Morgunblaðið - 06.01.2001, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 06.01.2001, Blaðsíða 47
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 47 um sér bestur, eða verstur. Við þannig aðstæður dugar oft ekkert annað en harka og óbilgirni. En ég sjálfur fékk að kynnast Sveini Björnssyni sem skapmiklum, en þó barngóðum sögumanni. Í Sveini vó til jafns, mikil lífsreynsla og fyrirmyndar hugmyndaflug, sem bjó til þær mest spennandi sögur ég hef heyrt nokkurn mann segja af sjálfum sér. Hann hafði gaman af að segja okkur barnabörnunum sögur, af því að hann vissi að við ólumst ekki upp í sama umhverfi og hann sjálfur. En þó að umhverfið sé breytt gilda alltaf sömu lögmál í öllu mann- legu samfélagi; heiðarleg vinna er dyggð. Þessu er auðvelt að gleyma í hröðu og athygliskrefjandi amstri nútímans, en saga af Sveini Björns- syni sögð af Sveini Björnssyni var góð leið til að ná áttum. Sögur sagðar af Sveini verða því miður ekki fleiri, en sögurnar af hon- um munu lifa áfram í öllum þeim sem voru svo heppnir að fá að kynnast honum. Sveinn Björnsson leysti öll verk vel af hendi á langri ævi og kom heið- arlega fram við alla samferðamenn sína. Það er dyggð sem gerir hann að mikilmenni í mínum augum, einu því mesta sem sáð hefur í jörð þessa hrjóstruga en jafnframt ástsæla lands. Vænt er að kunna vel að búa, vel að fara með herrans gjöf, hans verk- um sér í hag að snúa, honum þakka fyrir utan töf, en sér og öðrum gera gott, gleðjast og forsmá heimsins spott. Úr Búnaðarbálki Eggerts Ólafs- sonar Ég veit að Guð er þakklátur fyrir það hversu vel þú fórst með allt sem hann gaf þér, og hann veit einn að heiðarleiki þinn lifir í afkomend- um þínum og öllum öðrum mönnum sem að fengu að kynnast þér. Og fyrir það er ég einnig þakk- látur, afi minn. Vertu blessaður. Bergur Ebbi. Við kölluðum hann alltaf Bónda. Enda var hann bóndi af heilum hug alla ævi og var trúr því starfi í hjarta sínu þótt löngu væri hann fluttur frá bænum sínum á hólnum og kominn í fjölmennið í Reykjavík. Hann fylgd- ist með öllu sem gerðist í sveitinni, hringdi oft til að fá fréttir og gladdist yfir framförum og velgengni. Eftir að Sveinn og Guðrún, kona hans, fluttu burt var Sveinn eins og farfuglarnir, kom á vorin og dvaldi í hreiðrinu sínu til hausts. Hann undi illa aðgerðarlaus og sinnti ýmsum störfum þótt fæturnir væru honum óþekkir og hlýddu ekki þrám bónd- ans til athafna. Hann klauf girðing- arstaura og hreinsaði æðardún á milli þess sem hann tók á móti gest- um. Því þau hjón voru höfðingjar heim að sækja og alla tíð var afar gestkvæmt hjá þeim. Góður gestur var besta meðalið þegar verkirnir í fótunum höfðu lagt hann í rúmið. Sveinn var sístarfandi meðan hon- um entist heilsa til. Ætlaðist til að aðrir væru jafn iðnir. Bóndi sem aldrei átti frí og gerði heldur ekki kröfur til þess. Eftir að um hægðist sást Bóndi gjarnan á nokkrum upp- áhaldsstöðum þar sem hann sat, fylgdist með öllu og horfði yfir lend- ur sínar: á rekaviðardrumbi fyrir ut- an fjárhúsin, við gluggann í stofunni með spilastokkinn í hendi og á stórum steini í blómagarði konu sinnar. Þar hallaði hann sér fram og studdi sig við stafinn sinn, brosti glaður með stríðnisglampa í augum ef einhver kom lallandi frá hinum bænum. Alltaf til í að spjalla og gant- ast. Það er auðvelt að ímynda sér kvöldstemningu við Víkingavatn um sumarsólstöður: Bóndi á steininum, logn, rykmýsskýin tifa til og frá, há- vella lætur í sér heyra norður í vatni, víkin iðar af fuglalífi, það stefnir í ógleymanlegt sólsetur. Þetta var líf- ið fyrir Bónda. Einlægar þakkir fyrir samfylgd- ina. Ásrún, Hafþór og Stella. Sveinn, en við þekktum hann bet- ur undir nafninu Bóndi, var okkur mjög kær. Við munum vel þegar við vorum minni og komum alltaf til hans þegar hann var að kljúfa