Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1999, Page 62

Frjáls verslun - 01.03.1999, Page 62
Einu sinni í viku funda eigendur Rúmfatalagersins meö öllum lykilmönnunum í rekstrinum. Talið frá vinstri: Agnes Geirsdóttir skrifstofustjóri, Jóhannes Haukur Jóhannesson, verslunarstjóri í Hafnarfirði, Kristinn Þórir Ingibjörnsson, verslunarstjóri í Holtagörðum, Þór Jónsson, verslun- arstjóri í Smáratorgi, Nils Brynjolvstorá rekstrarstjóri, Jákup Purkhus framkvæmdastjóri, Jákuþ Jacobsen eigandi, Guðrún Hafdís Arnljótsdótt- ir, sem annast tollskjöl og fleira, og Egill Erlendsson, verslunarstjóri í Skeifunni. í einu vildu allir vera hérna í hverfinu og allir vildu leigja hérna. Þetta gengur vel og betur en nokkur leið var að reikna út. En þetta var auðvitað heilmikil áhætta en á meðan maður er ungur er gaman að taka áhættu.“ Velta tæpum tveimur milljörðum jakob á sjálfur 4/5 í Rúmfatalagernum en félagi hans, Jakob Purkhus, á 1/5. Samtals eru starfsmenn fyrirtækisins yfir 150 á hverj- um tíma og heildarvelta síðasta árs var tæpir tveir milljarðar að Færeyjum og Kanada meðtöldum. Hver verslun er rekin sem sjálfstæð ein- ing sem verslunarstjóri sér alfarið um. Yfir öllu saman er rekstrarstjóri sem er einnig Færeyingur, Nils Stora. Aðrir yfirmenn eru íslendingar og íslenskur verslunar- stjóri stýrirversluninni í Vancouver. Sjálfur er Jakob yfir þessu öllu saman en segist lít- ið hafa sótt stjórnunarnámskeið. „Við höldum fund með verslunarstjór- unum einu sinni í viku. Við fylgjumst grannt með hverri fyrir sig og berum þær saman hvað kostnað varðar. Eg finn strax á mér hvort ég treysti fólki eða ekki og ræð fólk í vinnu eftir því. Þetta bregst mér aldrei. Eg treysti mínum mönnum alveg og vil ekki skipta mér of mikið af daglegum smáatriðum. Maður má ekki vera að stressa sig of mikið. Það sem ég kann að stjórna fólki lærði ég á sjónum í gamla daga. Skipstjórinn fer ekki sjálfur niður í lest en hann verður að geta treyst því að þar sé allt gert sem þarf að gera og á réttan hátt. Ef ég vil virkilega slappa af þá fer ég niður í búð að vinna, þar fæ ég góð- ar hugmyndir og tala beint við viðskipta- vinina.“ Innan skamms mun risa 5.000 fermetra viðbygging við Smáratorgið þar sem Bón- us mun opna nýja matvöruverslun og fleiri nýjar verslanir munu verða til húsa. „Það á áreiðanlega eftir að ganga fínt. Það hefur allt gerst miklu hraðar hér en nokkur þorði að vona. Fyrst þorði enginn að vera með en svo verða þáttaskil og eng- inn þorir að vera ekki með.“ Flutti til islands fyrir fjórum árum Fyrstu árin sem Jakob stóð í verslunarrekstrinum bjó hann í Færeyjum og ferðaðist mjög mikið á milli landanna eftir þörfum. Hann gerði breytingu á sínum högum tyrir íjór- um árum þegar hann fluttist ásamt Eriku konu sinni og fimm börnum þeirra á aldr- inumlO til 2 ára til íslands. „Það er gott að búa hérna og ég var far- inn að vera svo mikið hérna að okkur fannst betra að flytja bara með alla fjöl- skylduna. Fyrsta árið var svolítið erfitt en nú kunna allir mjög vel við sig. Islenskt samfélag hefur tekið gríðarleg- um breytingum á þeim árum sem ég hef starfað hér og mestar hafa breytingarnar verið síðustu fimm árin. Það er ekki hægt að bera saman nú og þá. Stærsta vandamál Islendinga er, eins og Færeyinga; við miss- um of mikið af unga fólkinu úr landi. Ef I/mdon býður meiri lífsgæði þá flytur það þangað.“ En hver verður framtíð Rúmfatalagers- ins. Mun Jakob láta við það sitja að reka Rúmfatalagerinn eða færa sig í aðrar starfsgreinar? „Rúmfatalagerinn er sérstakt konsept sem ég vil fara varlega með. Það eru oft að koma menn til okkar með ýmsar vörur sem þeir vilja að við seljum en fyrst spyij- um við alltaf hvort þær passi inn í Rúm- fatalagerinn. Ef verslunarstjórinn segir nei þá segjum við líka nei og við erum fljótir að ákveða okkur. Eg sé ekki tyrir mér að við fjölgum verslunum hérna á íslandi. Við höldum áfram að byggja upp verslanir annars stað- ar í heiminum í samstarfi við aðra. Það er erfitt að tjölga í tvær verslanir þegar þú átt eina. Það er sennilega eins erfitt eins og að fjölga verslunum úr fimm í tíu.“ Jakob virkar ekki eins og heíðbundinn forstjóri íyrirtækis sem er á íslenskan mælikvarða orðið verulega stórt. Hann er ekki með bindi og virðist vera afskaplega rólegur. „Minn vinnudagur er frekar opinn. Eg hef tíma til þess að skipuleggja hluti fram í tímann, fara á vörusýningar erlendis og fleira skemmtilegt. Eg hef lært að skipu- leggja mig og slaka á. Þegar maður eignast tvær verslanir áttar maður sig á því að mað- ur getur ekki verið á tveimur stöðum. Mað- ur verður að geta treyst öðrum. Þetta er þægilegt starf og mjög skemmtilegt, sérstaklega þegar gengur vel.“ BD 62

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.