Morgunblaðið - 06.01.2001, Síða 28
28 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Læknisfræði
Aukaverkanir flogaveiki-
lyfja oftast vægar
Börn
Er rétt að gefa börnum
megrunarlyf?
Reykingar
Færri sígarettur
sýnast litlu breyta
Kynin
Karlar eru mun
viðkvæmari en konurHEILSA
Spurning: Hverjar eru langtíma-
aukaverkanir flogaveikilyfja t.d.
Dépakins? Þá á ég við áhrif á lifur,
nýru, blóð, geðslag o.fl. Hvers
vegna getur samheitalyfið Dépakin
haft jafnari blóðþéttni en Orfiril?
Svar: Flogaveikilyf eru mörg og
margvísleg og er langt mál að gera
grein fyrir aukaverkunum þeirra
allra. Hér er spurt um eitt þessara
lyfja, valpróínsýru eða valpróat,
sem er á markaði á Íslandi í sérlyfj-
unum Dépakine, Orfiril og Orfiril
Retard. Valpróínsýra er í mörgum
tilfellum mjög gott lyf við flogaveiki
en þetta lyf hentar ekki öllum og
getur haft hættulegar aukaverk-
anir.
Talið er að 20-50% allra sem taka
lyfið fái einhverja aukaverkun en
flestar þeirra eru sem betur fer
vægar og hættulausar. Minna en
einn sjúklingur af hverjum þúsund
fær hættulegustu aukaverkun lyfs-
ins sem er lifrarskemmdir sem
stundum hafa leitt til dauða.
Flest þessara fórnarlamba eru
börn, hættan er mest fyrsta hálfa
árið sem lyfið er tekið og einkennin
geta verið ógleði, uppköst, þreyta,
þróttleysi, lystarleysi eða aukin
tíðni floga. Þessi einkenni þurfa þó
alls ekki að vera merki um lifrar-
skemmdir. Aðrar algengar auka-
verkanir eru aukin matarlyst,
skjálfti, blæðingar (lengdur blæð-
ingartími), magaverkir og niður-
gangur.
Sjaldgæfari aukaverkanir eru
óregla á tíðum, hegðunartruflanir,
svefntruflanir, aukin þvaglátatíðni,
hárlos og jafnvel breyttur háralitur,
höfuðverkur, hægðatregða og út-
brot. Í mjög sjaldgæfum tilfellum
getur komið náladofi, fækkun á
blóðflögum, fækkun á hvítum blóð-
kornum, blóðleysi, brisbólga, ósam-
hæfðar hreyfingar, ruglástand og
geðtruflun.
Þessi langa upptalning á þekkt-
um aukaverkunum valpróínsýru er
nokkurn veginn tæmandi og skal
tekið fram að flestir, sem nota lyfið,
þola það vel og sleppa að mestu við
aukaverkanir. Allar þessar auka-
verkanir geta komið eftir notkun
lyfsins í stuttan eða langan tíma og
ekki er um að ræða neinar sér-
stakar langtíma aukaverkanir eins
og spurt var um. Talað er um sam-
heitalyf þegar um er að ræða lyf
með mismunandi nöfnum (frá mis-
munandi framleiðendum) sem inni-
halda sama virka efnið í sama lyfja-
formi.
Dépakine og Orfiril eru sam-
heitalyf vegna þess að bæði eru
sýruhjúptöflur (þau eru reyndar
líka til sem mixtúra) og bæði inni-
halda sama virka efnið sem er
valpróínsýra. Orfiril Retard er forð-
atöflur sem losa sama virka efnið á
löngum tíma og gefa þess vegna
jafnari blóðþéttni yfir sólarhringinn
en sýruhjúptöflur sem losa virka
efnið strax og taflan er komin í
gegnum magann og í skeifugörn.
Dépakine og Orfiril þarf að gefa 2-3
sinnum á dag og gefa þau sambæri-
legar sveiflur í blóðþéttni yfir sólar-
hringinn þó að það geti sennilega
verið eitthvað einstaklingsbundið.
Orfiril Retard forðatöflur er nóg að
gefa 1-2 sinnum á dag og sveiflur í
blóðþéttni eru litlar. Til að tryggja
rétta skömmtun lyfsins er nauðsyn-
legt að mæla blóðþéttnina af og til.
Á NETINU: Nálgast má skrif
Magnúsar Jóhannssonar um lækn-
isfræðileg efni á heimasíðu hans á
Netinu. Slóðin er:
http://www.hi.is/~magjoh/
Hverjar eru aukaverkanir flogaveikilyfja?
Magnús Jóhannsson læknir svarar spurningum lesenda
YFIRLEITT
VÆGAR
Lesendur Morgunblaðsins geta spurt lækn-
inn um það sem þeim liggur á hjarta. Tekið
er á móti spurningum á virkum dögum milli
klukkan 10 og 17 í síma 5691100 og bréfum
eða símbréfum merkt: Vikulok. Fax
5691222. Einnig geta lesendur sent fyrir-
spurnir sínar með tölvupósti á netfang
Magnúsar Jóhannssonar: elmag@hot-
mail.com.
BÖRN foreldra með ofsahræðslu-
röskun eða alvarlegt þunglyndi
eiga fremur á hættu á að þessir
sömu kvillar taki að hrjá þau, jafn-
vel á unga aldri, samkvæmt nið-
urstöðum rannsókna er gerðar
voru í Boston í Bandaríkjunum.
Fyrri rannsóknir hafa bent til að
slíkir kvillar geti borist frá foreldri
til barns, en dr. Joseph Bieder-
man, við Sjúkrahúsið í Massachu-
setts, og samstarfsmenn hans,
vildu meta hvort almenn „kvíða-
hneigð“ lægi í tilteknum ættum
eða hvort röskun erfist fremur
beinlínis.
