Morgunblaðið - 06.01.2001, Side 51
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 51
SKÁK.IS og Skáksamband Ís-
lands stóðu sameiginlega að vali
skákmanns ársins 2000. Í ljósi
þess, að skákmenn hafa verið fljót-
ir að tileinka sér þá möguleika sem
Netið býður upp á og að sífellt
fleiri Íslendingar tefla á Netinu
var ákveðið að velja skákmann árs-
ins á langvinsælasta íslenska
skákvefnum, skák.is. Valið var þó
ekki látið algjörlega í hendur skák-
áhugamanna, heldur tilnefndi
Skáksamband Íslands sjö skák-
menn sem velja mátti um. Stór-
meistarinn Hannes Hlífar Stefáns-
son vann öruggan sigur og á
vissulega skilið að hljóta titilinn
skákmaður ársins 2000. Tveir ung-
ir og efnilegir skákmenn, Bragi
Þorfinnsson og Jón Viktor Gunn-
arsson lentu í öðru og þriðja sæti.
Alls greiddu 122 skákáhugamenn
atkvæði í kosningunni. Úrslit urðu
sem hér segir:
1. Hannes Hlífar Stefánsson 58 atkv.
2. Bragi Þorfinnsson 25 atkv.
3. Jón Viktor Gunnarsson 12 atkv.
4. Stefán Kristjánsson 11 atkv.
5. Helgi Ólafsson 6 atkv.
6. Margeir Pétursson 5 atkv.
7. Þröstur Þórhallsson 3 atkv.
Meðal afreka Hannesar árið
2000 má nefna glæsilegan sigur
hans á Reykjavíkurskákmótinu,
sem var afar sterkt og margir
þeirra skákmanna sem tóku þátt í
því hafa verið mikið í sviðsljósinu
síðan þá. Hann sigraði einnig á
svæðismóti Norðurlanda sem hald-
ið var í Reykjavík sl. haust og vann
þar með rétt til að keppa á heims-
meistaramótinu og þar var hann
reyndar eini fulltrúi Íslands.
Hannes sigraði einnig á alþjóðlegu
skákmóti í Portúgal. Þá leiddi
hann sveit Íslands á Ólympíu-
mótinu í skák. Hannes tefldi á
fyrsta borði fyrir Íslandsmeistara
Hellis á Íslandsmóti skákfélaga sl.
vor og í haust leiddi hann sveit
Hellis sem varð Norðulandameist-
ari á fyrsta Norðurlandamóti tafl-
félaga.
Stefán Kristjánsson efnileg-
asti skákmaður ársins
Samhliða vali á skákmanni árs-
ins fór fram ekki síður athyglis-
verð kosning um efnilegasta skák-
mann ársins. Skáksambandið
tilnefndi fimm skákmenn sem
hægt var að velja um á skák.is.
Þar vann Stefán Kristjánsson
öruggan sigur. Sigurður Páll
Steindórsson varð annar og Guð-
mundur Kjartansson þriðji. Alls
greiddu 107 atkvæði. Úrslit urðu
sem hér segir:
1. Stefán Kristjánsson 47 atkv.
2. Sigurður Páll Steindórsson 30 atkv.
3. Guðmundur Kjartansson 16 atkv.
4. Dagur Arngrímsson 8 atkv.
5. Halldór Brynjar Halldórson 6 atkv.
Allir þessir ungu skákmenn eru
undir smásjánni hjá íslenskum
skákáhugamönnum sem sjá í þeim
stórstjörnur framtíðarinnar. Stef-
án Kristjánsson var eini íslenski
skákmaðurinn sem náði alþjóðleg-
um áfanga árið 2000. Þeim áfanga
náði hann á Íslandsmótinu þar sem
hann hafnaði í þriðja sæti. Stefán
náði einnig mjög góðum árangri á
opna tékkneska meistaramótinu,
sem er að verða eitt vinsælast er-
lenda skákmótið meðal íslenskra
skákmanna. Þessi árangur Stefáns
varð til þess að hann var í fyrsta
sinn valinn í Ólympíusveit Íslands.
Stefán Kristjánsson er jafnframt
Íslandsmeistari í netskák.
Leko minnkar muninn
Heimsmeistarinn Vladimir
Kramnik og fjórði stigahæsti skák-
maður heims, Peter Leko, eigast
þessa dagana við í atksákeinvígi í
Búdapest í Ungverjalandi. Einvíg-
ið samanstendur af 12 skákum þar
sem hvor keppandi fær 25 mínútna
umhugsunartíma. Eftir fyrstu sex
skákirnar leiðir Kramnik með 3½
vinningi gegn 2½ vinningi Lekos.
Hægt er að fylgast með skákunum
í beinni útsendingu á heimasíðu
einvígisins www.chessgate.de, en
þær teflast á milli kl. 16 og 18 að
íslenskum tíma.
