Morgunblaðið - 06.01.2001, Qupperneq 18
VIÐSKIPTI
18 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
RAFRÆN SKRÁNING HLUTABRÉFA
STEINULLARVERKSMIÐJUNNAR HF.
Mánudaginn 22. janúar 2001 verða hlutabréf Steinullarverk-
smiðjunnar hf. tekin til rafrænnar skráningar hjá Verðbréfa-
skráningu Íslands hf. Frá þeim tíma ógildast hlutabréf félags-
ins sem eru útgefin á pappírsformi í samræmi við heimild í
ákvæði til bráðabirgða nr. II í lögum nr. 131/1997, um rafræna
eignarskráningu verðbréfa, sbr. 6. gr. laga nr. 32/2000, um
breytingar á ýmsum lögum vegna tilkomu rafrænnar eignar-
skráningar á verðbréfum, og reglugerð nr. 397/2000, um raf-
ræna eignarskráningu verðbréfa í verðbréfamiðstöð.
Skorað er á eigendur ofangreindra hlutabréfa, sem telja
nokkurn vafa leika á því að eignarhald þeirra sé réttilega fært
í hlutaskrá Steinullarverksmiðjunnar hf., að staðreyna skrán-
inguna með fyrirspurn til skrifstofu Steinullarverksmiðjunnar hf.,
Skarðseyri 5, Sauðárkróki, fyrir nefndan dag. Ennfremur er
skorað á þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra
hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að koma þeim á framfæri við full-
gilda reikningsstofnun (viðskiptabanka, sparisjóð eða verð-
bréfafyrirtæki).
Að lokinni rafrænni skráningu geta hluthafar falið reiknings-
stofnun, sem hefur gert aðildarsamning við Verðbréfaskráningu
Íslands hf., að hafa umsjón með eignarhlut sínum í félaginu.
Hluthöfum félagsins verður nánar kynnt þetta bréfleiðis.
Stjórn Steinullarverksmiðjunnar hf.
FLUGFÉLAGIÐ Atlanta hefur sem
kunnugt er verið með töluverða
starfsemi í Sádí-Arabíu undanfarin
ár. Arngrímur Jóhannsson, stjórnar-
formaður félagsins, staðfesti í sam-
tali við Morgun-
blaðið að á
nýliðnu ári hefði
greiðsla frá við-
skiptavini félags-
ins í Sádí-Arabíu
á töluverðri upp-
hæð dregist
nokkuð. „Þetta
var meira en
venjulega vegna
þess að umsvifin
voru meiri. Við erum komnir yfir
þetta núna, en þetta var stirt í nóv-
ember og desember,“ sagði Arn-
grímur. Hann sagði að Atlanta væri
búið að eiga viðskipti við þennan að-
ila í níu ár og að ekki væri nýtt að
greiðsla drægist, en hún bærist allt-
af á endanum. Þetta væri ákveðið
vandamál, en skuld síðasta árs hefði
nú verið greidd upp.
Arngrímur sagði að á þessu ári
yrði félagið með þrjár vélar í flugi
fyrir þennan viðskiptavin í stað sjö
véla í fyrra. Umsvifin í pílagríma-
fluginu í heild verði þó ekki minni,
því við muni bætast viðskiptavinir
sem betur sé hægt að reiða sig á að
greiði á réttum tíma.
Magnús Gunnarsson
ráðinn ráðgjafi stjórnar
Spurður að því hvernig gengi að
undirbúa skráningu Atlanta á mark-
að sagði Arngrímur að unnið væri
markvisst að því að setja félagið á
markað. Hann sagðist reikna með að
félagið yrði skráð á þessu ári, en ekki
væri hægt að segja nákvæmar hve-
nær það yrði. Þá sagðist hann reikna
með að félagið yrði skráð hér á landi.
Arngrímur, sem sest aftur í stól
forstjóra síðar í þessum mánuði,
sagði einnig að Magnús Gunnarsson
hefði verið ráðinn sérstakur ráðgjafi
stjórnar félagsins.
Magnús er fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri SÍF og Vinnuveit-
endasambandsins og hefur síðustu
árin starfað sjálfstætt að viðskiptum
tengdum flugrekstri. Hann mun
starfa með Arngrími og sinna
ákveðnum störfum fyrir hann og
stjórnina. Magnús verður þó ekki í
fullu starfi heldur mun hann sinna
ákveðnum verkefnum eftir því sem
þörf krefur.
