Morgunblaðið - 24.01.2001, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.01.2001, Blaðsíða 1
19. TBL. 89. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 24. JANÚAR 2001 ÍSRAELSSTJÓRN ákvað í gær að fresta friðarviðræðunum við Palest- ínumenn þar til gerð hefði verið útför tveggja Ísraela sem fundust skotnir á Vesturbakkanum í gær. Fulltrúar Palestínumanna sögðu í gær, að yf- irlýsing Ehuds Baraks, forsætisráð- herra Ísraels, um að Ísraelar ætluðu sér yfirráð í Austur-Jerúsalem hefði líklega gert að engu vonir um árang- ur af viðræðunum í Taba í Egypta- landi. Lík Ísraelanna tveggja fundust skammt frá bænum Tulkarem, sem er á valdi Palestínumanna, og voru af- hent Ísraelsher. Sögðu fyrstu fréttir, að um hefði verið að ræða hermenn en svo var ekki, heldur óbreytta borg- ara. Í yfirlýsingu frá Ísraelsstjórn sagði, að hún myndi hafa hendur í hári morðingjanna. Barak, sem á undir högg að sækja fyrir Ariel Sharon, leiðtoga Likud- flokksins, sagði á kosningafundi í skóla í Tel Aviv, að Austur-Jerúsalem ætti að vera undir stjórn Ísraela en hafa mætti Palestínumenn með í ráð- um um daglegan rekstur. „Við munum tryggja, að Grátmúr- inn og Olíufjallið verði undir okkar stjórn og að sjálfsögðu Gamla borgin líka,“ sagði Barak. Þvert á forsendur viðræðna Saeb Erekat, helsti samningamað- ur Palestínumanna, sagði, að yfirlýs- ing Baraks gengi þvert á forsendur viðræðnanna í Taba og þvert á áætlun Bills Clintons fyrrverandi Banda- ríkjaforseta. Kvað hann Palestínu- menn vísa yfirlýsingunni á bug enda væri með henni verið að gera viðræð- urnar marklausar. Pútín, forseti Rússlands, sagði í gær, að ekki væri neins að vænta af viðræðum Ísraela og Palestínumanna fyrr en að loknum forsætisráð- herrakosningunum í Ísrael 6. febrúar og ekki fyrr en ríkisstjórn George W. Bush Bandaríkjaforseta hefði mótað stefnu sína í málefnum Mið-Austur- landa. Kom þetta fram á fundi hans með Moshe Katsav, forseta Ísraels, sem nú er í heimsókn í Moskvu. Friðarviðræðunum frestað vegna dauða tveggja Ísraela Barak krefst yfir- ráða í A-Jerúsalem Taba, Moskvu. AFP, AP. STJÓRNVÖLD í Ekvador lýstu í gær yfir neyðarástandi á Galapagos-eyjum en óttast er, að mikil olíumengun geti valdið al- varlegum skaða á sérstæðu dýra- lífi eyjanna. Hér bíða tvær græn- eðlur þess sem verða vill en úti í flóanum er olíuskipið Jessica hálf- sokkið. Talið er, að 640 tonn af olíu hafi lekið úr því og í gær var skýrt frá því, að lekinn hefði auk- ist. Var skipið með um 900 tonn er það strandaði. Er olíuflekkur- inn frá því um 1.200 ferkm stór og hefur þegar valdið nokkrum skaða. Hefur nokkuð fundist af dauðum fiski en mesta hættan er talin steðja að sæljóna- og græn- eðlubyggðunum á eyjunum. Risa- skjaldbökunum er hins vegar talið óhætt þar sem þær lifa ekki ná- lægt sjónum. Reuters Græneðl- urnar á Galapagos  Neyðarástand/23 VIÐRÆÐUM Cörlu Del Ponte, aðalsaksóknara stríðsglæpadóm- stóls Sameinuðu þjóðanna í Haag, og Vojislavs Kostunica, forseta Júgóslavíu, lauk í Belgrad í gær án nokkurs árangurs. Neitaði Kostunica að framselja Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseta, og aðra serbneska sakborninga. Fundur þeirra Del Ponte og Kostunica stóð í klukkutíma og það leyndi sér ekki, að Del Ponte var reið er hún gekk út. Neitaði hún að ræða við fréttamenn en í yfirlýsingu frá skrifstofu Kost- unica sagði, að viðræðurnar hefðu staðfest „mikinn ágreining“ með þeim. Í viðræðunum hélt Kostunica því fram, að setja yrði ný lög í Júgó- slavíu til að unnt væri að vinna með stríðsglæpadómstólnum en Del Ponte hafnaði því. Þá