Morgunblaðið - 06.01.2001, Page 60
FÓLK Í FRÉTTUM
60 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BJARKI Pjetursson, 10 ára gamall
knattspyrnukappi og KR-ingur í
húð og hár, var á dögunum boðið í
heimsókn til eftirlætis liðs síns í
Englandi, Liverpool. Það var góð-
vinur hans, Haukur Ingi Guðnason,
sem leikur með Liverpool og strák-
arnir í meistaraflokk KR sem buðu
Bjarka í þessa kærkomnu ferð.
Hjá Liverpool fékk Bjarki að
mæta á æfingu og fylgjast með því
hvernig atvinnumennirnir æfa og
koma sér í það form sem gerir þá
svo hæfa. Að sjálfsögðu æfði
Bjarki með og segir æfingarnar
hafa verið góðar og gagnlegar.
Hann segir þær þó hafa verið
býsna léttar sem stafi af því að það
er svo stutt á milli leikja í Englandi
og sumir leikmannanna hafi verið
meiddir. Hápunktur heimsókn-
arinnar fyrir Bjarka var þó að
hitta allar hetjurnar sínar úr bolt-
anum, m.a. þá Michael Owen, Pat-
rik Berger, Christian Ziege og Titi
Camara.
Sjálfur æfir Hjalti fótbolta með
KR af fullum krafti. Hann segist
fyrst hafa farið að láta til sín taka
með KR-ingum þegar hann var
fjögurra ára þegar hann var gerð-
ur að aðstoðarmanni á varamanna-
bekk liðsins, fyrst hjá bróður sín-
um, Árna Inga, sem leikur með
meistaraflokki KR, og síðan hjá
bróður sínum, Hansi Ragnari, sem
leikur með 3. flokki KR. Síðastliðin
tvö ár hefur Hjalti svo verið sérleg
hjálparhella á varamannabekk
meistaraflokks, fyrst hjá Atla Eð-
valdssyni landsliðsþjálfara og þá-
verandi þjálfara KR, en síðan hjá
Pétri Péturssyni nú síðasta sumar.
Það vekur athygli að bæði árin
hafa KR-ingar orðið Íslandsmeist-
arar og því vaknar sú spurning
ósjálfrátt hversu stóran þátt Hjalti
á í velgengni liðsins undanfarið.
Ungur KR-ingur í heimsókn hjá Liverpool
Hér heldur Tékkinn hárfagri, Patrik Berger, utan
um nýjan vin sinn, hann Hjalta.
Bjarki hafði gaman af því að hitta eina skærustu
stjörnu Liverpool, markvarðahrellinn Michael Owen.
Bjarki hitti fleiri hetjur frá Liv-
erpool en fótboltahetjur. Hér
stillir hann sér upp við hlið styttu
af einum dáðasta syni borgarinn-
ar, Bítlinum John Lennon.
Hitti hetjurnar sínar
FÉLAGSMIÐSTÖÐIN Tónabær
hélt á dögunum árlega ljóða- og
smásagnakeppni á meðal unglinga
þeirra skóla sem eru í nágrenni við
Tónabæ. Tilgangur keppninnar er
að auka áhuga fyrir skrifum og
virðist hann hafa náðst því þátt-
taka var með miklum ágætum.
Dómnefndina skipuðu rithöfund-
arnir ungu Guðrún Eva Mínervu-
dóttir og Andri Snær Magnason
og fór verðlaunaafhending fram á
jólaballi Tónabæjar sem haldið var
20. desember síðastliðinn.
Aðalverðlaun smásagnakeppn-
innar hlaut Sigríður Soffía Níels-
dóttir, nemandi Háteigsskóla, fyrir
söguna Útburðurinn. Í ljóðakeppn-
inni sigraði Hafsteinn Tómas
Sverrisson, nemandi Austurbæjar-
skóla, fyrir ljóð sín „Ástin“ og
„Það var fyrir langa löngu“. Í öðru
sæti, að mati dómnefndar, lenti
Birta Benónýsdóttir, nemandi
Austurbæjarskóla, fyrir ljóðið
„Ljós“ og í því þriðja Haukur
Pálsson úr Háteigsskóla fyrir ljóð-
ið „Helvítis fuglinn“.
Árleg ljóða- og smásagnakeppni Tónabæjar
Hafsteinn Tómas Sverrisson, Birta Benónýsdóttir, Haukur Pálsdóttir
og Sigríður Soffía Níelsdóttir.
Unglingar áhugasamir
um skáldskap
Fjölskyldugildi
(Relative Values)
G a m a n m y n d
Leikstjóri: Eric Styles. Handrit:
Paul Ratigan, Michael Walker. Að-
alhlutverk: Julie Andrews, William
Baldwin, Jeanne Tripplehorn,
Stephen Fry. (85 mín) Bretland,
1999. Bergvík. Öllum leyfð.
FJÖLSKYLDUGILDI er létt
kómedía byggð á leikriti eftir
breska leikskáldið Noel Coward.
Þetta er skemmti-
legt verk sem
fjallar einkum um
árekstur stétta og
menninga, en það
eru einkum gildi
bresks aðalsfólks
um miðja öldina
sem tekin eru til
athugunar.
