Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1999, Qupperneq 41

Frjáls verslun - 01.03.1999, Qupperneq 41
STJÓRNMÁL Það virðist augljóst - og skoðanahannanir benda til hins sama - að Samfylkingin getur alls ekki gert sér vonir um að ná samanlögðu fylgi þeirra tjögurra flokka sem að henni standa erum við nú að tala um fjórðu kynslóð stjórnmála- og embættísmanna. Nýr aðall er löngu kominn upp - en verður í tílfelli stjórnmálamannanna að fá sína uppáskrift frá kjósendum á ijögurra ára frestí. Þessi aðall stjórnar umræðunni í þjóðfélaginu meira eða minna. Þar eru það svokölluð hægri blöð, sem sjá um gagmýnina á stjórnvöld. Þau eru útbreiddari en blöð stjórnarllokksins, oft skelegg og hörð, og nákvæm í úttektum á gerðum stjórnvalda og stjórnmálamanna, en hafa samt lítil áhrif á hegðun kjósenda. Þvert á heimsálit- ið um hinn frjálsa norræna borgara kýs hann að stærstum hluta stjórnarflokkinn með mismunandi glöðu geði. Hann tekur ekki áhættur. Hagur hans er kannski ekki nógu góður að eigin áliti, en hefur farið batnandi. Hlutlausir embættísmenn ríkis- ins leiða sannfærandi líkur að því í fjölmiði- um að áframhaldandi stöðugleiki í stjórn- arfari og Qármálum tryggi enn frekar hag kjósandans. Hann kærir sig þá ekki um kerfisbreytíngu með óljósum fyrirheitum um stóra bónusvinninga. Það er klárt að í slíku kerfi snúast kosningar um völd. Ann- að hvort er kjósandinn að ákveða hveijir ominn? bendir til annars en ad / fékk Olaf Hannibalsson skemmtilega um stjórnmál. fara með völdin, ellegar þá að minnsta kosti hverjir skuli ekki fara með þau. í hinu engilsaxneska kerfi með ein- menningskjördæmum er kjósandinn þar að auki að gera upp á milli manna. Hann er að velja sér persónulegan fulltrúa, sem hann treystir. Fræðilega séð að minnsta kosti eru ekki tíl nein “örugg sæti” í því kerfi. I nútímafjölmiölunarsamfélagi er þetta kerfi hins vegar straumlínulagað á þann veg að finna trúverðugan leiðtoga með sannfærandi liðsheild, sem nær að sannfæra kjósandann um að á kjörtímabil- inu verði hag hans séð borgið. Tony Blair er gott dæmi um þetta. Tök forystu breska Verkamannaflokksins hafa verið hert á öll- um þeim fulltrúum hans sem aðstöðu hafa til að kynna stefnu flokksins út á við, frávik eru ekki liðin, liðsheildin er fyrir öllu og þar skiptir leiðtoginn mestu. Reyndar fylg- ir Tony Blair þar reyndri formúlu sem bar góðan árangur. Margaret Thatcher ger- bylti enska þjóðfélagskerfinu á 12 ára valdatíð, þar sem Ihaldsflokkurinn var æv- inlega í minnihluta með um 4043% at- kvæða. Hvernig réttiæta Bretar það að minnihlutinn getí tekið völdin og notað þau tíl að gera byltingu, ef því er að skipta? Meginröksemdin er sú, að kjósendur verði að hafa glöggt val um hvern þeir vilji hafa við völdin. Festa í stjórnarfari er höfuð- atriði. Ábyrgðin verður að vera ljós. Sam- steypustjórnir eru hryllingur að matí for- ystumanna Breta í báðum stóru flokkun- um, því að þá veit kjósandinn ekki lengur hveijum hann er að refsa og hveijum að umbuna. Til þess að stjórnarskipti séu rétt- lætanleg þarf það að fara saman að hann vantreysti stjórninni en treystí stjórnarand- stöðunni. Þetta skiptí miklu meira máli en að öll atkvæði séu jafngild. Siðan er þriðja kerfið sem lítur á kosn- ingar nánast sem skoðanakönnun um lifs- skoðanir kjósenda. Hugmyndafræðin skipt- ir miklu meira máli en framkvæmdin. I því kerfi er höfuðáhersla á að öll atkvæði