Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1984, Blaðsíða 46
Jólaleikrit sjónvarpsins að
þessu sinni verður Gullna
hliðið eftir Davíð Stefánsson
með tónlist eftir Pál ísólfs-
son. Hingað til höfum við að-
eins séð Gullna hliðið á
leiksviði og verður nýstárlegt
að sjá þessa gömlu en sígildu sögu í þeim
búningi, sem filman og nútíma rafeinda-
tækni gera mögulegan.
Upptaka fór fram í myndveri sjónvarps-
ins fyrripartinn í sumar, en leikstjóri var
Ágúst Guðmundsson, einn af okkar snjöll-
ustu kvikmyndamönnum. Hann fékk þá
hugmynd að skeyta saman leikinn og ein-
hverskonar myndverk og tók Snorri
Sveinn Friðriksson listmálari og forstöðu-
maður leikmyndadeildar sjónvarpsins að
sér að mála myndir með vatnslit, sem yrðu
hvorttveggja í senn: Baksvið og forgrunn-
ur leiksins. Aðrar leikmyndir, t.d. baðstofu
í upphafi leiksins, gerði Gunnar Baldurs-
son, leikmyndateiknari hjá sjónvarpinu.
Andrés Indriðason stjórnaði upptöku.
Við tökuna voru notaðar 5 myndavélar,
en hin endanlega útkoma fæst með raf-
eindatækni. Leikarar eru myndaðir á móti
bláum grunni, en síðan er hægt að eyða
þessum grunni og þegar búið er að vinna
saman tökuna með leikurunum og vatns-
litamyndirnar, þá virðist svo sem leikar-
arnir standi og gangi um inni í vatnslita-
myndinni og allt kemur eðlilega út. Þetta
er tímafrek tækni og þetta er í fyrsta sinn,
sem henni er beitt í stóru verki.
Lesbók átti tal við Hinrik Bjarnason,
forstöðumann Lista- og skemmtideildar
sjónvarpsins, í sambandi við hugsanlegar
sýningar á Gullna hliðinu utan íslands.
Sagði Hinrik, að einu sinni á ári kæmu
sjónvarpsmenn á Norðurlöndum saman á
einskonar kaupstefnu fyrir sjónvarpsefni.
Hinrik fór í haust á eina slíka kaupstefnu
og þar bauð hann Norðurlandamönnum
Gullna hliðið ásamt öðru sjónvarpsleikriti.
Viðtökur urðu svo einstaklega góðar, sagði
Hinrik, að fjórar Norðurlandaþjóðanna
völdu Gullna hliðið númer eitt og ein þjóð-
anna setti þaö í annað sæti.
Til samanburðar má geta þess, að Finn-
ar buðu fram 6 verk og komu aðeins einu
að. Gullna hliðið verður sem sagt jólaleik-
rit í sjónvarpi á öllum Norðurlöndunum og
mun það vera í fyrsta sinn sem íslenzkt
sjónvarpsefni hlýtur svo góðar viðtökur.
Að sjálfsögðu verður settur texti inná
myndina á Norðurlöndum.
GS
Ljósmyndir:
Emar Páll Einarsson, sem jafnframt var fyrsti
kvikmyndatökumaður Gullna hliðsins.
GULLNA
HLIÐIÐ
í SJÓNVARPINU
UM JOLIN
Laufskáli í himnaríkj. Vatnsiitamynd eftir
Snorra Srein, sem síðan rerður rettrangur
leiksins.
Leikarar og sviðsmynd komin saman í eitt: Englar og útraldir í laufskála og fiðlungur, sem
Egill Ólafsson leikur, er að skemmta þeim.
Englar og útraldir. Upptakan fer fram á móti bláum grunni, en síðan koma ratnstítamynd-
irnar í stað bláa litarins.
Snorri Sreinn Friðriksson málar mynd í
myndreri sjónrarpsins.
Guðrún Þ. Stephensen leikur kerlingu, sem
bér er í himnaríki og ræðir rið fyrrrerandi
sreitunga sína, sem Þráinn Karlsson og Edda
Björgrinsdóttir leika.
Agúst Guðmundsson leikstjóri Gullna hliðs-
ins.
46