Morgunblaðið - 06.01.2001, Page 8

Morgunblaðið - 06.01.2001, Page 8
FRÉTTIR 8 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Námskeið í sjálfstyrkingu Efla sjálfs- ímynd unglinga Um þessar mundirer verið undirbúanámskeið fyrir unglinga 13-16 ára þar sem kennd verður sjálf- styrking. Það er Foreldra- húsið, Vonarstræti 4b, sem stendur fyrir þessum námskeiðum. Jórunn Magnúsdóttir er forstöðu- maður Foreldrahússins og hún var spurð hvert væri markmiðið með þessu? „Við fórum af stað með námskeiðin vegna þess að við vorum spurð um slík námskeið. Við fundum að það skorti mjög að ung- lingum væri hjálpað til að öðlast sjálfsvirðingu og sjálfstraust. Markmiðið hjá okkur er sem sé að efla sjálfsímynd og félagslega hæfni unglinganna. Fjallað verð- ur um tilfinningar og hvernig ein- staklingi líður frá degi til dags. Leiðbeint er hvernig ungmenni geta ráðið bót á neikvæðum til- finningum sínum og einnig hvern- ig þau geta brugðist við skila- boðum sem þeim berast frá öðrum. Uppbygging sjálfsvirð- ingar er einn af lykilþáttum nám- skeiðsins. Þetta eru forvarnar- námskeið og þarna eru ekki teknir inn unglingar sem eru komnir í neyslu. Þetta námskeið er hluti af námskeiðinu Börn eru líka fólk, en það námskeið er fyrir 6 til 12 ára börn.“ – Hvað eru þetta löng nám- skeið? „Þau standa tíu vikur, mætt er einu sinni í viku frá klukkan 19.30 til klukkan 21 í Foreldrahúsinu, Vonarstræti 4b.“ – Er mikil þörf á svona sjálf- styrkingarnámskeiði? „Já, við teljum að það sé mikil þörf á að styrkja sjálfsmynd ung- linga, vera jákvæð við þá. Það er svo oft horft á neikvæðu hlutina hjá unglingum og það vill gleym- ast að sjá hið jákvæða í fari þeirra. Fólk ætti að horfa á það góða sem unglingar þess eru að gera og hrósa þeim fyrir það.“ – Hvað marga takið þið inn á hvert námskeið? „Við tökum hámark sex ung- linga og það er til þess að geta sinnt þeim öllum vel og hlustað á þá, gefið þeim þann tíma sem þeir þurfa hver og einn.“ – Hver leiðbeinir á námskeið- unum? „Ólöf Ásta Farestveit, uppeld- is- og afbrotafræðingur, hefur yf- irumsjón með öllum sjálfstyrk- ingarnámskeiðunum. Hún sér einnig um námskeiðin fyrir yngri börnin.“ – Hvernig er unnið á þessum námskeiðum? „Námskeiðin fyrir 6 til 12 ára eru ætluð börnum sem búa við erfiðar aðstæður, svo sem alkohólisma, geðræn vandamál, ofbeldi eða annars konar erfið- leikasem valda óöryggi. Þarna eru unnið bæði með börnum og foreldum sem koma með á námskeiðin. Það er sálfræðingur sem talar við foreldrana en ráðgjafi sem sér um börnin. Á þessum nám- skeiðum er verið að gefa börnunum kost á að vinna úr erfiðleikum sem þau hafa þurft að glíma við, hjálpa þeim að þekkja tilfinningaleg viðbrögð sín og vinna á uppbyggilegan hátt með tilfinningar sínar. Það er ver- ið að aðstoða þau við að skilja að þau geta ekki borið ábyrgð á því ástandi sem skapast í kringum þau við erfiðleika fullorðins fólks. Þeim er hjálpað við að mynda virk samskipti og að rækta með sér hæfileika og til að leysa vandamál og komast ósködduð í gegnum lífið. Markmiðið er gefa þessum börnum jákvætt sjálfs- mat og kenna þeim hóflegt af- skiptaleysi gagnvart aðstæðum sem þau geta engin áhrif haft á.