Morgunblaðið/Baldur Sveinsson
Flugfélagið Atlanta
skráð á markað á árinu
Magnús
Gunnarsson
HLUTFALLSLEGA hefur eignar-
hlutur Gaums minnkað í Baugi eft-
ir hlutafjáraukningu félagsins nú
nýverið. Hinn 29. nóvember síðast-
liðinn var eignarhlutur Gaums
29,7% og Reitangruppen 17,82%.
Eignarhlutur Reitangruppen hefur
verið fluttur til Rema 1000 Int-
ernational sem Reitangruppen
stofnaði á síðasta ári. Það félag
hefur síðan sameinast Narvesen
ASA.
Jóhannes Jónsson
og fjölskylda með 35% hlut
Af tíu stærstu hluthöfum í Baugi
eru einungis tveir nýir: Eignar-
haldsfélagið ISP með 2,77% og
Rema Foods sem er með 1,45%
hlut í félaginu.
Fyrir útboðið voru feðgarnir Jó-
hannes Jónsson og Jón Ásgeir Jó-
hannesson í 9. og 10. sæti á listan-
um yfir tíu stærstu hluthafana í
Baugi með 1,35% hvor um sig.
Eiga þeir jafnframt 90% hlut í
Fjárfestingarfélaginu Gaumi ehf.
Sameiginlegur eignarhlutur
Gaums og feðginanna Jóhannesar,
Jóns Ásgeirs og Kristínar Jóhann-
esdóttur nam 29. nóvember síðast-
liðinn 34,74%.
!" #$ %&
!"
'( )
* !
+ !" ,
- ! ( !".
/01 %
2 3#
44"
3 5 ! 6
! 5 ! 7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7
7 7
7
Gaumur enn
stærstur í Baugi
Hefja
samstarf í
Ameríku-
siglingum
Samskip og Atlantsskip hafa
gert samstarfssamning um
flutninga til Ameríku og tekur
hann strax gildi.
Samkvæmt fréttatilkynn-
ingu stendur viðskiptavinum
Samskipa nú til boða tvöfalt
flutningskerfi til Ameríku með
aukinni brottfarartíðni því að
auk þess að hefja samstarf við
Atlantsskip munu Samskip
halda áfram samstarfi sínu við
Maersk-skipafélagið.
Aukin hagkvæmni og hagræði
Að sögn Stefáns Kjærnested,
framkvæmdastjóra Atlants-
skipa, ná bæði fyrirtækin með
þessum samningi fram aukinni
hagkvæmni og hagræði í
rekstri. Samstarfið taki þó að-
eins til samnýtingar skipa en
markaðs- og sölustarfsemi fyr-
irtækjanna verði áfram aðskil-
in.
Samskip og
Atlantsskip
Íslandsbanki-FBA
Tap af síð-
asta árs-
fjórðungi
ÍSLANDSBANKI-FBA hf. hefur
sent frá afkomu viðvörun. Þar segir
að vegna óhagstæðrar þróunar á
hlutabréfamarkaði, innanlands og
utan, sé líklegt að tap verði af
rekstri bankans á síðasta fjórðungi
ársins 2000. Búist er við því að
heildarhagnaður ársins verði því
lægri en áætlað var en hagnaður
bankans af fyrstu níu mánuðum
ársins nam 1.686 milljónum króna
fyrir skatta.
„Efnahagsþróun innanlands og
utan hefur sett mark sitt á rekst-
urinn á árinu. Verðbólga er meiri
en í viðskiptalöndunum en hefur
hjaðnað nokkuð, krónan lækkaði
um ríflega 10% á síðasta ári og er
enn undir nokkrum þrýstingi. Vext-
ir fóru hækkandi og hlutabréfaverð
lækkandi,“ segir í tilkynningu frá
bankanum.
Ennfremur segir að sameiningu
bankans sé nú lokið og að umsvif
hans hafi aukist á öllum sviðum
enda hafi vöxtur bankans verið
mikill á árinu. Miklar sveiflur í ytra
umhverfi hafi þó haft talsverð áhrif
á reksturinn.
175 milljóna króna viðskipti voru
með bréf Íslandsbanka-FBA á
Verðbréfaþingi Íslands í gær og
lækkaði gengi þeirra um 4%, úr
4,05 í 3,89.
Heildareignir jukust
um 30% á síðasta ári
Samkvæmt bráðabirgðatölum
námu heildareignir bankans í árs-
lok 293 milljörðum króna og höfðu
aukist á árinu um 67 milljarða
króna eða tæp 30%.
