Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1989, Síða 56

Frjáls verslun - 01.01.1989, Síða 56
AFMÆLI „MJOG ANÆGJULEGUR TIMI“ — SEGIR PÉTUR J. EIRÍKSSON RITSTJÓRIFRJÁLSRAR VERSLUNAR1980-81 Pétur J. Eiríksson. „Mín afskipti af Frjálsri versl- un voru afskaplega ánægjuleg og fjölbreytileg því auk þess að sinna ritstjóm um tíma var ég í framkvæmdastjórn með Jó- hanni Briem og tók því þátt í að byggja upp fyrirtæki hans. Þegar ég kom þar til starfa voru blöðin 4 talsins en 9 þegar ég hætti. Það má því segja að minn tími hjá Frjálsu framtaki hafi verið hluti af fjölmiðlabylting- unni.“ Þetta sagði Pétur J. Eiríksson framkvæmdastjóri markaðssviðs Flugleiða um sinn tíma hjá Frjálsu framtaki, en þar starfaði hann sam- fleytt frá árinu 1976 til 1981 er hann réðst til Flugleiða. Raunar sagði hann ekki alveg skilið við Frjálsa verslun strax því allmargar greinar skrifaði hann í blaðið eftir að beinum afskipt- um af ritstjórn þess lauk. Þegar ég tók við ritstjórn af Mark- úsi Emi Antonssyni haustið 1980 var strax ákveðin stefna tekin varðandi Fijálsa verslun. Ég vildi draga sem mest úr beinum skrifum ritstjóra en auka þess í stað aðkeypt efni eftir föngum. Tilgangurinn var sá að auka breiddina því mér fannst heppilegra að viðhorf og stíll sem flestra fengju að njóta sín á síðum blaðsins. Margir ágætir blaðamenn skrifuðu fyrir okk- ur á þessum tíma, m.a. Ólafur Sig- urðsson nú sjónvarpsfréttamaður, Gissur bróðir hans í Hljóðvarpinu, Ólafur Jóhannsson á fréttastofu Sjón- varps, Freysteinn Jóhannsson á Morgunblaðinu og fleiri. Einnig hófu að skrifa þeir Sighvatur Blöndahl, síð- ar ritstjóri blaðsins og Leo M. Jóns- son véltæknifræðingur, sem sendi okkur margar athyglisverðar greinar. Þá hélt Guðmundur Magnússon próf- essor í viðskiptafræði áfram að skrifa, en ég hygg að enginn hafi haldið jafn- lengi út pistlum í Frjálsrierslun." ,Jú, þetta var mjög skemmtilegur tími og okkar metnaður og markmið var að komast sem oftast á fréttasíð- ur dagblaðanna. Það tókst nokkrum sinnum og vil ég nefna í því sambandi listana yfir 100 stærstu fyrirtækin og ýmis forsíðuviðtöl, sem vöktu at- hygli. Ég man t.d. eftir viðtölum sem snertu flugmál, en um þau var tals- vert fjallað á síðum Frjálsrar verslun- ar. Magnús Gunnarsson þáverandi framkvæmdastjóri Arnarflugs lét ým- islegt flakka í viðtali við okkur um málefni félagsins og einnig Steingrím- ur Hermannsson þáverandi sam- gönguráðherra, en hann kynnti fyrst í Frjálsri verslun hugmyndir ráða- manna um að koma fótunum undir Arnarflug á þeim tíma. Það er svo óneitanlega sérkennilegt að einmitt í dag skulum við enn vera að ræða svipuð vandamál og þá. Það er greini- lega ekkert nýtt undir sólinni!" „Blaðinu var almennt vel tekið þennan tíma sem ég hafði afskipti af því og ástæðan var einfaldlega sú að það vantaði tilfinnanlega umræðu- vettvang um viðskipti og verslun. Aðrir fjölmiðlar á þeim tíma skrifuðu mjög lítið um viðskipti og ef það henti voru þau skrif flest neikvæð nema ef vera skyldi hjá Morgunblaðinu. I út- varpi og sjónvarpi var helst aldrei tal- að um málefni viðskiptalífsins nema um bágan hag fyrirtækja úti á landi. Allt annað var flokkað undir auglýs- ingastarfsemi á þeim bæ og þótti mörgum skrýtið. Fjölmiðlar hafa vissulega breyst að þessu leyti en það breytir ekki því að áfram er þörf fyrir vandað tímarit um viðskiptamál. Þess vegna kemur Frjáls verslun áfram út og þess vegna hefur blaðið miklu hlutverki að gegna í íslensku þjóðlífi,“ sagði Pétur J. Ei- ríksson að lokum. 56

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.