Frjáls verslun - 01.01.1989, Qupperneq 64
SAGA
Lífstykkjabúðin í Hafnarstræti 11. Á hæðinni fyrir ofan er heildverslunin A.
J. Bertelsson & Co. Ljósm.: Magnús Ólafsson. Ljósmyndasafnið.
son) í Tryggvagötu 8, Nærfatagerðinni í
Aðalstræti 9, Nærfatagerðinni Hörpu
(Kristjánjónsson) í Austurstræti 7, Nær-
fataverksmiðjunni Lillu og Verksmiðjunni
Fram í Austurstræti 10 en í þeirri síðast-
nefndu voru ennfremur framleiddar skyrt-
ur. Þá starfaði og Skyrtugerðin í Reykja-
vík.
Ekki færri en sex hanskagerðir voru í
Reykjavík. Þær voru Hanskagerðin (Guð-
rún Eiríksdóttir) í Austurstræti 5, Glófinn
(Margrét Bjömsdóttir) í Kirkjustræti 4,
Hanskinn í Lækjargötu 4, Magni (Jóhann
Karlsson) í Þingholtsstræti 23, Rex í Suð-
urgötu 16 og Baldursbrá á Skólavörðustíg
4. Þá var ein axlabanda- og sokkagerð,
nefnilega Verksmiðjan Fönix (0. Komer-
up- Hansen) í Suðurgötu 10. Húfur voru
m.a. framleiddar í Sporthúfugerðinni (Ás-
laug Gunnarsdóttir) á Hávallagötu 46.
Hnappar og beltaspennur vom m.a. fram-
leidd í Hnappagerðinni (Anna Bjamason) í
Suðurgötu 5 og Sylgju (Baldvin Jónsson) á
Skólavörðustíg 13A. Lífstykki og kragar
vom framleidd í Lady, lífstykkja- og
kragaverksmiðju (Þorleif Sigurðardóttir)
á Laugavegi 30. Þá rak Hólmfríður Guð-
steinsdóttir slifsisgerðina Atlask á Lauga-
vegi 34 og Jakobína Ásmundsdóttir Háls-
bindagerðina Jaco á Tryggvagötu 28.
Saumastofur og saumakonur vom ótelj-
andi í Reykjavík.
Skóverksmiðjur voru hjá Eiríki Leifs-
syni í Ingólfsstræti 21C og Skógerðinni á
Rauðarárstíg 15. Gúmmískór vom fram-
leiddir í Gúmmískógerð Austurbæjar 0ó-
hannes Bjamason og Bjami Kolbeinsson)
á Laugavegi 47 og í Gúmmískógerðinni
(Kristján Fr. Guðmundsson og Jakob J.
Jónsson) á Laugavegi 68.
EFNALAUGAR OG ÞVOHAHÚS
Efnalaugar og þvottahús stóðu með
blóma í hinni ört vaxandi Reykjavík. Þar
má nefna Efnalaug Reykjavíkur (dánarbú
Tómasar Jónssonar) á Laugavegi 32B,
Efnalaugina Glæsi (Oddur Jónsson) í
Hafnarstræti 5, Efnalaugina Lindina (Elin-
borg Hrefna Þórðardóttir) á Frakkastíg
16, Fatapressuna Foss Oón Magnússon) á
Skólavörðustíg 22C, Fatapressun Reykja-
víkur (Halldór Sigurbjömsson) í Hafnar-
stræti 17 og Nýju efnalaugina (Gunnar
Gunnarsson) á Laugavegi 20. Meðal
þvottahúsa vom Drífa á Baldursgötu 7,
Geysir Oóhanna Eiríksdóttir) á Spítalastíg
4B, Grýta (G.H. Jónsson) á Laufásvegi 9,
Nýja þvottahúsið (Þómnn Klemenz) á
Grettisgötu 46 og Þvottahús Reykjavíkur
Oakobína Helgadóttir) á Vesturgötu 21.
SNYRTIVÖRUR
Þær verslanir sem sérhæfðu sig í
snyrtivörum voru Remedía (Friðrik
Dungal) í Austurstræti 7, Sápubúðin (Egitl
Sandholt og Þorkell Sigurbjömsson) á
Laugavegi 36, Sápuhúsið (Ámi og Eba
Friðriksson) í Austurstræti 17 og Goða-
foss (Kristín Meinholt) á Laugavegi 5.
BYGGINGAVÖRUR
Þær verslanir í Reykjavík sem helst
útveguðu byggingaefni, vélar og verkfæri
fyrir 50 árum voru þessar: Á. Einarsson &
Funk í Tryggvagötu 28 (Eigandi Júlíus
Schopka), G. J. Fossbergá Vesturgötu3,
IJelgi Magnússon & Co. íHafnarstræti 19,
Byggingavömverslun ísleifs Jónssonar í
Aðalstræti 9, Jón Loftsson í Austurstræti
14, J. Þorláksson & Norðmann í Banka-
stræti 11, Katla á Laugavegi 27 (Eigandi
Ólafur Magnússon), Málarinn (Pétur
Guðmundsson) í Bankastræti 7, Málning
og jámvömr á Laugavegi 25 (Eigendur:
E. Gíslason, Bessi B. Gíslason og G.
Björnsson), Mjólkurfélag Reykjavíkur í
Hafnarstræti 5 (Framkvstj.: Eyjólfur Jó-
hannsson), SÍS (Forstjóri Sigurður Krist-
insson), Slippfélagið í Reykjavík (Fram-
kvæmdastjóri Sigurður Jónsson), Ludvig
Storr á Laugavegi 15, B. H. Bjarnason í
Aðalstræti 7 (Eigandi Sigurður Sveins-
son), Jes Zimsen í Hafnarstræti 21, O.
EllingseníHafnarstrætil5, Vald. Poulsen
á Klapparstíg 29, Veggfóðrarinn í Kola-
sundi 1 og Brynja á Laugavegi 29.
Framleiðendur byggingaefnis voru
m.a. eftirtaldar verksmiðjur: Harpa, lakk-
og málningarverksmiðja (Framkvstj.:
Pétur Guðmundsson) á horni Hringbraut-
ar (nú Snorrabrautar) og Skúlagötu, Litir
og lökk (Framkvstj.: Pétur 0. Johnson) í
Rauðarárholti, Ofnasmiðjan (Sveinbjöm
Jónsson) við Háteigsveg, Stálofnagerð
Guðmundar Breiðfjörð, Pípuverksmiðjan
(Kristján Guðmundsson) við Rauðarár-
stíg, Steinsteypan (Einar Magnússon) við
Skúlagötu, Vikurfélagið Gón Loftsson),
Timburverksmiðja Ama Jónssonar á
64