Höfundar rannsóknarinnar
segja í janúarhefti American Jour-
nal of Psychiatry að ofsahræðslu-
röskun foreldra og alvarlegt þung-
lyndi tengist umtalsverðri hættu á
starfsröskun (dysfunction) og til-
finningaröskun hjá afkvæmum
þeirra.
Rannsóknin var gerð á 380 börn-
um og meðal þeirra var tíðni ofsa-
hræðsluröskunar, og ýmiss konar
annarrar kvíðaröskunar, hjá börn-
um foreldra með slíka kvilla hærri
en hjá börnum foreldra sem höfðu
enga kvíða- eða lyndisröskun.
Börn foreldra með ofsahræðslu-
röskun sýndu ennfremur meiri til-
hneigingu til víðáttufælni en börn
úr fjölskyldum þar sem engin
röskun var. Svipuð hneigð kom í
ljós hjá börnum foreldra sem voru
haldnir bæði ofsahræðsluröskun
og alvarlegu þunglyndi.
Börn foreldra er þjáðust af al-
varlegu þunglyndi reyndust einnig
líklegri til að þjást af alvarlegu
þunglyndi. Voru þessi börn nífalt
líklegri til að þjást af alvarlegu
þunglyndi en börn úr fjölskyldum
þar sem kvillans varð ekki vart.
Félagsleg fælni var ennfremur al-
gengari meðal barna foreldra er
höfðu verið meðhöndlaðir vegna al-
varlegs þunglyndis og meðal barna
foreldra sem höfðu verið með-
höndlaðir vegna bæði ofsahræðslu-
röskunar og alvarlegs þunglyndis.
Niðurstöðurnar „styðja og
styðja ekki“ hugmyndina um að al-
menn „kvíðahneigð“ liggi í ættum,
segja höfundar rannsóknarinnar.
Er niðurstaða þeirra sú, að frekari
rannsókna sé þörf til að skera úr
um hvort vandamál þessara barna
„leiði til frekari viðkvæmni“ auk
þess að finna hvaða þættir hafi
áhrif á framvindu kvillanna á full-
orðinsárum.
Reuters
Lögmálið gamalfræga um eplið
og eikina virðist einnig eiga um
við um krankleika og heilsu.
Geðsjúkdómar
geta borist frá
foreldri til barns
New York. Reuters.
TENGLAR
.....................................................
American Journal of Psychiatry:
http://intl-ajp.psychiatryonline.org
NÝ OG umdeild aðferð við heilbrigð-
iseftirlit hefur verið þróuð í Banda-
ríkjunum og felur m.a. í sér skönnun
á öllum líkamanum, að því er breska
ríkisútvarpið, BBC, greinir frá í net-
útgáfu sinni. Þar kemur fram, að dr.
Harvey Eisenberg og samstarfs-
menn hans við Health View-heilsu-
gæslusmiðstöðina í Newport Beach í
Kaliforníu skanna allt að 40 manns á
dag.
Margir þeirra virðast vera alveg
heilbrigðir og bera engin merki sjúk-
dóma, en skönnunin hefur oft leitt í
ljós dulda sjúkdóma. Aðgerðin tekur
um 15 mínútur. Henni fylgir sam-
ráðsfundur með lækni og getur hann
staðið í allt að tvo tíma.
Þrívíddarmyndir
Notaður er tölvutengdur skanni
sem tekur hundruð mynda af líkam-
anum frá hálsi að mjaðmagrind. Með
sérstöku tölvuforriti er myndunum
breytt í nákvæmar þrívíddarlit-
myndir sem sjúklingurinn getur
fengið að sjá samdægurs. Hefur dr.
Eisenber skannað yfir 15 þúsund
sjúklinga með þessum hætti. Hann
segist hafa fundið einhvers konar
vísi að sjúkdómi í þeim öllum.
Hann leggur þó áherslu á að flest-
ir sjúklinganna fari heim með það á
tilfinningunni að þeir hafi betri
stjórn á líkama sínum en áður. Í
flestum tilfellum sé um að ræða
frumstigseinkenni sjúkdóma sem
hægt sé að lækna eða stöðva.
Með líkamsskönnuninni séu helstu
líffærin, hjartað, lungun og nýrun,
skoðuð og hægt sé að koma auga á
úrfellingu sem bendi til hjartasjúk-
dóma og hægt sé að bera kennsl á
krabbameinsæxli löngu áður en þau
fari að leiða til líkamlegra einkenna.
Skönnunin kostar 795 Bandaríkja-
dali eða sem svarar um 66 þúsund
krónum. Það eru ekki allir hrifnir af
þessari nýjung og segja að flest fólk
þurfi ekki á að halda svona umfangs-
mikilli skönnun. Möguleiki sé á að
hún greini ekki alvarleg vandamál
eða veiti óljósar niðurstöður.
Dr. Sidney Friedman, yfirmaður
geislalækninga við Westchester
Imaging-miðstöðina í Los Angeles,
bendir á að sumir sjúklingar þurfi að
gangast undir frekari rannsóknir til
að fá skýringar á niðurstöðum lík-
amsskönnunarinnar. Sem allsherjar
heilsufarsathugun fyrir ungt og heil-
brigt fólk eigi þetta ekki rétt á sér.
„Þetta höfðar til þessa bandaríska
hugarfars um að maður geti gert
eitthvað sem er einfalt og þægilegt.
Þetta höfðar til sálrænna veikleika
Bandaríkjamanna,“ segir dr. Fried-
man.
Nýjung í heilsugæslu í Bandaríkjunum
Læknar bjóða
líkamsskönnun
Associated Press
TENGLAR
.....................................................
Health View-heilsugæslusmið-
stöðin:www.healthview.com