Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1989, Page 55

Frjáls verslun - 01.01.1989, Page 55
 „VAR AÐ VASAST í FLEST ÖLLU“ — SEGIR BALDUR PÁLMASON RITSTJÓRI FRJÁLSRAR VERSLUNAR1946-1949 Baldur Pálmason. Hinn kunni útvarpsmaður, Baldur Pálmason, var ritstjóri Frjálsrar verslunar á árunum 1946-1949. Á þeim tíma var verulegur vöxtur í útgáfunni og setti ritstjórinn ýmis merki á blaðið sem lengi eimdi af. Bald- ur var spurður um tildrög þess að hann tók ritstjórastarfið að sér: „Ég hafði um hríð verið virkur í félagsmálum Verslunarmannafélags Reykjavíkur, setið í stjórn og samn- inganefnd. Á þessum árum starfaði ég sem bókari hjá G. Helgason og Melsteð en þegar mér bauðst að ger- ast fastur starfsmaður VR fyrri hluta árs 1946 ákvað ég að söðla um og helga mig algerlega félagsmálunum með þessum hætti. Mitt aðalstarf var að sjá um útgáfu Frjálsrar verslunar en auk þess að gegna ýmsu sem til féll á skrifstofu félagsins." Þurftir þú einnig að sinna fjár- hagshlið útgáfunnar? „Nei, ekki nema að litlu leyti. Minn tími fór fyrst og fremst í að viða að efni og fylgja málum eftir í prent- smiðju, en þá var Frjáls verslun prentuð í ísafoldarprentsmiðju. Þar á meðal var allur prófarkalestur, upp- setning á síður með prenturum og fleira þess háttar. Hins vegar bar Indriði Bogason, skrifstofustjóri Verslunarmannafélagsins, hitann og þungann af auglýsingaöfluninni, inn- heimtu reikninga og þess háttar. Var það eðlilegt þar sem félagið var hinn formlegi útgefandi blaðsins og greiddi jafnframt þann halla sem varð á útgáf- unni.“ Eins og áður sagði breyttist Frjáls verslun allmikið í umsjá Baldurs Pálmasonar og ýmiss konar efni var í auknum mæli unnið á ritstjórn. Var það veruleg breyting frá því sem áður hafði verið, en þá var mest um grein- ar í blaðinu frá mönnum utan ritstjórn- ar. Við spurðum Baldur um dæmi um nýja þætti sem hann hleypti af stað. „Þetta er nú farið að hverfa í minn- ingunni en ég man að það var metnað- armál að brjóta upp á einhverju nýju. Ég hóf að birta smásögur sem ég þýddi og einnig fræðandi greinar um erlend viðskiptamál svo og um land- fræðileg efni. Þá tók ég upp ýmsa fasta þætti eins og Skörð fyrir skildi, þar sem minnst var þekktra kaup- sýslumanna og verslunarmanna er látist höfðu og þáttinn Innan búðar og utan, en þar var fjallað um það sem efst var á baugi í viðskiptalífmu. Góðvinur minn Halldór Pétursson teiknari og listmálari kom mjög við sögu blaðsins á mínum ritstjómarár- um og auk þess að teikna upp fasta „hausa“ í blaðið birti ég skopmyndir eftir hann af ýmsum kaupsýslumönn- um. Þetta var viðleitni til þess að létta yfirbragð blaðsins. Sama er að segja um þáttinn Rúsínur, en þar var reynt að draga fram skrýtlur og spakmæli sem tengdust viðskiptum og fé- sýslu.“ Við spurðum Baldur hvort hann hefði fundið fyrir áhuga verslunar- manna á blaðinu? „Ekki varð ég nú tiltakanlega var við mikla umræðu um blaðið en hygg þó að mönnum hafi almennt þótt það vera í sókn frekar en vörn. Frjáls verslun var hluti af starfi Verslunar- mannafélagsins en þrátt fyrir það minnist ég ekki mikilla umræðna um útgáfuna á stjórnarfundum eða meðal verslunarfólks almennt." Nú hættir þú afskiptum af blaðinu í árslok 1949. Hvað kom til? „Þar olli mestu að ég hætti föstu staríi hjá VR síðla árs 1947 og hvarf til Ríkisútvarpsins, sem var minn starf- svettvangur næstu áratugi. Þar með var tími til ritstjórnar knappur og hlaut að koma að því að nýir menn tækju við. Þeir félagar Gunnar Magn- ússon og Njáll Símonarson höfðu í ár- slok 1947 komið inn í ritnefndina og léttu mjög undir með mér en loks var skrefið stigið til fulls í árslok 1949 og þeir gerðust ritstjórar. Þar með lauk beinum afskiptum mínum af þessu ág- æta tímariti Frjálsri verslun," sagði Baldur Pálmason að lokum. 55

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.