séu jafngild. Flokkar eru gjarnan margir, kannski 4 -12. Samsteypustjórnir regla ffemur en undantekning. I stað stjórnar- stefhu koma málamiðlanir og hrossakaup. Kjósandinn getur engan krafið ábyrgðar í kosningum og hann hefur engin áhrif á hveijir taka höndum saman um stjórn landsins. Kosningakerfið er þá líka gjarnan fullkomið hlutfallskosningakerfi með land- ið allt eitt kjördæmi. Allir reyndustu stjórn- málamennirnir eru í „öruggum sætum“. Kjósendur ná ekki til þeirra. Urslitin eru að mestu fyrirfram ákveðin, nema hvað ein- hveijar sveiflur tíl eða frá geta ráðið styrk flokka til að komast í ríkisstjórn. Dæmi eru til þess að smáflokkar geti haldið slíkum rikisstjórnum í gíslingu með ógnþvingun- um um lengri eða skemmri tíma, eins og stjórnmálaflokkar rétttrúnaðargyðinga af ýmsu tagi í Israel síðustu árin. Hitt getur líka komið fyrir að stjórnarþátttaka splundri smáflokki þegar hann neyðist til að taka afstöðu til praktískra mála. Græn- ingjar í Þýskalandi eru um þessar mundir í slíkri klemmu, þegar utanrikisráðherra þeirra verður að taka afstöðu til praktískra mála í stríði NATO gegn Júgóslavíu. Hvorki kosið um stefnur né menn Segja má að hér á landi búum við í höfúðdráttum við síðastnefnda kerfið, kerfi samsteypu- stjórna, sem eru myndaðar eftir kosningar, stundum þvert á þau skilaboð kjósenda sem komu ffam í kosningunum. Dæmi um það er að eftir kosningarnar 1978, þegar A- flokkarnir unnu sinn stærsta sigur í sög- unni, var það Framsóknarflokkurinn, sem myndaði rikisstjórn, en hann hafði einmitt beðið afhroð í þeim kosningum. Annað mál er það að sú ríkisstjórn entíst ekki nema árið og þá var kosið að nýju og sveifl- an gekk tíl baka. Annars höfum við bara haft eina hreina flokksstjórn við völd allar götur frá fúllveldinu 1918, flokksstjórn Framsóknarflokksins 1927-'31 með skil- yrðislausum stuðningi Alþýðuflokksins. Aðrar stjórnir hafa verið samsteypustjórn- ir, með þeim undantekningum þó að nokkrum sinnum hafa eins flokks minni- hlutastjórnir setíð skamma hríð sem starfsstjórnir, einkum í sambandi við breytingar á kosningalöggjöfinni. Allar breytingar á kosningalöggjöfinni hafa líka verið í þá átt að jafna atkvæðavægi milli flokka með kjördæmabreytingum og þá um leið hefúr kosningakerfið þróast frá einmenningskjördæmum í upphafi til lista- kosninga í stærri kjördæmum. Þannig má segja að meðan ekki eru stórfelldar sveifl- ur í fylgi flokkanna sitji þorri þingmanna í „öruggum sætum", að loknum uppstílling- um eða prófkjörum innan flokkanna og að kosningarnar sjálfar snúist aðeins um val á örfáum þingmönnum og að ákvarða styrk- leikahlutföllin milli flokkanna. Þáttaskíl - upplausn fjórflokksins Það sem helst telst til tíðinda í þessum kosningum er upplausn fjórflokksins, sem markar þá upphaf þriggja flokka kerfis þar sem Fram- sóknarflokkurinn gegnir lykilhlutverki um myndun stjórnar. Þótt vinstri grænir séu líklegir tíl að ná að komast á laggirnar með 6-8% fylgi og fjóra, fimm þingmenn er það alger eigindarbreytíng í stjórnmálunum ef upp rís flokkur á vinstri væng með fylgi sem slagar hátt í fylgi Sjálfstæðisflokksins, en Framsókn verði í þriðja sætí. Það virðist augljóst - og skoðanakann- anir benda tíl hins sama - að Samfylkingin getur alls ekki gert sér vonir um að ná samanlögðu fylgi þeirra Ijögurra flokka sem að henni standa. Auk vinstri-grænna 41
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.