Frjáls verslun - 01.03.1999, Síða 10
Það var Bryngeir Kristinsson, vaktstjóri Flugfélags íslands á Akureyri, sem afhenti Hallgrími Gíslasyni afmœlisgjöfina, ferð fyrir tvo að eig-
in vali, fyrir hönd Frjálsrar verslunar. FV-mynd: Gunnar Sverrisson.
Heppinn áskrifandi fyrir norðan
Hallgrímur Gíslason, 51 árs Akureyringur, hlaut feröagjöfina frá Frjálsri
verslun í tilefni af 60 ára afmæli blaösins.
allgrímur Gíslason, 51 árs Akur-
eyringur, reyndist hinn heppni
áskrifandi Frjálsrar verslunar
þegar dregið var úr röðum áskrifenda
um afmælisgjöf Frjálsrar verslunar í til-
efni af 60 ára afmæli blaðsins — og hlaut
hann ferð fyrir tvo með Flugleiðum að
eigin vali til einhvers af áfangastöðum
Flugleiða. Frjáls verslun óskar honum til
hamingju.
Þá hlutu 60 áskrifendur bíómiða fyrir
tvo í eitthvert Sambíóanna og verða mið-
arnir sendir áskrifendum á næstunni.
Hallgrímur starfar sem skrifstofumað-
ur hjá Utgerðarfélagi Akureyringa og hef-
ur verið áskrifandi að Frjálsri verslun um
átta ára skeið og segist hafa verið ánægð-
ur með blaðið í gegnum tíðina.
„Eg gerðist áskrifandi að blaðinu á sín-
um tíma þegar ég rak eigið fyrirtæki, hug-
búnaðarfyrirtæki hér á Akureyri. Mig
langaði að fylgjast með því sem væri að
gerast hveiju sinni í viðskiptiheiminum
og fá sérhæft rit um viðskipti — og Frjáls
verslun varð fyrir valinu. Blaðið tekur á
mörgum áhugverðum málum og efnið er
þar hressilega fram sett. Þótt ég reki ekki
fyrirtæki lengur hef ég haldið tryggð við
blaðið sem áskrifandi og hef að sjálfsögðu
hugsað mér að gera það áfram,“ segir
Hallgrímur - sem hefur enn ekki ákveðið
til hvaða borgar hann ætlar að bregða sér
í frí. 33
;
„Elegant“ hádegisverður
Fundir, móttökur
og veisluþjónusta.
Sími: 551 0100
Fax: 551 0035
Jómfrúin
smurbrauðsveitingahús • Lækjargata 4
Jakob Jakobsson smprrebrpdsjomfru
fetrar°Pnu„:
11]0~>8.00
aUa<l°ga.
ATH!
Leigjuni út salinn fyrir fundi og
einkasamkvæmi eftir kl. 18.00.
10