fann Kostunica að því, að dómstóllinn hefði aðallega dregið Serba til ábyrgðar á voðaverkunum og í yf- irlýsingu hans segir, að reynt sé að „gera alla Serba samseka“. Yfirlýsing á morgun Florence Hartmann, talsmaður Del Ponte, sagði, að hún myndi gefa út „hreinskilna“ yfirlýsingu um viðræðurnar á morgun, fimmtudag, en þá heldur hún aftur til Haag. Kostunica og stjórn hans eiga mikið undir góðu samstarfi við stríðsglæpadómstólinn í Haag en í Serbíu er málið mjög viðkvæmt og erfitt viðureignar. Milosevic var ákærður fyrir stríðsglæpi 1999 og meðal annarra manna, sem stríðsglæpadómstóll- inn vill koma lögum yfir, eru Milan Milutinovic, núverandi forseti Serbíu, og Ratko Mladic, fyrrver- andi yfirmaður hers Bosníu-Serba. Del Ponte, aðalsaksóknari stríðsglæpadómstólsins, fór erindisleysu til Belgrad Kostunica neitaði að fram- selja Milosevic til Haag Belgrad. AP. NÝIR starfsmenn í Hvíta húsinu í Washington eiga í erfiðleikum með að skrifa rétt nafnið á forsetanum sínum, George W. Bush. Það er þó ekki vegna þess, að þeir kunni ekki að stafsetja það, heldur vegna þess, að hnappurinn fyrir „W“ í lyklaborði margra tölvanna er horfinn. Sumir starfsmanna Clintons kvöddu með þessum hrekk en Ari Fleischer, talsmaður Bush, segist bara taka þessu sem gríni. Chris Lehane, sem var talsmaður Als Gor- es, fyrrverandi varaforseta, segist hins vegar geta sér til, að hér sé um að ræða „víðtækt samsæri vinstri- manna“ og svar við hinu „víðtæka samsæri hægrimanna“, sem Hillary Clinton kenndi einu sinni um öll hneykslismálin sem eltu mann henn- ar á röndum. „W“-laust í Hvíta húsinu Washington. AFP. FIMM félagar í kínversku hugleiðslu- hreyfingunni Falun Gong reyndu í gær að stytta sér aldur á Tiananmen- torgi í Peking. Báru þeir eld að klæð- um sínum eftir að hafa hellt yfir þau bensíni og lést einn þeirra en hinir brenndust mikið. Áhangendur hreyf- ingarinnar hafa að undanförnu gripið til æ örvæntingarfyllri aðgerða í stríð- inu við stjórnvöld sem bönnuðu hreyf- inguna fyrir hálfu öðru ári. Milljónir manna gengu til liðs við Falun Gong á síðasta áratug en þar er lögð áhersla á líkamsæfingar og and- lega íhugun. Eiga þær að sögn að stuðla að bættri heilsu og aukinni ábyrgð en kommúnistastjórnin hefur illan bifur á hreyfingunni. Var lög- reglan með mikinn viðbúnað á Tian- anmen-torgi í gær vegna hugsanlegra mótmæla en í dag er mesta hátíð árs- ins í Kína í tilefni af nýju tunglári. Það voru karlmaður og fjórar kon- ur sem kveiktu í sér og lést ein konan af sárum sínum þótt lögreglumenn kæmu strax á vettvang. Smáir hópar Falun Gong-félaga efndu einnig til mótmæla annars staðar við torgið en voru handteknir strax. Hefur hreyf- ingin tekið upp á því að undanförnu að dreifa áróðursbæklingum meðal fólks og skrifa slagorð á húsveggi í Peking. Á myndinni má sjá reyk leggja upp þar sem fólkið kveikti í sér. AP Kveiktu í sér á Tianan- men-torgi Peking. AP. NORSKA Fiskistofan opnaði í fyrra- dag græna símalínu sem á að verða vopn í baráttu hennar gegn ýmiss konar misferli í sjávarútvegi. Í græna símann er hægt að hringja endurgjaldslaust allan sólarhringinn og þar geta menn sagt til þeirra sem hafa stundað kvótasvindl eða landað ólöglegum afla. Er þetta eitt af þeim ráðum sem Otto Gregussen sjávarút- vegráðherra hefur gripið til eftir að í ljós kom, að í norskum sjávarútvegi er um að ræða mikið misferli af ýmsu tagi. Talsmenn sjómanna eru þó ekk- ert hrifnir af þessum uppljóstrara- síma, sem þeir kalla svo. Græn lína gegn kvótasvindli Ósló. Morgunblaðið. ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.