reka- við úti í bragga og færðum honum kaffi. Hann varð alltaf svo ánægður og þá vorum við það líka. Eitt sinn þegar hann átti afmæli og var einn heima, komum við á undan öllum hinum og bjuggum til kaffi, tókum fram fínasta postulínsstellið í skápn- um, röðuðum kökum og kexi á borðið og höfðum allt tilbúið þegar gestirnir komu. Næstum því alltaf þegar við kom- um til hans, spiluðum við og alltaf sat hann í sama sætinu og talaði um karlana sem hann svindlaði á í spil- um í gamla daga og hlógum við alltaf að honum. Hann bauð okkur líka alltaf í nefið þegar hann var að fá sér og kom það fyrir að við fengum okk- ur með honum. Elsku Bóndi okkar, við munum aldrei gleyma þér. Helena og Saadia Auður. Sveinn Björnsson, bóndi á Vík- ingavatni í Kelduhverfi, er látinn. Þegar vinur deyr myndast tómarúm sem fyllist smátt og smátt af kærum minningum. Sveinn var tilfinninga- ríkur, félagslyndur og mikill gleði- gjafi. Hann var hreykinn af jörð sinni og ætt. Á Víkingavatni var alltaf opið hús. Þar var mannmargt og gestkvæmt. Sveinn og kona hans, Guðrún, ólu ekki einungis upp sín eigin börn heldur átti stór hópur skyldra og óskyldra barna og unglinga athvarf á Víkingavatni sumur og vetur. Má þar nefna Eggert, Eirík og Bjarna Þór, sem ólust að miklu leyti upp undir handarjaðri þessara heiðurs- hjóna. Ég minnist Sveins við bústörfin heima á Víkingavatni og á manna- mótum. Ávallt var hann glaður og reifur. Oft var mikill trjáreki á Vík- ingavatni. Sveinn hirti reka sinn vel. Hann kunni manna best að sjá út spýtu og var listamaður með sleggju og fleiga. Gaman hafði Sveinn af að rifja upp minningar frá æskuárum. Þá voru stundaðar íþróttir og ýmsar aflraunir sem sjást ekki lengur, eins og að fara í krók, krumlu eða að draga kefli. Þetta voru uppáhalds- íþróttir Sveins. Hann var vel að manni; samanrekinn og grimmsterk- ur. Einu sinni sem oftar var Sveinn fulltrúi UMF Leifs heppna í Keldu- hverfi á sambandsfundi UNÞ sem haldinn var austur í Holti eða á Gunnarsstöðum í Þistilfirði. Þar voru vaskir menn sem glímdu og reyndu með sér í ýmsum íþróttum. „Ég dró þá alla á kefli nema einn, sem var alveg grjót, ekki eðlilegur. Ég hreyfði hann ekki,“ sagði Sveinn. Hann var snjall spilamaður og spil- aði jónu, manna, marías, tíkort, vist og félagsvist en mesta unun hafði hann af því að spila lomber. Þeir voru góðir saman við spilaborðið sveitungarnir og vinirnir; Þórarinn í Laufási, Óli í Eyvindarholti, Kristján í Hlíðargerði, Björn í Lóni, Þórarinn í Skúlagarði og Sveinn. Glatt var á hjalla og gjarnan spilað fram á rauða nótt. Víkingavatnshjón, Sveinn og Guð- rún, voru kærir vinir foreldra minna, Björns og Þorbjargar í Austurgörð- um, og áttu þau margar góðar stund- ir saman. Um leið og ég kveð góðan vin sendi ég ástvinum hans innilegar samúðarkveðjur. Þórarinn Björnsson frá Austurgörðum.                                         !"   # $  $ %   &$ '  '     (  $ $  $ % )  $ *'*++ , + - .* *                                      !  "   !    #$ %   & '$    (       "   )*$                                             !     " !                                         !"    " #$ %   &' (!  !"  )#   )#&# ! %  *$%    %  +*( ," %  - . #/" !"  0 01 % 0 0 01 2                                               ! "" # !  $%   & !  " '  '%  ! '  '  '% (                                             !! "#!  $%!$$     !! &  & !$$  ''(   ''( )                               !    "  # $ %   &                                 !!  "# $# "# %   &  "!!  "# '   "%  ( ) &#    !! * &  $  !! +                                     ! "#$$%# #  # $$%#  &#' ! "' ##$( &!)%& *  $( "#   &$$%#  &#' ! *  $(  # +  $$%# #( ,-&  ( *.  / &#0$$%#  # #  ( -$! #%#$$%# #&  %$##  $%#  &  , "' ##$( "# ,-#  !$$%# %& ) # )-#+
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.