Morgunblaðið - 06.01.2001, Page 19
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 19
MUN minni aukning varð í smásölu-
verslun í Bandaríkjunum í desember
en áætlað hafði verið. Söluaukningin
er sú minnsta í áraraðir og það þykir
vera enn eitt merki um að verulega sé
að hægja á bandaríska hagkerfinu.
Ástæður minnkandi sölu eru m.a.
sagðar lækkandi hlutabréfaverð og
hátt olíuverð auk þess sem einstak-
lega slæmt veður víða í Bandaríkj-
unum hafi sett mark sitt á jólasöluna.
Talið er að þrátt fyrir að vaxtalækk-
un bandaríska seðlabankans síðast-
liðinn miðvikudag muni koma smá-
sölum til góða muni áhrifin af henni
ekki skila sér til þeirra nærri strax.
Smásöluvísitala fjármálafyrirtæk-
isins Bank of Tokyo-Mitsubishi, sem
mælir sölu um 80 verslana, var ein-
ungis um 0,7% hærri í desember nú
en í sama mánuði í fyrra. Í fyrra hafði
vísitalan aukist um 6,7% frá árinu
1998. Þá mældist söluaukningin í
janúar til nóvember 1999 einnig 6,7%
en sambærileg tala fyrir janúar til
nóvember árið 2000 er 4%.
Jafnvel stórverslanakeðjan Wal-
Mart, sem er stærsti smásali í heimi
og þekkt fyrir velgengni á þessum
markaði, gaf frá sér viðvörun um að
söluaukning verslana í keðjunni, sem
hafa verið opnar í ár eða meira, hefði
einungis numið 0,3% á milli ára.
Þá tilkynnti Sears, Roebuck & Co
að stefnt væri að lokunum 89 versl-
ana vegna óvænts sölusamdráttar í
nóvember og desember. Gert er ráð
fyrir því að töluvert fleiri fyrirtæki
þurfi að loka verslunum á árinu og
spáð er miklu kostnaðaraðhaldi á
smásölumarkaðnum.
Mikil von-
brigði með
jólasöluna
AP
Smásala í
Bandaríkjunum
♦ ♦ ♦
ALLIR stjórnendur evrópska net-
sölufyrirtækisins Letsbuyit.com
sögðu af sér eftir lokun markaða á
miðvikudag í kjölfar þess að fyrirtæk-
ið fór í síðustu viku fram á greiðslu-
stöðvun vegna verulegra fjárhagserf-
iðleika. Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu
kemur fram að dómari í Amsterdam,
þar sem fyrirtækið hefur höfuðstöðv-
ar, hafi fallist á greiðslustöðvunina og
skipað tvo tilsjónarmenn félagsins.
Þá hefur John Palmer, stofnandi og
stjórnarmaður í fyrirtækinu, verið
skipaður bráðabirgðaforstjóri. Ís-
lenskir fjárfestar og sjóðir eru meðal
hluthafa í fyrirtækinu. Meðal þeirra
er Arctic Ventures-fjárfestingarsjóð-
urinn en hlutabréf í Letsbuyit.com er
fimmta stærsta eign sjóðsins. Þess
má geta að þeir Íslendingar, en að-
allega var um stóra einstaka fjárfesta
og fjárfestingasjóði að ræða sem
keyptu hlut í letsbuyit.com í byrjun-
,fengu hlutinn á 0,60 evrur en í gær
voru viðskipti með bréf félagsins á
genginu 0,40-0,50 evrur í Frankfurt.
Á næstu fjórum vikum munu Pal-
mer og tilsjónarmennirnir tveir fara
yfir fjárhagsstöðu fyrirtækisins og
kanna allar mögulegar leiðir til að
halda áfram starfsemi þess. Á meðan
mun fyrirtækið ræða við hugsanlega
fjárfesta með það að markmiði að
endurfjármagna fyrirtækið og koma
starfsemi þess af stað sem fyrst.
Letsbuyit.com er skráð á þýska verð-
bréfamarkaðinn Neuer Markt í
Frankfurt en það var stofnað í Sví-
þjóð í apríl 1999 og er með starfsemi í
14 löndum, að því er fram kemur á
fréttavef BBC. Letsbuyit.com hefur
boðið viðskiptavinum vörur með af-
slætti – eftir því sem pantanirnar eru
stærri, þeim mun meiri afsláttur
fæst. Viðskiptahugmyndin hefur þó
ekki gengið eins og vonast var til og
hefur fyrirtækið verið rekið með tapi
frá stofnun.
Stjórnendur
Letsbuyit.com
fara frá