Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1999, Síða 18

Frjáls verslun - 01.03.1999, Síða 18
slóttugur? Róbert Guðfinnsson gerði byltinguna í SH í sam- vinnu við Brynjólf Bjarnason, forstjóra Granda, eftir ítarlegar bollaleggingar með Magnúsi Gústafs- syni, forstjóra Coldwater í Bandaríkjunum en raunarlíka Agnari Friðrikssyni, forstjóra Icelandic Freezing Flants í Bretlandi. Fremur stirt hefur ver- ið á milti Friðriks Pálssonar, fráfarandi forstjóra SH, og þeirra Magnúsar og Agnars. Til stendur að forstjóri Sll verði framvegis stjórnarformaður Coldwater og Icelandic Freezing Flants og gátu þeir Magnús og Agnar ekki hugsað sér að hafa Friðrik í þeirri stöðu. Þeir Jón Ingvarsson og Frið- rik Fálsson voru hlynntir þessari breytingu en vildu hins vegar fara mun hægar í uþpstokkun á fyrir- tœkinu en þeir Róbert og félagar — sem ætla sér að auka bein tengsl framleiðenda hér heima við dótturfélög SH erlendis oggera þau bæði sjálfstæð- ari og alþjóðlegri og draga jafnframt úr starfsemi SH hér heima. Raunar má spyrja sig að því hvern- ig hœgt sé að gera félögin úti sjáljstœðari um leið og forstjóri SII hér heima fær aukið vald yfir þeim. Bylting Róberts Guðfinnssonar átti sér allt að þriggja ára aðdraganda þótt hún hafi engu að síð- ur komið eins og þruma úr heiðskíru lofti yfir ís- lenslit viðskiþtalífi Mörgum finnst Róbert snjall að hafa yfirtekið SH en andstœðingum hans finnst hann hafa verið slóttugur í valdatafli sínu. Fitt er víst; Róbert á mikið undir að SH gangi vel, hann og Þormóður rammi - Sœberg eru með um 1,7 milljarða bundna í Sll - og það fé þarfað ávaxtast. FRÉTTASKÝRING: Jón G. Hauksson MYNDIR: Geir Ólafsson ánudagskvöldið 8. mars sl., kvöldið fyrir aðal- fund SH, töldu liðsmenn Jóns Ingvarssonar að hann fengi um 65% atkvæða á móti um 35% at- kvæða Róberts Guðfinnssonar, í kosningunum daginn eftir um stjórnarformennskuna í SH, Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna hf. En þetta mánudagskvöld var ungt og nóttin átti sömuleiðis eftir að verða nótt hinna löngu hnífa. Róbert hóf um kvöldið samningaviðræður við Eyjólf Sveinsson, stjórnarformann Haraldar Böðvarsson- ar hf. á Akranesi, og þá Harald og Sturlaug Sturlaugssyni, sem stýra HB, um kaup á 7% hlut fyrirtækisins í Sölumið- stöðinni - en hann hafði um nokkurra mánaða skeið ver- ið til sölu. Þau kaup tryggði hann sér svo um morguninn, 9. mars, á ónafngreindri lögfræðistofu hér í bæ. Hann keypti bréfin á genginu 4,5 sem var mun meira en hann hafði áður verið til í að bjóða í bréfin. En Róbert haíði fleiri tromp uppi í erminni. Þótt Síldarvinnslan í Neskaup- stað, með þá Björgólf Jóhannsson framkvæmdastjóra og Kristinn V. Jóhannsson stjórnarformann í broddi fylking- ar, hefðu í samtali við Jón þetta umrædda kvöld lýst yfir stuðningi við hann í formannskjörinu, fór það svo að Síld- arvinnslan, sem á um 5,4% hlut í SH, sveiflaði sér mjög óvænt yfir á Róbert í kjörinu. Ennfremur hafði Róbert síð- ustu daga fyrir aðalfundinn tryggt sér stuðning nokkurra smærri hluthafa, eins og lífeyrissjóða. Úrslit voru ráðin í kjörinu; Róbert fékk 50,035% og Jón 49,965%. Þetta er að vísu svo lítill munur, 0,07%, að það hlýtur að hafa runnið kalt vatn á milli skinns og hörunds hjá Róbert sem, í fé- lagi við ljóra vini sína, þar af tvo framkvæmdastjóra Þor- móðs ramma - Sæbergs, keypti bréf HB í SH á um 472 milljónir um morguninn til að ná sér í þessi völd. Aðal- fundurinn varð sögulegur og viðskiptafrétt ársins komin. Einn valdamesti maður íslensks viðskiptalífs um árabil, Jón Ingvarsson, var fallinn af stalli sem stjórnarformaður Sölumiðstöðvarinnar! Fyrsta verk nýrrar stjórnar SH, föstudaginn 19. mars, var síðan að segja upp forstjóra SH til þrettán ára, Friðriki Pálssyni. Stjórnin sagði honum upp; sex voru með og þrír á móti. Með brottvikningunni voru þeir Róbert Guðfinnsson, Brynjólfur Bjarnason, Granda, Ólafur Helgi Marteinsson, Björgólfur Jóhanns- son, Guðmundur Kristjánsson og Kristján G. Jóhanns- son. A móti voru Jón Ingvarsson, Rakel Olsen og Guð- brandur Sigurðsson. Þetta er afgerandi meirihluti, allt for- ráðamenn stórra frystihúsa, og sýnir að þótt Róbert hefði tapað í kjörinu um stjórnarformanninn var hann engu að síður búinn að ná völdum í fyrirtækinu, mikill meirihluti stjórnarmanna er á hans bandi. HÚfSt fyrir Itremur árum Þótt yfirtaka Róberts Guðfinns- sonar, þessa 42 ára Siglfirðings og stjórnarformanns Þor- móðs ramma - Sæbergs, á Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna hf. hafi komið eins og þruma úr heiðskýru lofti átti hún - eins og allar byltingar - sér nokkurn aðdraganda. Haft er eftir Róbert að fyrir rúmum þremur árum, í árs- byijun 1996, þegar Þormóður rammi var fremur lítill hlut- hafi í SH, með um 5%, og Róbert í stjórn þar, hafi hann sagt Jóni Ingvarssyni, stjórnarformanni SH, það umbúða- laust að hann væri óánægður með Friðrik Pálsson sem forstjóra og teldi hann ekki rétta manninn til að leiða fyr-

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.