Árekstrarnir hefj-
ast þegar hinn ungi og ólofaði jarl
af Marshwood trúlofar sig banda-
rískri kvikmyndastjörnu, og heldur
með hana heim á ættaróðalið til að
kynna hana fjölskyldu sinni. Fólk-
inu heima þykir daman hins vegar
heldur óhefluð og gerir móðirin allt
sem í hennar valdi stendur til að fá
örlögin til að grípa inn í. Það er
margt til í leikritinu sem slíku,
ekki síst hárfínni kaldhæðninni að
baki öllu saman, sem ef til vill er
dempuð fullmikið hér. Víða er at-
burðarásin stirðbusaleg, og leik-
stjórnin veik á svellinu. Það sést
ekki síst af því hversu misvel ann-
ars ágætir leikarar fá að njóta sín,
og ber þar helst að nefna þau Julie
Andrews, sem leikur móðurina
ráðagóðu, og Stephen Fry sem
leikur hinn sígilda bryta.
Heiða Jóhannsdótt ir
MYNDBÖND
Ekki
nógu fín
www.mbl.is
Í HLAÐVARPANUM
Missa Solemnis
helgieinleikur á síðasta degi jóla
9. sýn. lau. 6. jan kl 17:30 síðasta sýning
„Jórunn Sigurðardóttir flutti einleikinn frá-
bærlega..einstök helgistund í Kaffileikhúsinu“
(SAB Mbl).
Stormur og Ormur
22. sýn. sun. 14. jan. kl 15:00
23. sýn. sun. 21. jan. kl 15:00
„Halla Margrét fer á kostum“. (GUN Dagur)
„Óskammfeilni ormurinn...húmorinn hitti beint
í mark...“ SH/Mbl
Eva
bersögull sjálfsvarnareinleikur
5. sýn. þri. 9. jan kl 21:00
6. sýn. fös. 12. jan kl 21:00
7. sýn. fim. 18. jan kl 21:00
8. sýn. lau. 20. jan kl 21:00
„...textinn er bæði skemmtilegur og sannur í allri
sinni tragi-kómik...ég skora á [konur]að fjölmenna
og taka karlana með...“ (SAB Mbl.)
Háaloft
geðveikur svartur gamaneinleikur
18. sýn laugardag 13. jan kl 21:00
19. sýn þriðjudag 16. jan kl 21:00
20. sýn laugardag 20. jan kl 21:00
„Áleitið efni, vel skrifaður texti, góður leikur og
vönduð umgjörð.“ (SAB Mbl)
„... undirtónninn sár og tregafullur.“ (HF DV)
!"
#
$%
& '(
#')*+
)#
,,,#
#
Litla svið
ABIGAIL HELDUR PARTÍ e. Mike Leigh
Í KVÖLD: Lau 6. jan kl. 19
Lau 3. feb kl. 19
Stóra svið
SKÁLDANÓTT e. Hallgrím Helgason
Í KVÖLD: Lau 6. jan kl. 19
Lau 13. jan kl. 19
Stóra svið
MÓGLÍ e. Rudyard Kipling
Sun 7. jan kl. 14 - UPPSELT
Sun 14. jan kl. 14
Litla svið
ÖNDVEGISKONUR e. Werner Schwab
Fim 11. jan kl. 20 Hátíðarsýning í tilefni af
104 ára afmæli L.R. - UPPSELT
Fös 12. jan kl. 20 Frumsýning - UPPSELT
Þýðandi: Þorgeir Þorgeirson
Leikarar: Hanna María Karlsdóttir, Margrét
Helga Jóhannsdóttir og Sigrún Edda
Björnsdóttir
Hljóð: Ólafur Örn Thoroddsen
Leikgervi: Sigríður Rósa Bjarnadóttir
Lýsing: Elfar Bjarnason
Leikmynd og búningar: Snorri Freyr
Hilmarsson
Leikstjórn: Viðar Eggertsson
552 3000
Á SAMA TÍMA SÍÐAR KL. 20
fim 11/1 UPPSELT
lau 13/1, E&F kort gilda örfá sæti
sun 14/1 Aukasýning
fim 18/1 Aukasýning
fös 19/1, G&H kort gilda nokkur sæti
lau 27/1 I kort gilda, nokkur sæti laus
SJEIKSPÍR EING OG
HANN LEGGUR SIG
lau 6/1 kl. 19 nokkur sæti laus
fös 12/1 kl. 20
lau 20/1 kl. 20
fös 26/1 kl. 20
530 3030
SÝND VEIÐI
lau 6/1 kl. 20 örfá sæti laus
fös 12/1 kl. 20
lau 20/1 kl. 20
TRÚÐLEIKUR
sun 7/1 kl. 20 örfá sæti laus
fim 11/1 kl. 20 örfá sæti laus
fös 19/1 kl. 20
Miðasalan er opin kl. 12-18 virka daga, kl. 14-18
um helgar og fram sýningu alla sýningardaga.
Hópasala fyrir leikhús og/eða veitingahús er
í síma 530 3042, opið kl. 10-16 virka daga.
Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýning hefst.
midasala@leik.is — www.leik.is
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sviðið kl. 20.00:
-./01/21/134
5.6
( 7 (
( 7 (
89:;8
( 7 (<
( 7 (<
=-83991/88
7
>!"#$
#
#%&
9 > '
? >()#"*
#"))#
'@ 6A >+,-
.
-
>/ #/-# )-*
%
&
( >
0#)*
%"&+)
1
#%#&/#.
#!"#&*
%2
#3 !&#
&3 4#5
#"))#6( -#"))#
4#)7&#
70#)4 '"))#5
#8#-9#:#&&
8#
#
)#<
&
Smíðaverkstæðið kl. 20.00:
201B0:/;9
6
(!!
&
=9C.81/DE.% F"
8 &
,,,#
5(# 'G
5(# ;)##<
#
!'H#IJ ##
$I
K<'#I(##
$I+#