Frjáls verslun - 01.02.1996, Page 45
léku fyrir dansi, voru ein-
rnitt afmæli Margrétar,
konu Kolbeins, og afmæli
Hildu, eiginkonu Þor-
steins, en þeir vinimir
skiptust einnig á veislust-
jóm hvor fyrir annan við
þessi tækifæri.
SVEINAR KÁTIR SYNGIÐ
Kolbeinn var síðastliðið
haust prófaður inn í Karla-
kórinn Fóstbræður og var
settur í 2. tenór en hann
hefur ágæta söngrödd.
Hann starfaði með kómum
lengi vetrar en hefur
ákveðið að gefa því tómst-
undastarfi frí vegna nýs
embættis í Verslunarráði.
„Hann Kolbeinn sækir Kolbeinn
ekki sjálfur í sviðsljósið en poppari í
skorast ekki undan ábyrgð
þegar félagar hans leita til hans,“ seg-
ir Þorsteinn Guðnason, sem er einn
nánasti vinur Kolbeins og fékk hann
til liðs við Fóstbræður, en Þorsteinn
er gamalreyndur Fóstbróðir og Kol-
beinn fer jafnan með honum á hið ár-
lega þorrablót Fóstbræðra sem er
sérstæð karlasamkoma, aðeins fyrir
útvalda, eitt af síðustu vígjum slíkra
skemmtana.
„Ég hef þekkt Kolbein í 30 ár og
okkur hefur aldrei orðið sundurorða
nema í hita leiksins í íþróttum en það
nær aldrei út fyrir völlinn, “ sagði Þor-
steinn en hann lék körfubolta í ÍR með
Kolbeini árum saman.
Kolbeinn á fáa en nána vini og utan
fjölskyldunnar eru þeir helstir um-
ræddur Þorsteinn, Sverrir Sveins-
son, sem rekur Ráðgjöf og Efnahags-
spá, Steinn Sveinsson í Flutnings-
miðluninni og Knútur Signarsson,
svili Kolbeins. Þar til á þessu ári var
Kolbeinn félagi og fastagestur í spila-
klúbbi en hefur tekið sér stutt frí. í
klúbbnum eru auk hans Steinn
Sveinsson, Agnar Friðriksson, fram-
Kristinsson lærði að leika á fagott, var vinsæll
Mods og hefur sungið í karlakór.
kvæmdastjóri SH í Grimsby sem
einnig er í fríi, Pétur Jóhannsson hjá
Skandia, vinur Kolbeins, ogMarteinn
Geirsson fótboltakappi.
Fyrir nokkrum árum ákváðu gamlir
félagar úr Álfheimunum að hittast
einu sinni á ári og borða saman við
ylinn frá saklausum æskuminningum.
Þetta hefur tekist nokkrum sinnum
en þetta eru, auk Kolbeins, Ágúst
Þór Ámason fréttamaður og Guð-
mundur Jónsson, verðlaunaarkitekt í
Noregi.
Enn er það ónefnt að í nokkur ár
hefur Kolbeinn farið í eina veiðiferð á
ári en þá fara nokkrir kunningjar sam-
an í Stóru-Laxá í Hreppum í haust-
veiðina. Þetta er svolítið breytilegur
hópur en fastir þátttakendur eru Kol-
beinn, Jón Albert, bróðir hans, Bjöm
Jónsson, markaðsstjóriíMyllunni, og
Halldór Þórðarson, starfsmaður
Myllunnar sem hefur þriggja áratuga
veiðireynslu í Laxá.
KURTEIS 0G ÁKVEÐINN EN FJARLÆGUR
Samstarfsmenn Kolbeins lýsa hon-
um sem þægilegum sam-
starfsmanni sem sé kur-
teis og ákveðinn en fjar-
lægur gagnvart
undirmönnum, stefnufast-
ur og sanngjam í samskipt-
um. Hann kann vel að efla
hópinn til átaka og finnst
hann ekki þurfa að vera í
sviðsljósi sjálfur. Hann
virkar oft lokaður og jafn-
vel feiminn en þegar á þarf
að halda stígur hann fram
og er ófeiminn og einbeitt-
„Hann er ákaflega ljúfur
og þægilegur í samstarfi
en mjög kappsamur og
ósérhlífinn og með því
hvetur hann aðra til dáða,“
sagði Bjöm Jónsson mark-
aðsstjóri.
„Hann Kolbeinn er ljúf-
menni á yfirborðinu og ákaflega
raungóður en á stundum getur hann
verið mjög harðneskjulegur og misk-
unnarlaus. Hann er greindur og gam-
ansamur en kímnigáfan er á stundum
miskunnarlaus og á kostnað annarra.
Hann er sanngjam en getur verið
langrækinn og hefnigjam,“ segir
maður sem þekkir Kolbein mjög vel.
Kolbeinn er greindur og forvitinn
og óhræddur við að leita uppi nýjung-
ar og prófa þær. Hann hefur góða
kímnigáfu en flaggar henni ekki við
hvern sem er en gálgahúmor og kald-
hæðni eru einkenni hennar. Hann
verður trúlega ekki áberandi á opin-
berum vettvangi í nýju starfi því í
innsta eðli sínu er Kolbeinn viðkvæm-
ur og kærir sig ekki um athygli fjöld-
ans þótt metnaðargimi og keppnis-
skap beri oft þá hlið ofurliði.
Þannig sýnir nærmyndin af Kol-
beini okkur þrjár hliðar á manni sem
er í senn músíkalskur gleðipoppari,
natinn fjölskyldumaður og harðsvír-
aður viðskiptajöfur.
EIRIR ENGU INNI Á ÍRÓTTAVELLI
Kolbeinn er mikill keppnismaður og vill helst bera sigurorð af andstæðingi sínum.
Hann er allajafna dagfarsprúður og kurteis og oftast grunnt á brosinu en inni á
íþróttavelli skiptir hann um ham og eirir engu.
45