Morgunblaðið - 06.01.2001, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 29
TESTÓSTERÓN-bætiefni kann er
fram líða stundir að verða notað til
að halda karlmönnum í formi, virk-
um og hamingjusömum langt fram
eftir aldri, rétt eins og estrógen hef-
ur gefið konum nýtt líf eftir tíða-
hvörf. Er þetta framtíðarspá lækn-
isins Malcolms Carruthers.
Frá 20 til 70 ára getur testóste-
rónmagn í líkama karla minnkað um
allt að 50%. Sífellt fleiri læknar telja
þetta hliðstætt við tíðahvörf hjá kon-
um. En hormónameðferð fyrir karl-
menn er enn umdeild. Sumir vís-
indamenn óttast að auka testósterón
geti komið af stað blöðruhálskirtils-
krabba og ólögleg notkun vaxtar-
ræktarmanna og annars íþróttafólks
á hormóninu hefur einnig svert
ímynd þess.
„Gott fyrir hjartað“
Carruthers, sem er sjálfstætt
starfandi læknir í London, telur að
ef vel er fylgst með testó-
sterón-bætiefnagjöf geti hún verið
jafnhættulaus fyrir karlmenn, sem
þjást af skorti á hormóninu, og mörg
önnur heilsubót. „Þetta er ekki ein-
ungis hættulaust fyrir blöðruháls-
kirtilinn, þetta er beinlínis gott fyrir
hjartað og blóðrásarkerfið, kemur í
veg fyrir beinþynningu og hefur
mikið af þeim góðu áhrifum – þ. á m.
að koma ef til vill í veg fyrir Alz-
heimer – sem hormónameðferð hef-
ur á konur.“
Carruthers hefur stofnað góð-
gerðarfélag, The Andropause Soc-
iety, til þess að rannsaka og veita
stuðning rannsóknum á þessu sviði.
Hann er enn fremur ráðgjafi vefset-
ursins AndroScreen.com sem veitir
upplýsingar um greiningu á testó-
sterónskorti og möguleika á með-
ferð. Þá vinnur hann að því að koma
á laggirnar alþjóðlegu samstarfi
lækna sem eru lærðir í meðferð á
testósterónskorti.
Sífellt fleira rennir stoðum undir
þá hugmynd, að testósterón-bæti-
efni fyrir menn sem hafa lítið af
hormóninu geti styrkt bein, aukið
vöðvamassa, bætt hugarstarfsemi
og kynorku og unnið gegn þung-
lyndi, að sögn dr. Natans Bar-
Charmas, við Mt.Sinai-læknaskól-
ann í New York.
Bar-Charma segir þetta svið vera
á byrjunarstigi. „Við erum líklega
um það bil einum áratug á eftir
rannsóknum á sviði tíðahvarfa,“ seg-
ir hann en bætir við að líklegt sé að
áhugi á þessu sviði muni aukast gíf-
urlega á næstu fimm til tíu árum.
Gel og plástrar
Þótt langtímarannsóknum á hætt-
um testósterón-bætiefna sé enn ekki
lokið segir Bar-Charma að
bráðabirgðaniðurstöður bendi ekki
til þess að hættan á blöðruhálskirt-
ilskrabba aukist. Ný testósterón-gel
og -plástrar hafi gert meðferð
hættuminni. Slíkar meðferðir auki
testósterónmagn en ekki umfram
það sem er líkamlega eðlilegt, líkt og
pillu- og sprautumeðferð gæti gert.
Bar-Charma og Carruthers eru
sammála um að til að skera úr um
hver muni njóta góðs af testósterón-
meðferð þurfi að kanna bæði hor-
mónamagn og einkenni. Magnið sé
mismunandi eftir einstaklingum og
að maður sem hafi eðlilegt magn
kunni að hafa skortseinkenni. Meðal
þeirra eru þunglyndi, minnkaður
áhugi á kynlífi, versnandi hugar-
starfsemi, beinþynning og minni
vöðvastyrkur, að því er Carruthers
segir.
Margir þættir vegnir
Til þess að ákvarða hvort
einstaklingur þurfi á auknu testó-
steróni að halda þurfi að vega og
meta marga þætti, þ. á m. hlutfallið
á milli vöðva og fitu, beinþéttni, hug-
arstarfsemi og kynlífsiðkan, segir
dr. Natan Bar- Charma.
Þau áhrif testósteróns að auka
vöðva og minnka fitu séu ekki aðeins
útlitslega til bóta, segir hann, heldur
geti þetta unnið gegn hægfara
hjartasjúkdómum.
Hvatt til
„testósterón-
byltingar“ meðal
eldri karlmanna
Associated Press
New York. Reuters.
Miðaldra og í fullu fjöri.
Rétt eins og estrógen hefur hjálpað
mörgum konum eftir tíðahvörf kann
testósterón að bæta líðan karla.
TENGLAR
.....................................................
The Andropause Society:
www.AndroScreen.com