Frjáls verslun - 01.02.1996, Page 10
könnun Frjálsrar versl-
unar, segjast um 31%
vera fylgjandi gerð gang-
anna en um 69% eru and-
víg gerð þeirra.
Samkvæmt könnun-
inni eru konur frekar
andvígar gerð ganganna
en karlar. Meira en helm-
ingur allra kvenna, sem
spurðar voru, sagðist
andvígur. Karlar eru hins
vegar í meirihluta þeirra
sem segjast fylgjandi
gerð ganganna.
I hópi þeirra, sem eru
fylgjandi gerð ganganna,
er fólk yngra en 45 ára í
meirihluta. Af þeim, sem
eru á móti göngunum, er
fólk eldra en 45 ára mest
áberandi.
Frjáls verslun spurði
fólk einnig hvort það
héldi að það myndi nota
jarðgöngin undir Hval-
fjörð. Af þeim, sem tóku
afstöðu, ætlar meirihluti
svarenda að nota göngin.
Það stafar af því að fjórð-
ungur þeirra, sem eru á
móti gerð jarðganganna,
ætlar hins vegar að nota
þau og sömuleiðis stór
hluti þeirra sem eru hlut-
lausir varðandi gerð
ganganna.
Af þeim, sem tóku af-
stöðu, ætla 54% sér ætla
að nota göngin en um
46% telja sig ekki munu
nota þau.
Spurt var: Hvort ert þú
fylgjandi, andvíg(ur) eða
hlutlaus um gerð jarð-
ganga undir Hvalfjörð?
Seinni spurningin var:
Heldurðu að þú munir
nota göngin? Tölfræðileg
óvissa er um 4%.
Könnun Frjálsrar verslunar um Hvalfjarðargöngin:
HVALFJARÐARGÖNGIN
Meirihluti fólks er á móti gerð jarðganga undir
Hvalfjörð. Hins vegar ætlar fjórðungur þeirra, sem eru
á móti göngunum, engu að síður að notaþau.
Meirihluti fólks er á
móti gerð jarðganga und-
ir Hvalfjörð, samkvæmt
skoðanakönnun Frjálsr-
ar verslunar fyrstu
helgina í mars. Um 52%
spurðra segjast andvíg
gerð jarðganganna en
um 23% eru fylgjandi.
Um 25% segjast hlut-
laus. Þess má geta að
þannig hittist á að DV
gerði skoðanakönnun á
sama tíma um sama efni
og þar mældist einnig
nokkur andstaða við
gerð jarðganga
Hvalfjörð.
undir I Ef aðeins eru teknir,
I þeir sem tóku afstöðu í
HVALFJARÐARGÖNGIN
NOTKUN Afstaða til ganganna
Fylgjandi Andvígir Hlutlausir Samtals
Ætla að nota 115 58 73 246
Ætla ekki að nota 4 176 33 213
Hlutlausir 1 34 9 44
Samtals 120 268 115 503
Meirihluti fólks er á móti gerð jarðganga undir Hvalfjörð. Hins
vegar telur meirihluti þeirra, sem tóku afstöðu, sig ætla að
nota göngin engu að síður.
10