Morgunblaðið - 06.01.2001, Síða 56

Morgunblaðið - 06.01.2001, Síða 56
56 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ GUÐMUNDUR Karl Jónsson sendi mér opið bréf í Morgunblaðinu á að- fangadag. Í bréfinu fjallar hann um Jarðgangaáætlun og beinir spurn- ingum til mín. Auk þess setur hann fram full- yrðingar um nei- kvæða afstöðu Norðlendinga til jarðganga sem komu mér nokkuð á óvart. Guð- mundur Karl full- yrðir að „stór hluti Norðlendinga hafi snúist gegn jarðgöngum milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar“. Hann segir að íbúar við Eyjafjörð, í Skagafirði, á Sauð- árkróki, Akureyri og Dalvík hafi snú- ist gegn jarðgöngum. Þetta eru at- hyglisverð tíðindi að norðan og koma mér á óvart. Leyfi ég mér að efast um að mat greinarhöfundar sé rétt miðað við þá áherslu sem lögð hefur verið á jarðgöng og tengingu Eyja- fjarðar og Skagafjarðar af hálfu stjórnenda þessara héraða, ekki síst Eyfirðinga, sem gera sér vel ljóst hversu miklu skiptir að bæta sam- göngur milli Skagafjarðar og Eyja- fjarðarsvæðisins. Greinarhöfundur vill vita hvort Austfirðingar eigi að „sitja á hakanum“ með jarðgöng meðan undirritaður er samgöngu- ráðherra. Vegna þeirrar spurningar vil ég lýsa stöðu mála. Samkvæmt Jarðgangaáætlun munu Austfirðing- ar síður en svo sitja á hakanum og Vegaáætlun gerir ráð fyrir umfangs- miklum framkvæmdum á Austur- landi við vegagerð. Í samræmi við lög stendur yfir vinna við mat á umhverfisáhrifum vegna fyrirhugaðra jarðganga. Ann- arsvegar milli Siglufjarðar og Ólafs- fjarðar um Héðinsfjörð og hinsvegar milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðs- fjarðar. Á grundvelli Jarðgangaáætl- unar er unnið að umfangsmiklum rannsóknum á jarðfræði svæðisins og öðrum undirbúningi vegna hönn- unar og gerðar útboðsgagna. Gert er ráð fyrir því að bjóða út í einu lagi framkvæmdir við þessi göng. Er talið að með því fáist verulega meiri hag- kvæmni hjá verktökum sem geta gert áætlanir til margra ára. Að mati sérfræðinga mun sú aðferð leiða til minni kostnaðar. Ég hef lýst því yfir margoft og gerði það m.a. í um- ræðum á Alþingi að ákvörðun um röðun framkvæmda verður tekin þegar allar forsendur eru skýrar við undirbúning og þegar metin hafa verið tilboð í gerð jarðganga og allir þættir skoðaðir. Þegar um svo um- fangsmiklar framkvæmdir sem jarð- göngin eru verður ekki hjá því kom- ist að taka tillit til ástands á vinnumarkaði í landinu og í þeim landshlutum sem göngin fyrirhuguðu eru. Guðmundur Karl Jónsson þarf því ekki að örvænta fyrir hönd Aust- firðinga og ætti að kynna sér betur vilja Norðlendinga áður en hann full- yrðir frekar um andstöðu þeirra við ný Siglufjarðargöng. Þau munu án nokkurs vafa hafa mikil og heilla- vænleg áhrif á byggðina við Eyja- fjörð og raunar einnig í Skagafirði. Að lokum vil ég minna á að ekki er gert upp á milli jarðganga á Austur- landi og Siglufjarðarganga í Jarð- gangaáætluninni sem var samþykkt á Alþingi með atkvæðum allra þing- manna sem viðstaddir voru eftir miklar umræður. Samkvæmt sam- þykkt Alþingis er gert ráð fyrir því að samgönguráðherra taki ákvörðun um framkvæmdaröð þegar þar að kemur. STURLA BÖÐVARSSON samgönguráðherra. Opnu bréfi svarað Frá Sturlu Böðvarssyni: Sturla Böðvarsson ÞAÐ má undrum sæta sú svívirða sem viðhafðist í „lóðaútdrætti“ bæj- arráðs Mosfellsbæjar. Lengi hafa klíkuskapur og geðþóttaákvarðanir þótt loða við meirihluta bæjarstjórn- ar Mosfellsbæjar, en svei mér þá, aldrei held ég að jafn mikið siðleysi hafi átt sér stað eins og nú. Einhvern veginn hélt ég að í siðmenntuðum samfélögum væru lög og reglur í heiðri hafðar en sú stjórn eða óstjórn, eins og kannski frekar á við í þessu tilfelli, minnir einna helst á banana- lýðveldi í svörtustu Afríku. Meirihluti bæjarráðs heldur kannski að almenn- ingur sé svo skyni skroppinn að hann sjái ekki í gegnum óheiðarleg vinnu- brögð. Eitt er nú að velja þá sem eiga upp á pallborðið hjá meirihlutanum með úthlutun lóða, þar sem þeir sem mýkst strjúka fá mest, annað er svo sú siðblinda að breyta reglum og for- sendum eftir að umsækjendur hafa skilað inn umsóknum. Allt í einu eru umsóknir „utanbæjarmanna“ ekki teknar gildar og fleygt út úr hinum mikla „lóðaútdráttarpotti“. Það mætti halda að fólk sem ekki á lög- heimili í Mosfellsbæ sé annars flokks og ekki æskilegt að gera því kleift að flytja þangað. Jafnvel þó, eins og í mínu tilfelli, að ég sé borinn og barn- fæddur Mosfellingur og á mínar ætt- ir að rekja þangað eru það bersýni- lega svik af minni hálfu að hafa flutt úr sveitinni. Ég leyfi mér að draga í efa sú ótrúlega heppni ýmissa aðila sem dregnir voru úr „lukkupottin- um“ hafi verið alveg með eðlilegum hætti. Nágrannar halda áfram að vera nágrannar vegna einlægrar ósk- ar um það, það náttúrulega hefur ekkert að segja að annar þeirra situr í nefnd á vegum bæjarstjórnar og styður þar að auki meirihluta bæj- arstjórnar. Eins er það líka algjör „heppni“ þegar makar þeirra sem sitja í meirihluta bæjarstjórnar eru dregnir úr pottinum góða. Ef einhver vottur af sómatilfinningu er til staðar hjá meirihluta bæjarstjórnar þá ættu þeir að afturkalla úthlutunina og draga að nýju en nú án þess að fara í manngreinarálit. UNNUR ÞORMÓÐSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur frá Blómsturvöllum í Mosfellsbæ. Lóðahappdrætti í Mosfellsbæ? Frá Unni Þormóðsdóttur:                                       !         BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.