þórðarson, vararíkisendurskoðandi.
Báðir eru þeir löggiltir endurskoð-
endur og reyndir í stjórnsýslu. Hall-
dór hefur gegnt starfi ríkisendur-
skoðanda frá því 1969, en Sigurður
var til skamms tíma skrifstofustjóri í
fjármálaráðuneytinu.
Stofnunin skiptist í sex deildir:
endurskoðunarsvið I, II og III, sem
skipta á milli sín verkefnum eftir ráðu-
neytum, tekjusvið I og II, sem end-
urskoða innheimtu tekna og loks deild
sem sinnir öðrum verkefnum, svo og
samstarfi og þjónustu við Alþingi.
Yfirmaður endurskoðunarsviða og
deildarstjóri hins fyrsttalda er skrif-
stofustjórinn Sveinn Arason, löggilt-
ur endurskoðandi og starfsmaður
Ríkisendurskoðunar frá 1972. End-
urskoðunarsvið I sér um eftirlit með
fyrirtækjum sem heyra undir
menntamálaráðuneyti, dóms- og
kirkjumálaráðuneyti, fjármálaráðu-
neyti, viðskiptaráðuneyti og þárlaga-
og hagsýslustofnun. Að auki annast
endurskoðunarsvið I ýmis verkefni
sem lúta að Ríkisendurskoðun sjálfri,
svo sem í fræðslu-og tölvumálum.
Endurskoðunarsvið II annast end-
urskoðun stofnana undir forræði iðn-
aðar-, landbúnaðar-, sjávarútvegs-,
samgöngu- og utanríkisráðuneyta.
Deildarstjóri þess er Siguijón I.
Haraldsson. Hann er viðskiptafræð-
ingur að mennt, starfaði hjá Ríkisend-
urskoðun jafnframt námi og réðst
þangað að því loknu.
Undir endurskoðunarsvið III heyra
heilbrigðis- og tryggingaráðuneyti,
félagsmálaráðuneyti og Hagstofan.
Deildarstjóri þar er Sigurður Her-
mundarson, sem áður var deildar-
stjóri hjá Tryggingastofnun.
Tekjusvið I sér um eftirlit með toll-
um og aðflutningsgjöldum til að
tryggja samræmi í reglum og af-
greiðsluháttum. Verksvið tekjusviðs
I var reyndar víðtækara þar til á síð-
asta ári að hluti verkefna þess fluttist
til embættis ríkistollstjóra. Auk þess