Lesbók Morgunblaðsins


Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1966, Qupperneq 14

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1966, Qupperneq 14
Píanóið, sem flestir Reykvíkingar og fleiri, er kunnu hljóðfæraslátt, höfðu lært á. Fyrir ofan er mynd af Ástu von Jaden. í Ibréfi frú Önnu til dóttur sinnar í V’ín sumarið 1915 segir hiún að fátt fóik sé nú í bænum um þær mundir. Allir sem geti fari með börn sín upp í sveit og fjiöldi manna liggi við út í Viðey. Vii’ðist Viðey vera sumarviðlegustaður ■ReykvScinga um þær mundir, og í öðru bréfi til Ástu von Jaden segir bún frá eldgosi í Skaftárjiökli. Segir ihiún að lengi hafi ekki verið vitað hvar gosið væri, en haldið hafi verið að það væri í Skeiðarárjökli þar til hið sanna hafi komið fram. Hafi sólarlagið verið sér- staklega rautt um þessar mundir og i Skaftafellssýslu hafi allt leikið á reiði- skjiálfi. Bréfið er frá 1903 og í þvtí segir hún jaifnframt að séra S. Sivertsen frá Hofi í Vopnafirði, hafi sagt sér, áð mik- ið öskufall ífaafi orðið þar nyrðra, en jþað hafi fallið á smjó og téldi hann að askan myndi ekki gera neinn skaða, beldur myndi hún verða góður áburð- ur, er voraðL F iú Anna Pjetursson andaðist 5. júnií 1921 á 77. aldursári. Daginn áður hafði hún kennt síðasta sinni. Þar með var horfinn brautrýðjandi í íslenzku tónlistarlífi, kona, sem allt sitt líf hafði þá köllun að kenna fólki að leika á bljóðfæri og að breiða út tónlistar- mennt, og tók aldrei nema 50 aura fyr- ir kennslustundina. Á 60 ára afmæli hennar hafði Benedikt Gröndal ort til hennar afmælisljóð, þar sem hann sagði: „>ín ævi var öll lögum og unaðstónum prýdd, og lengi hún lifir í sögum með lífi og þökkum skrýdd — og nú er mín óskin eina, að allt megi gleðja þinn hag með lukkunnar hiljóminn hreina og helga iþinn afmælisdag.“ Hagalagðar Engin hrakspá. Kunnleikur var mikill með þeim Sveini lögmanni og Gísla biskupi Magnússyni. Ingibjörg frú hans, Sig- urðardóttir, þótti nokkuð sérleg — það var sagt einhverju sinni að Sveinn lögmaður var staddur að Hól- um og átti tal við frú Ingibjörgu með glettni nokkurri, bar svo til, að hrafn sat á stofustöng og gall. Þá kvað hann þetta: Hrafn situr á hárri stöng, faöldar mark á taki: Ei þess verður ævin löng, sem undir býr því þaki. Hún svaraði: Engin hrakspá er það mér þó undan gangi ég nauðum, en ef hann kvakar yfir þér ekki seinna dauðum. (Espólín). HÝNÓTT Eftir Svein Bergsveinsson Hve Ijúft var það að elska. einu sinni, eina nótt og síðan ekki meir. Ævintýri eru mér í minni —• man ég eitt, tvö, þrjú. — en ekki fleir. En alltaf skulu ævintýri gerast eins og snjóa leysir vorsins þeyr. í hótelbarsins Hliðskjálfinni sat ég, hún var Gerður, ég var guðinn Freyr. Þarna voru engir brunablossar, bara það að ástin kom til mín. Þarna voru engir kysstir kossar, kampavín ei veitt — né hin frá Rín. Það var ei dansað, var ei heldur sungið — það verður hver að þreyja örlög sín. Eiturkaldar ár á milli streyma og aftra mér að koma heim til þín. Löng er hýnótt — hugur minn ei blundar, hef ég þó minn skósvein sent á stað. Hefur hann Gerði leitt til Barralundar? Og líka notiö þess, sem ég um bað? Er hún sú, sem einlægt faðminn býður, ef að ríður sendiboði 1 hlað? — Sem skáldi var mér unnt þó einu sinni að elska og þreyja — og festa það á blað. Berlín, 18. nóv. 1966, síðasta erindið breytt og bætt 23. nóv., fjórðu línu í öðru erindi breytt síðar, þó ég só enn ekki fyllilega ánægður með hana þ. 1 .des. s. á. Kjarval: Valllendi og heiðríkja... 38 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 24. desember 1966.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.