Frjáls verslun - 01.01.1989, Page 27
vel þekkt í heilbrigðisrekstri og sum í öðr-
um ríkisrekstri. En á bak við þessar al-
mennu niðurstöður liggur raunveruleiki
sem segir býsna merkilega sögu.
REKSTRARHALLIOG FJÁRHAGSSTAÐA
Rekstrartap á fyrstu níu mánuðum síð-
asta árs var alls 21.708.000 kr. Til saman-
burðar var rekstrartap á árinu 1987 tæpar
16 milljónir og 26.5 milljónir árið 1986.
Þegar borinn er saman raunverulegur
kostnaður og áætlun fjárlaga kemur í ljós
að þennan halla má einkum rekja til mun
meiri launakostnaðar en gert var ráð fyrir í
fjárlögum. Launagreiðslur voru orðnar
25.7 milljónum meiri í september en
reiknað hafði verið með. Annar kostnaður
var hins vegar um 8.6 milljónum lægri og
sértekjur höfðu reynst tæpum 3 milljónum
hærri en áætlað var.
Sjúkrahúsið skuldaði rúmlega 15 millj-
ónir í opinber gjöld eftir þetta tímabil. Þar
var einkum um að ræða gamlar launa-
skattsskuldir hjá sýslumanninum í Arnes-
sýslu. Af þessum fimmtán milljónum eru
rúmlega 7 milljónir ógreiddir dráttarvext-
ir.
í skýrslu Ríkisendurskoðunar er ekki
gerð grein fyrir umfangi almennra við-
skiptaskulda. Rekstrarhalla var á þessum
tíma ekki mætt með aukafjárveitingum,
svo reikna má með að skammtímaskuldir
sjúkrahússins hafi verið umtalsverðar. í
skýrslu Ríkisendurskoðunar um ríkis-
reikning 1987 kemur fram að viðskiptavin-
ir Lyfjaverslunar ríkisins skulduðu fyrir-
tækinu um 175 milljónir ílok árs 1987. Þær
upplýsingar benda til þess að útgjaldaþörf
sjúkrahúsa sé “fjármögnuð" að verulegu
leyti með skuldasöfnun.
LAUN 0G STARFSMANNAHALD
Fjárlög gera ráð fyrir 87 stöðugildum
við Sjúkrahús Suðurlands. í reynd eru þau
95 og starfsmenn alls 144.
Margt starfsfólk á sjúkrahúsinu er ráðið
í hlutastarf, en vinnur fullt starf og fær
mismuninn greiddan samkvæmt yfir-
vinnutaxta. Af þeim 25.7 milljónum sem
launagreiðslur fóru fram úr áætlun voru
9.1 milljón föst laun, en 16.6 milljónir
álagsgreiðslur (yfirvinna, afleysingar
o.fl.).
Heildarlaunagreiðslur á tímabilinu voru
97.1 milljón króna. Ef allir starfsmenn
væru í 100% starfi og stöðugildi 95 væru
launagreiðslur 74.3 milljónir króna eða
22.8 milljónum lægri en raunin varð. Ef
stöðugildi væru hins vegar 87, eins og
fjárlög gera ráð fyrir, og allir starfsmenn í
100% starfi næmu launagreiðslur 68.8
milljónum króna — væru m.ö.o. rúmlega
28 milljónum lægri en raunveruleg laun.
Libby'/
Stórgóða tómatsósan
27
AUK hf. 103.2/SlA