Í fimmtu skákinni hóf Kramnik
skákina með gömlum uppáhalds-
leik sínu, 1. Rf3, í stað þess að gefa
Leko kost á að tefla Grünfeld-
vörn, sem þó reyndist Kramnik vel
í fyrstu skákinni. Upp kom enskur
leikur og Leko beitti „broddgalt-
aruppstillingu“ þar sem hvítur
þarf stöðugt að vera á varðbergi
gagnvart hugsanlegu gegnumbroti
svarts á drottningarvæng eða mið-
borði. Þetta er ekki óskynsamleg
ákvörðun í atskák þar sem hver
mínúta skiptir máli. Enda þótt
Kramnik slyppi ágætlega yfir í
miðtaflið kom að því, að honum yf-
irsást lúmsk gildra Lekos og var
kominn með verra tafl í þrítugasta
leik. Leko fylgdi ávinningnum fast
eftir og knúði Kramnik til upp-
gjafar eftir 44 leiki.
Leko hafði hvítt í sjöttu skákinni
og hafði greinilega fengið nóg af
því að berja höfðinu við Berlínar-
vegginn og kaus þess í stað Vín-
arleik. Kramnik átti ekki í erfið-
leikum með að jafna taflið og
þegar leið á skákina voru ýmsir
farnir að gera að því skóna, að
Kramnik mundi vinna skákina.
Leko missti peð eftir 18. leik sinn,
en tókst að vinna það til baka og
skákin leystist upp í jafntefli eftir
40 leiki.
Ekki verður teflt í dag, en á
morgun verða sjöunda og áttunda
skák einvígisins tefldar.
Skákþing Reykjavíkur 2001
Skákþing Reykjavíkur hefst á
morgun, hinn 7. janúar, og lýkur
þann 31. janúar. Tefldar verða 11
umferðir eftir svissnesku kerfi
með umhugsunartímanum 1½ klst.
á 30 leiki og svo 45 mínútur til að
ljúka skákinni. Umferðir verða á
miðviku- og föstudögum kl. 19:30
og á sunnudögum kl. 14. Umferð-
um á virkum dögum lýkur kl. 24,
en sunnudagsumferðunum lýkur
kl. 18:30. Skákþingið er opið öllum
og verður það reiknað til alþjóð-
legra skákstiga. Mikill áhugi virð-
ist vera á mótinu og eru skákmenn
jafnt ungir sem aldnir, lengra
komnir sem byrjendur, hvattir til
að taka þátt í þessu vinsæla móti
þar sem keppt er um sæmdarheit-
ið skákmeistari Reykjavíkur. Tek-
ið er við skráningum í mótið í síma
TR 568 1690, á faxi 588 4113 eða
með tölvupósti: rz@itn.is.
Atkvöld á mánudag
Taflfélagið Hellir stendur fyrir
einu af sínum vinsælu atkvöldum á
mánudagskvöld. Tefldar verða sex
umferðir, þrjár hraðskákir og
þrjár atskákir. Mótið hefst klukk-
an 20 og er öllum opið. Þátttöku-
gjald er 300 krr. fyrir félagsmenn
(200 kr. fyrir 15 ára og yngri) og
500 kr. fyrir aðra (300 kr. fyrir 15
ára og yngri).
Atkvöld Hellis eru haldin einu
sinni í mánuði. Á síðasta atkvöldi
sigraði Stefán Kristjánsson, sem
hlaut 5½ vinning í 6 skákum.
Mót á næstunni
7.1. SA. 15 mín. mót (45 og e.)
7.1. TR. Skákþing Reykjavíkur
8.1. Hellir. Atkvöld
20.1. TR. SÞR, unglingaflokkur
Hannes Hlífar
skákmaður
ársins 2000
Daði Örn Jónsson
SKÁK
S k á k . i s
SKÁKMAÐUR ÁRSINS
OG EFNILEGASTI
SKÁKMAÐUR ÁRSINS
Desember 2000
Stefán
Kristjánsson
Hannes Hlífar
Stefánsson
KENNSLA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri sem hér segir:
Austurvegur 56, Seyðisfirði, þingl. eig. Helga Kristjánsdóttir, gerðar-
beiðandi Lífeyrissjóður Austurlands, miðvikudaginn 10. janúar 2001
kl. 11.00.
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði,
5. janúar 2001.
Nám í svæðameðferðar-
skóla Þórgunnu
Viðkennt af Svæðameðferðafélagi
Íslands.
Fornám byrjar helgina til 13.—14. janúar nk.
Upplýsingar og innritun milli kl. 10 og 12 í
símum 552 1850 og 896 9653, símsvari á
öðrum tímum 562 4745.
TILKYNNINGAR
Hin rómaða janúarútsala hjá Gvendi
dúllara hefst í dag.
Mikið magn góðra bóka á 200 kr. stk.
Aðrar bækur með 50% afslætti.
Látið ekki happ úr hendi sleppa.
Gvendur dúllari — bestur í bókum.
Gleðistíg, Kolaportinu.
