Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1999, Síða 29

Frjáls verslun - 01.03.1999, Síða 29
Siðferðið fylgir tímanum „Erótík er á vissan hátt tabú í samfélaginu, en þó allt umlykjandi. Siðferðið í auglýsingum hefur tilhneigingu til þess að fylgja timanum. Ekki er mikið um að brotnir séu siðferðis- múrar í myndbirtingum í auglýsingum. Miklu algengara er að táknmálið sem not- að er í auglýsingum iylgi því siðferði sem ríkir í samfélaginu. Auglýsendum er flestum illa við að stuða markaðinn - eða hluta markaðarins - og notkun erótíkur í auglýsingum getur snúist upp í andhverfu sína ef hún verður beinlínis klúr. Það er eflaust ástæðan íyrir því að erótíkin er ekki notuð meira í aug- lýsingum en raun ber vitni. Hætt er við að auglýsendur, sem misnota erótík, falli í áliti á markaðnum ef auglýsingin er ósmekkleg eða klúr. Erótík er aðallega notuð til að fanga at- hygli ungs fólks. Ungt fólk er almennt fijálslyndara og opnara fýrir nekt og eró- tík. Unga fólkið er gangandi hormóna- sprengjur og líkamleg fegurð og atgervi eru ofarlega í hugum þess. Erótíkin hlýtur því að teljast sterkt vopn til að fanga at- hygli þess. Við á Hvíta húsinu gerðum út á erótík í Atlas-auglýsingum okkar iyrir Eurocard Atlas. Þeim er eingöngu beint að ungu fólki og þar ræður aldur mark- hópsins öllu um að við förum nokkuð djarfa leið við auglýsingar kortsins. Við myndum til dæmis aldrei beita erótíkinni ef ætlunin væri að höfða til markhóps 65 ára og eldri, þá væri rómantíkin vænlegri kostur. Atlas auglýsingarnar eru tilvísun í vöruheitið og táknið sjálft. Atlas kortið er ferðakort og ferðalög eru líklega áhuga- mál ungs fólks númer tvö. Auglýsingarnar vísa jafht lil erótíkur og ferðalaga saman- ber vígorð kortsins „Eurocard Atlas, farðu alla leið!“ Markaðssetning Atlas kortsins heppnaðist vel og og markaðshlutdeild kortsins hefur vaxið stórlega. Hvort það er erótíkinni að þakka eða þrátt fýrir eró- tíkina, er hins vegar erfiðar að Ijölyrða um,“ segir Sverrir. 35 Erótík í fjármálum Atlas kortunum er eingöntju beint að ungu fólki og þar ræður aldur markhópsins öllu um að við förum nokkuð djarfa leið i aug- lýsingunum. Við rnyndum til dæmis aldrei beita erótikinni el ætlunin væri að höfða til markhóps 65 ára og eldri, bá væri róman- tikin vænlegri kostur. rótíkin sem notuð er í auglýsing- unni um Djæf-ísinn frá Emmess vakti á sín- um tíma verðskuldaða athygli og þótti hafa heppnast vel. Það var auglýsingastofan AUK sem hannaði Djæf-auglýsinguna kunnu, en Elísabet Ann Cochran er hönn- unarstjóri auglýsinga- stofunnar. „Ekki var stefnt að miklum fjárútlátum í Djæf-auglýsinguna og var hún ódýr í vinnslu. Elísabet Ann Cochran, hönnunarstjóri hjáAuk, segir að erótík í auglýsingum beri keim af tíðarandanum í þjóðfélaginu. Það sé meira leyfilegt, bæði í kvikmyndum sem auglýsingum, en áður. FV-mynd: Kristín Bogadóttir. ueric) erólísÁur ElísabetAnn Cochran, hönnunarstjóri hjáAUK, segirað erótísk auglýsinggeti gert meiri skaða en gagn hitti hún ekki í mark. í stað þess að sýna eingöngu vöruna var ákveðið að beita erótíkinni og höfða til ungs fólks. Beitt var slagorðinu: I hita leiksins. Unga fókið er jú markaðshópurinn sem við vild- um ná til,“ segir Elísabet Ann. „ís getur verið mjög erótískur. í miklum hita, eða hita leiksins, getur ísinn verið eró- tík. Ungt fólk er oft ansi frumlegt í sínum hugsunarhætti og tiltölulega auðvelt er að ná til þess með þessum hætti. Djæf ísinn hefur alltaf selst vel en erfitt er að segja til um það hvort erótíska auglýsingin átti þar meginhlut að máli. í heildina séð má segja að auglýsingin hafi heppnast ágæt- lega miðað við hve ódýr hún var í vinnslu. Því ber ekki að neita að auglýsingin ber nokkurn keim af tíðarandanum. Núna er meira leyfilegt í auglýsingum var fyrir nokkrum áratugum síðan. Unga fólkið er meðvitaðra, enda verð- ur það fýrir stöðugu áreiti í erlendum auglýsingum sem margar hveijar eru í djarfari kantinum. Þrátt fyrir að meira sé leyfilegt í auglýsingum er ekki þar með sagt að allar gáttir séu opnar. Gefa verður gaum að því við hveija er verið að tala í auglýsingunni og gæta verður að þvi að hún birtist ffammi fyrir al- þjóð - þótt markaðshópurinn sé unga fólkið. Auðvelt er að gera meiri skaða heldur en gagn ef auglýsingin hittir ekki í mark. Það er alltaf gaman ef erótík tekst vel í auglýsingum eins og raunin var í Djæf-auglýsingunni,“ segir Elísabet Ann. SD Auglýsingin á Djcef-ísnum frá Emmess. Slag- orðið var: í hita leiksins. Þar kom i Ijos a getur verið erótískur. Verið var að na tú ungs fólks. 29

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.