Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1989, Síða 53

Frjáls verslun - 01.01.1989, Síða 53
Frjáls verslun í Washington. Snar þáttur í útgáfustarfseminni fólst í því að veita nýjum straumum inn í umræðu um viðskipta- og markaðsmál Islendinga. Hér eru Jóhann Briem og Markús Örn Antonsson með aðalritstjóra og útgefanda U.S. News and World Report árið 1972. þessu sviði, var eðlilegt að menn gerðu sér grein fyrir mikilvægi versl- unar og þjónustu og sjálfsagt að til væri vettvangur fyrir þá umræðu sem fram fór um þau mál. Fjölmiðlar sinntu þessum málum lítið. Við vild- um skapa atvinnulífinu jákvæðari ímynd og hvöttum til umræðna á þessu sviði. Við brydduðum upp á ýmsu sem þá var óþekkt, en átti sér auðvitað er- lendar fyrirmyndir. Við byrjuðum t.d. á að kynna forystumenn í atvinnulífmu og Guðmundur Magnússon prófessor tók saman lista yfir 100 stærstu fyrir- tækin, en það hygg ég að hafi verið vinsælasta efni blaðsins frá upphafi. Guðmundur skrifaði auk þess margar mjög athyglisverðar greinar á þess- um tíma, sem stóðust fyllilega saman- burð við það sem best var gert í sam- bærilegum erlendum tímaritum. Við gerðum okkur grein fyrir því að útgáfan varð að byggja á tvennu. í fyrsta lagi áskrifendum og í öðru lagi á auglýsingum. Auglýsingar voru þá ódýrar og gáfu ekki mikið í aðra hönd og því urðum við að byggja á áskrift- um. Þetta var þeim mun erfiðara í þá tíð þegar haft er í huga að tímaritin voru yfirleitt gefm út af áhugamönn- um, en við vorum að byggja upp fyrir- tæki og vildum setja fagmennsku í öndvegi. Þetta tókst.“ Margir kunnir menn unnu við blað- ið. Gætirðu nefnt einhverja þeirra? „Það væri að æra óstöðugan að ætla sér að telja upp alla þá sem komu nærri útgáfunni á fyrstu árunum, en þeir voru margir. Ólafur Thoroddsen lögfræðingur var fyrsti útgáfustjór- inn, Guðmundur Lárusson tannlækn- ir fyrsti auglýsingastjórinn og Ólafur Gústafsson lögfræðingur var meðal fyrstu starfsmanna. Margir fyrsta flokks blaðamenn skrifuðu í tímaritið og höfðu mikinn áhuga á því. í þessu sambandi get ég nefnt nöfn Björns Vignis Sigurpáls- sonar, sem nú sér um viðskiptamál í Morgunblaðinu, Bjama Sigtryggs- sonar, sem skrifar í Alþýðublaðið, fréttastjóra Morgunblaðsins, þeirra Freysteins Jóhannssonar og Magnús- ar Finnssonar o.fl. Samstarfið við þessa menn var mjög ánægjulegt. Ég nefni sérstaklega Markús Öm Antonsson núverandi útvarpsstjóra, en hann tók við ritstjórn Frjálsrar verslunar á sínum tíma og fórst það vel úr hendi eins og annað sem hann hefur tekið að sér. Markús Örn hafði víðtæka reynslu í fréttamennsku og var á allan hátt kjörinn til þess að ritstýra blaðinu. Hann naut mikils trausts í þjóðfélaginu, enda kom á daginn að hann lyfti blaðinu verulega þann tíma sem hann var ritstjóri. Fyrir utan gott samstarf við marga góða blaðamenn og aðra starfsmenn fyrirtækisins vil ég geta um gott sam- starf við þá sem tóku að sér prent- verkið. Fyrst í stað var Frjáls verslun unnin hjá Félagsprentsmiðjunni. Þar var fyrir Konráð Bjarnason, sem reyndist okkur mjög vel og átti stóran þátt í því að blaðið varð að veruleika. Síðan skiptum við við Guðmund Benediktsson í Kópavoginum og allan þann tíma sem ég var með þessa út- gáfu átti ég gott samstarf við hann.“ Þú segir í bréfi frá útgefanda að Frjáls verslun eigi ekki einungis að vera blað kaupsýslumanna heldur 53

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.