Útlán námu 230 milljörðum
króna og höfðu aukist um 54 millj-
arða króna eða tæplega 31%, mark-
aðsverðbréf og eignarhlutir í félög-
um námu 31 milljarði króna og
höfðu lækkað um 0,6 milljarða
króna eða um 2% og innlán námu
68,5 milljörðum króna og höfðu
vaxið um 11,4 milljarða króna eða
20%.
Þess er vænst að ársreikningur
Íslandsbanka-FBA fyrir árið 2000
liggi fyrir þann 30. janúar næst-
komandi.
ÞEIR sem keyptu hlutabréf í de-
CODE voru upplýstir um áhrif svo-
nefndrar „reglu 144“ í bandarískum
lögum um verðbréfaviðskipti á sölu
bréfanna, eftir því sem mögulegt var,
samkvæmt upplýsingum sem Morg-
unblaðið hefur frá fjármálafyrirtækj-
um.
„Regla 144“ kveður á um skilyrði
fyrir sölu hlutabréfa sem eru tak-
markandi á einhvern hátt. Sala á
hlutabréfum í deCODE fellur undir
þessa reglu. Samkvæmt henni er
ekki hægt að selja hlutabréf, sem eru
takmörkunum háð, fyrr en í fyrsta
lagi einu ári eftir útgáfu þeirra. Regl-
an nær hins vegar ekki til hlutabréfa,
sem eru takmörkunum háð, ef tvö ár
eru liðin frá útgáfu þeirra, að því til-
skildu að eigandi þeirra sé ekki á
nokkurn hátt tengdur útgefanda
bréfanna.
„Regla 144“ á ekki að hafa neikvæð
áhrif á gengi deCODE
Viðmælendur Morgunblaðsins hjá
fjármálafyrirtækjum segja að alla
jafna sé auðveldara að ganga frá sölu
hlutabréfa í skráðum félögum en
óskráðum. Grundvallarupplýsingar
um skráð félög liggi fyrir og því þurfi
verðbréfasalar ekki að sýna eins
mikla forsjárhyggju gagnvart kaup-
endum hlutabréfa og þegar kemur að
óskráðum félögum. Varðandi sölu á
bréfum í óskráðum félögum fari
verðbréfasalar alla jafna í gegnum
þær almennu skýringar að um sé að
ræða áhættusamari verðbréf þar
sem takmarkaðari upplýsingar liggi
fyrir um viðkomandi félag. Viðmæl-
endur blaðamanns hjá fjármálastofn-
unum segja að þessa hafi verið gætt
eins og frekast hafi verið unnt varð-
andi sölu á hlutabréfum í deCODE.
„Regla 144“ var sett í bandarísk
lög um verðbréfaviðskipti til að
vernda almenning, að sögn viðmæl-
anda Morgunblaðsins hjá verðbréfa-
fyrirtæki. Reglunni sé meðal annars
ætlað að koma í veg fyrir að útgef-
andi hlutabréfa geti verið að selja
eigin bréf í einhverjum mæli. Reglan
eigi því ekki að hafa neikvæð áhrif á
gengi hlutabréfa í deCODE. Venju-
legur hluthafi sem átt hafi hlutabréf í
deCODE í eitt ár eða lengur muni
geta gert hvað sem hann vill með
bréfin, þegar læsingartímabili
félagsins lýkur 14. janúar næstkom-
andi.
Annar viðmælandi blaðamanns hjá
verðbréfafyrirtæki segir að á Íslandi
séu um 6.000 hluthafar í deCODE.
Um 70% þeirra eigi hlutabréf sem
séu á milli eins og tveggja ára. Að öllu
óbreyttu þurfi þeir allir að fylla út
sérstakt eyðublað með tilkynningu
um sölu á hlutabréfum, sem þá verði
opinber gögn. Því geti hugsanlega
komið fram margar tilkynningar um
sölu á hlutabréfum í félaginu. Slíkt
geti haft einhver áhrif á gengi bréf-
anna þar sem það megi túlka sem
söluþrýsting en óvíst sé þó hvort
þetta gerist.
„Regla 144“ var sett til að vernda almenna fjárfesta
Kaupendur upplýstir
sem frekast var unnt
Grimsey for-
stjóri Iceland
BILL Grimsey hefur verið
skipaður forstjóri bresku versl-
anakeðjunnar Iceland Group,
sem selur frystar matvörur.
Grimsey tók við starfinu um
áramótin af Stuart Ross, sem
sagði upp hjá fyrirtækinu í nóv-
ember síðastliðnum til að verða
forstjóri fataverslanakeðjunn-
ar Arcadia Group. Grimsey var
forstjóri byggingavöruverslun-
ar frá árinu 1996 en starfaði áð-
ur í matvöruverslunarrekstri.