“ – Eru námskeiðin fyrir ung- linga öðru vísi uppbyggð? „Já, þau eru líka forvarnanám- skeið.Við beinum sjónum að ung- lingnum, foreldrunum er boðið að koma tvisvar og hitta ráðgjafann. Þetta eru góð námskeið, t.d. fyrir unglinga sem lent hafa í einelti eða eru mjög feimin og óörugg. Við beinum sjónum okkar einkum að því að efla sjálfstraust og sjálfsvirðingu. “ – Hvað er erfiðast fyrir ung- linga að mæta í hinu daglega um- hverfi? „Það er að þora að standa með sjálfum sér. Þora að segja nei. Skilja að maður þarf ekki að vera eins og allir aðrir. Fullorðið fólk vill láta bera virðingu fyrir sér en á sama hátt eiga hinir fullorðnu að sýna unglingum virðingu.“ – Hafið þið haldið mörg svona námskeið? „Já, við byrjuðum á þessum sjálfstyrkingarnámskeiðum fyrir ári. Þau hafa gefist mjög vel og við höfum heyrt frá foreldrum að þau hafi verið ánægð og séð já- kvæða breytingu á unglingnum sínum. Unnið er með listmeðferð og tjáningu á myndrænu formi. Þeim er kennt að setja sig í spor annarra og átta sig á hvað liggur á bak við hegðun þeirra hverju sinni.“ – Hvað kosta svona námskeið? „Fyrir yngri hópinn, þar sem foreldrar koma með, kostar tíu vikna námskeið einu sinni í viku 13.000 krónur en nám- skeið í sjálfstyrkingu unglinga í tíu vikur einu sinni viku kostar 8.000 krónur.“ Jórunn Magnúsdóttir  Jórunn Magnúsdóttir fæddist í Reykjavík 6. september 1944. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla verknáms árið 1961. Hún dvaldi ár í Banda- ríkjunum eftir skóla við ensk- unám. Hún hefur starfað sem húsmóðir og við versl- unarstörf. Nú er hún for- stöðukona Foreldrahússins, Vonarstræti 4b. Jórunn er gift Stefáni H. Stefánssyni, fram- kvæmdastjóra Húss verslunar- innar, og eiga þau fjögur börn. Fullorðnir vilja láta sýna sér virðingu, þeir eiga að sýna ungling- um hana á móti. NÝR leikskóli við Krók í Grinda- vík mun taka til starfa þann 1. febrúar en framkvæmdir við leik- skólann hófust síðastliðið vor. Leikskólinn er byggður af Nýsi- Ístak og er einkaframkvæmd, þ.e. Grindavíkurbær leigir hann af verktakanum. Bæjaryfirvöld buðu út reksturinn og var fyrirtækið Rekstur og ráðgjöf með hagstæð- asta tilboðið og reksturinn mun því verða í þess höndum. Hulda Jóhannsdóttir, sem hefur verið ráðin leikskólastjóri nýja skólans, sagði að um 15 manns myndu að jafnaði vinna við skól- ann sem verður fjögurra deilda. Hún sagði að ekki væri enn búið að ákveða nafn á skólann en bæj- aryfirvöld standa fyrir samkeppni um það á meðal bæjarbúa. Að sögn Huldu hafa fram- kvæmdir gengið vel en körfu- knattleiksdeild Grindavíkur hefur m.a. komið að verkinu að því leyti að verktakinn greiddi þeim ákveðna upphæð fyrir frágang á lóð. Körfuknattleiksdeildin fékk síðan sjálfboðaliða til að vinna verkið og peningarnir renna því beint í rekstur deildarinnar. Með tilkomu nýja leikskólans verða tveir leikskólar starfandi í Grindavík en Leikskólinn við Dal- braut hefur verið starfandi í 23 ár. Morgunblaðið/Jim Smart Sjálfboðaliðar frá Körfuknattleiksdeild UMFG vinna við frágang lóðar nýs leikskóla í bænum. Einkaaðili sér um reksturinn Nýr leikskóli tekur til starfa í Grindavík 1. febrúar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.