Borgarstjórinn
í Reykjavík
Hirðing jólatrjáa
Starfsmenn gatnamálastjóra í Reykjavík
munu annast hirðingu jólatrjáa dagana
8. — 12. janúar.
Þeir borgarbúar, sem vilja nýta sér þessa
þjónustu, eru vinsamlegast beðnir að
setja jólatrén út fyrir lóðamörk og
verða þau þá fjarlægð.
Eftir 12. janúar eru íbúar beðnir um að
snúa sér til gámastöðva Sorpu.
Þá eru íbúar sem fyrr hvattir til að hirða
upp leifar af skoteldum og blysum í
nágrenni sínu.
Höldum borginni okkar hreinni!
Með nýárskveðju.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Landsst. 6001010615 I Rh. kl.
15.00
Munið blysförina í dag kl. 17
frá Perlunni.
Ekkert gjald, blys seld á 300 kr.
Gengið um Öskjuhlíð að þrett-
ándabrennu Vals.
Stardalshnjúkar — Tröllafoss
í Mosfellssveit á morgun,
sunnud. 7. jan. kl. 11:00 frá
BSÍ og Mörkinni 6. Fararstjóri
Eiríkur Þormóðsson, þátttökugj.
1000 kr. Búast má við hálku. Um
3ja klst. ganga. Myndasýning
10. jan. Guðmundur Páll
Ólafsson kynnir náttúru
Íslands í máli og myndum.
Ferðaáætlunin 2001 er komin út.
www.fi.is, textavarp RUV bls.
619. S. á skrifstofu 568 2533.
Sunnudagur 7. janúar kl. 10.
Nýársferð í Krýsuvíkurkirkju
og Herdísarvík. Áð í Krýsvíkur-
kirkju og í Herdísarvík. Fræðst
um búsetu á þessum slóðum,
m.a. síðustu æviár Einars Ben.
og skoðað Einarshús. Rölt um
ströndina, fjörubál. 25 ár frá
fyrstu kirkjuferð Útivistar. Séra
Pétur Þorsteinsson verður með í
för. Verð 1.700 kr. f. félaga og
1.900 kr. f. aðra. Frítt f. börn.
Miðar seldir í farmiðasölu. Brott-
för frá BSÍ. Stansað v. kirkjarð-
inn í Hafnarfirði.
Tunglskinsganga (fullt tungl)
- blysför á fullu tungli 9. janú-
ar. Nýju ferðaári fagnað á
slóðum álfa og trölla í Heið-
mörk. Mæting kl. 20.00 við
áningarstaðinn hjá Hraun-
túnstjörn (ekið um Rauð-
hóla). Byrjið betra líf með
Útivist á nýju ári!
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Stangaveiðimenn athugið
Flugukastskennslan hefst sunnudaginn 7. jan.
í TBR húsinu, Gnoðarvogi 1, kl. 20.00.
Kennt verður 7., 14., 21. og 28. jan. og 4. feb.
Við leggjum til stangir. Mætið tímanlega.
Skráning á staðnum gegn greiðslu
(ekki greiðslukort). Takið með ykkur inniskó.
KKR, SVFR og SVFH.
GARÐYRKJUSKÓLI ríkisins og
Skógrækt ríkisins verða með tvö
námskeið á næstunni sem nefnast;
Að lesa í skóginn og tálga tré. Fyrra
námskeiðið er ætlað byrjendum og
verður haldið í húsakynnum Garð-
yrkjuskólans helgina 12.–14. janúar.
Námskeiðið er alls 20 klukkustundir,
hefst kl. 16 á föstudegi og lýkur kl. 15
á sunnudegi. Leiðbeinendur verða
Guðmundur Magnússon, smíða-
kennari á Flúðum, og Ólafur Odds-
son, starfsmaður Skógræktar ríkis-
ins.
Unnið verður með ferskan við
beint úr skógi, kenndar gamlar
handverksaðferðir þar sem exi og
hnífar eru notaðir, lesið í eiginleika
viðarins og fjölbreytt notagildi,
geymslu og þurrkun.
Síðara námskeiðið er framhalds-
námskeið fyrir þá sem hafa sótt
byrjendanámskeiðið. Það verður
haldið helgina 19.–21. janúar í
Steinahlíð á Flúðum. Um sömu tíma-
setningu og leiðbeinendur er að
ræða og á námskeiðinu í Garðyrkju-
skólanum. Á námskeiðinu verða rifj-
aðar upp vinnuaðferðir en lögð meg-
in áhersla á ný verkefni s.s.
húsgagnagerð úr fersku efni beint úr
skóginum, samansetningar án líms
eða nagla, krókstafagerð, skeftingu
handverkfæra og fleiri nýtingar-
möguleika á grönnu grisjunarefni.
Skráning á námskeiðin fer fram á
skrifstofu Garðyrkjuskólans alla
virka daga á skrifstofutíma eða í
gegnum netfangið; mhh@ismennt-
.is.
Garðyrkjuskólinn
Tvö
námskeið
í boði
í byrjun
ársins