Frjáls verslun - 01.01.1989, Side 38
AFMÆLI
áðumefndra áhrifa hafi gætt varðandi
fjölbreytt úrval fatalitar hjá Efnalaug
Reykjavíkur eða eins og segir í aug-
lýsingu: „Litum svart á mánudögum,
dökkblátt á þriðjudögum, dökkbrúnt á
miðvikudögum. Aðra liti seinnihluta
vikunnar!"
En stríðinu fylgdi ekki bara gósen-
tíð kaupahéðna. Ritstjóri blaðsins
hafði áhyggjur af viðskiptaháttum
breska setuliðsins og segir: „Flest
matvæli hafa þeir flutt með sér, meira
að segja mjólk. Væri athugunarefni
fyrir Mjólkursamsöluna að reyna að
komast að samningum um að selja
Bretum nokkuð af þeirri mjólk, sem
nú fer í verðlitla osta.“ A öðrum stað
segir: „Nokkra furðu vekur það að
Bretar hafa enn ekkert greitt fyrir
hús þau, sem þeir hafa heimtað til
notkunar, og er þó fyrir
löngu sett á laggirnar
(t&Z' nefnd sem á að meta
leiguna."
HALLAR UNDAN FÆTI
Árið 1942 fer að
halla nokkuð undan fæti
Sjóvátryggingafélag íslands auglýsti mjög í blaðinu fyrstu áratugina.
fyrir tímaritinu Frjálsri verslun. Er-
lent efni setti æ meiri svip á blaðið og
frásagnir af innlendum verslunar- og
vipskiptamálum lentu í undandrætti.
Þessa gætti raunar strax á árinu 1941
og kann ýmislegt að valda því. Það
Pera dagsins í dag
DULUX EL
80% orkusparnaður dæmi:
OSRAM
Heildsölubirgðir
SJÓHANN ÓLAFSSON &CO.HF.
43 Sundaborg 13-104 Reykjavík - Sími 688 588
sem þó skipti meira máli var að tvö
tölublöð voru sameinuð í eitt þannig
að aðeins komu út 6 hefti það ár.
Blaðið heldur áfram að skrifa um
erlenda kaupsýslumenn, viðskipti
stríðsþjóðanna og allnokkuð um sögu
og hagfræði. Þannig birtist fræðileg
grein eftir Hayek í þrennu lagi og önn-
ur eftir Sverri Kristjánsson sagn-
fræðing um merkantílismann í tveim-
ur tölublöðum ársins 1942. En ekki
var einungis ritað um erlend málefni.
Þannig birtir blaðið fróðlegan lista um
þróun verslunar í Reykjavík á árunum
1912-1939. Þar kemur fram að fyrra
árið voru 15 heildverslanir í bænum
og 145 smáverslanir en síðara árið
hafði heildverslunum fjölgað upp í 70
og smáverslunum upp í hvorki fleiri
né færri en 543!
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN STUDDUR
Eins og áður sagði reyndi Frjáls
verslun framan af að forðast beina
þátttöku í stjórnmálaumræðunni þótt
blaðið færi ekki dult með andúð sína á
haftastefnu Framsóknar á þessum ár-
um. Sumarkosningarnar 1942 setja
svip á blaðið og þar er í fyrsta sinn lýst
yfir sérstökum stuðningi við stefnu-
mið Sjálfstæðisflokksins í ómerktri
grein undir fyrirsögninni: „Sameinað-
ir stöndum vér.“ Þar er mikið rætt
um réttlátari kjördæmaskipun, sem
raunar var meginkosningamálið þetta
sumar og í lokin birt með feitu letri
38