Frjáls verslun - 01.03.1999, Page 37
komu uppsjávarfyrirtækja á þessu
ári, í því árferði sem blasir við.
Hráefnisverð hefur haldist of
hátt miðað við verð á afurðum
og það getur skipt sköpum til
hvaða ráða fyrirtækin geta grip-
ið til að lækka það og styrkja
þannig trú hluthafanna á fram-
tíðina.“
Þorsteinn taldi líklegt að
lækkun á gengi hlutabréfa sem
tengja mætti við lækkun á
loðnuafurðum væri þegar
komin fram.
„Mér finnst ósennilegt að um meiri
lækkun verði að ræða miðað við gefiiar
forsendur en ef ástandið versnar enn mun
gengi hlutabréfa þessara félaga væntan-
lega þróast í takt við það. Það skiptir hins
vegar mestu máli hver þróunin verður til
lengri tíma litið á þessum markaði. Slæm
ijárhagsstaða fyrirtækja í Suður-Ameríku
virðist valda miklum framboðsþrýstingi nú
en til lengri tíma litið skiptir auðvitað
mestu máli hvar markaðurinn nær jafn-
vægi.“
Ástandið aldrei verið verra Jón Reynir
Magnússon, forstjóri SR-mjöls hf., sagði í
samtali við Frjálsa verslun að ástandið væri
mjög slæmt og markaðurinn hefði í raun-
inni hrunið eins og spilaborg og mjög fáir
aðilar náð að selja eitthvað magn meðan
verðið hrapaði og því væri birgðasöfnun
mjög mikil.
„Þetta er skólabókardæmi um áhrif
framboðs og eftirspurnar. Tonnið af lýsi fór
á níu mánuðum úr
800 dollurum í tæpa
300 dollara.
Ég tel að það að
safna upp mjölbirgðum
í geymslur erlendis sé
slæmt fyrir markaðinn
því það gerir vandann
mjög sýnilegan og virk-
ar letjandi á eftirspurn-
ina. Það má segja að það
sé skárra að fylla allar
geymslur hér heima.
Þetta hefur alltaf haft
slæm áhrif á markaðinn.
Ég minnist þess ekki að
mjöl hafi verið flutt í geymslur erlendis í
þessum mæli áður. Þetta hafa verið ein-
angruð tilvik og sjaldgæf. Það eru dæmi
um að menn séu að flytja lýsi út í geymslur
líka og ég held að það sé einsdæmi.
Eiginlegt geymsluþol er ekki vandamál
því bæði mjöl og lýsi getur geymst í að
minnsta kosti ár.
Við erum að vona að markaðurinn hafi
nú stöðvast og verðið lækki ekki frekar.
||Sr í öllum leigubílum Hreyfils
jpr Hreyfilsbílarnir eru nú búnir sérhæfðum tölvum
r af fullkomnustu gerð.
Þetta þýðir mun betri þjónusta við þá sem kjósa að skipta við Hreyfil
í fyrsta lagi er nú tekið við öllum greiðslukortum.
DEBET kort, KREDIT kort allan sólarhringinn,
-ekkert mál!
( öðru lagi er nú hægt að stýra staðsetningu bílaflotans eftir '
álagi hverju sinni. Þetta þýðir styttri komutími Hreyfilsbíla.
handan við hornið!
Bílarfyrir 4-8farþega og bílarfyrir hjólastóla
^1
37