Frjáls verslun - 01.02.1996, Blaðsíða 48
BÆKUR
Bók frá Þorvaldi Gylfasyni, prófessor í hagfræði:
$ ÐUSTU FORVÖD
Bókin er í senn þjóðfélagsgagnrým og hagfræðihugleiðingar. Hún varðar
afkomu Islendinga í nútíð og framtíð. Höfundur er óvæginn í umfjöllun sinni
Heiti bókar: Síðustu forvöð
Höfundur: Þorvaldur Gylfason
Utgefandi og ár: Háskólaútgáfan
- 1995
Lengd bókar: 237 bls.
Hvar fengin: Hjá útgefanda
Einkunn: Hispurslaus og óvægin
þjóðfélagsgagnrýni
VIÐFANGSEFNIÐ
Hér er á ferðinni þjóðfélagsádeila
og ábendingar í senn gagnvart því
sem varðar afkomu fólksins á íslandi í
dag og í framtíðinni. Efnið er þó alls
ekki bundið við ísland heldur er farið
um fjölmörg önnur lönd. Þetta er gert
í þeim tilgangi að veita lesandum inn-
sýn í efnahagsmál í þessum löndum
og um leið auka skilning hans á eigin
umhverfi hér á landi í ljósi reynslunn-
ar að utan. Velt er upp fjölmörgum
spurningum (sjá kynningaramma á
bókinni) og leitast er við að svara
þeim.
Fjallað er um viðfangsefnin í 4 aðal-
hlutum. í þeim fyrsta er fjallað um
hversu erlend viðskipti okkar hafi
dregist aftur úr öðrum þjóðum. í öðr-
um hluta er fjallað um ábyrgð stjórn-
mála- og embættismanna á ástandinu
hér og í Færeyjum. í þriðja hluta er
farið yfir efnahagskreppu Norður-
landa, sagt frá árangri „afburðaland-
anna átta“ í Austur-Asíu og endað á
fáfræði landans í fjármála- og hag-
fræði. Loks fjallar fjórði og síðasti
hlutinn um efnahagsumbætur í Rúss-
landi og Austur-Evrópu og tengsl
þessara ríkja við Evrópusambandið
og í framhaldi er rætt um landbúnað-
arstefiiuna í Evrópu og það leiðir okk-
ur að endingu að vangaveltum um
hugsanlega aðild íslands að þessari
nýju Evrópu sem er að myndast.
HÖFUNDURINN
Þorvaldur Gylfason er prófessor í
hagfræði við Háskóla íslands. Hann
hefur auk þess starfað við rannsókn-
ir, ráðgjöf og kennslu víða um heim,
s.s. við Alþjóðahagfræðistofiiunina í
Stokkhólmi, Alþjóðagjaldeyrissjóðinn
í Washington, EFTA og Princeton
háskólann í Bandaríkjunum, þaðan
sem Þorvaldur lauk doktorsprófi sínu
árið 1976. Eftir hann eru ritgerða-
söfnin Almannahagur (1990), Hag-
fræði, stjómmál og menning (1991)
og Hagkvæmni og réttlæti (1993). Þá
hefur hann skrifað, ásamt tveim öðr-
um norrænum prófessorum, bókina
Markaðsbúskapur (1994) sem koma
mun út á 17 tungumálum.
Þorvaldur hefur einnig verið af-
kastamikill höfundur greina í mörgum
virtustu hagfræðitímaritum á alþjóða-
vettvangi.
Jón Snorri
Snorrason hag-
fræðingur
skrifar reglulega
um viðskipta-
bækur í Frjálsa
verslun.
UPPBYGGING OG EFNISTÖK
Bókin er samtals 21 ritgerð (kaflar)
sem skiptist eins og áður segir í 4
hluta. Allar ritgerðimar í bókinni hafa
birst á prenti áður, á tímabilinu 1993
til 1995. 13 þeirra hafa verið í Morg-
unblaðinu, 4 í Fjármálatíðindum, 3 í
Vísbendingu og 1 í Hagmálum. Þær
eru allar ætlaðar almenningi nema ein
sem höfðar meira til sérfræðinga og
er því þyngri í efnistökum en hinar.
Ritgerðirnar úr Fjármálatíðindum
hafa einnig birst á prenti erlendis.
Bókin er innlent greinasafn höfund-
ar og er hver grein skemmtileg
blanda viðfangsefna og fer „styrkleik-
inn“ í blöndunni eftir því hvar greinin
hefur birst og þar með til hvaða les-
endahóps verið var að ná til hverju
sinni. í léttari blöndunum, sem birst
hafa í Morgunblaðinu, er t.d. meiri
kímni heldur en í hinum þyngri sem
birst hafa í hinum grafalvarlegu Fjár-
málatíðindum, tímariti Seðlabankans.
Stuttar, hnitmiðaðar athugasemdir
líta síðan dagsins ljós í Vísbendingu.
Þessi samsetning hentar Þorvaldi
mjög vel þar sem vettvangur er þann-
ig til fyrir hver efnistök. Hann virðist
mjög jafnvígur á alla möguleikana,
sem þessir prentmiðlar gefa honum,
en persónulega þykir mér alltaf virð-
ingarverðast þegar menn geta sett
saman gagnrýnin texta sem er allt í
senn byggður á góðri fræðilegri þekk-
ingu, skýrum dæmum úr raunveru-
leikanum og kímni. Þetta er einkenn-
ið á vel skrifuðum greinum hjá Þor-
MYNDIR: BRAGI Þ. JÓSEFSSON
48