Morgunblaðið - 24.01.2001, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 24.01.2001, Blaðsíða 20
LANDIÐ 20 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Eyja- og Miklaholtshreppi - Kven- félagið Sif á Patreksfirði hélt þorrablót sl. laugardagskvöld í félagsheimilinu á Patreksfirði. Húsfyllir var og sóttu skemmtunina um 260 manns. Hefð hefur skapast í kringum blótið og er það liður í fjáröflun kvenfélagskvenna. Þorrablótsnefnd hefur veg og vanda af skemmtuninni og kon- urnar sjálfar útbúa allan mat sem þar er framreiddur. Trogin voru borin á hvert borð og svignuðu und- an súrmat, harðfiski, hákarli, hangikjöti og sviðasultu og ekki voru hveitikökurnar og rúgkök- urnar af lakari endanum. Þessar kökur eru eitt af sérkennum Vest- fjarða og sjást ekki víða utan þeirra, nema helst hjá brottfluttum Vestfirðingum. Verða þær að telj- ast eitt af menningarverðmætum okkar í matargerð. Glæsilegar Sifjarkonur Kvenfélagskonur voru allar eins klæddar meðan þær framreiddu matinn, í svörtu og hvítu, með fal- legar merktar svuntur með nafni kvenfélagsins og hófu skemmtun- ina á því að fara allar upp á svið og syngja opnunarsöng sem hefst á þessu erindi: Halló! Eru allir hingað mættir? Núna byrjar blótið einu sinni enn. Hérna verða allir kættir með alls kyns fóðri, konur bæði og menn. Við byrjuðum í haust af gömlum vana að svíða punga, sjóða sultu og súrsa bringurnar. Síðan tók við andlegt efni og að baka kökurnar. Þær leika sér að þessu kellurnar. Mikill hlátur og gleði Þorrablótsnefndin sá einnig um að semja og flytja skemmtiatriði á þorrablótinu. Þau voru nokkurs konar spéspegill samfélagsins og glumdu hlátrasköll og dúndrandi lófatak um salinn meðan þau voru flutt og hlógu þeir gjarnan mest sem gert var grín að. Torfi Jónsson, fyrrverandi skip- stjóri og aflamaður, var mættur með myndbandsupptökuvélina sína til að taka upp skemmtiatriði þorrablótsins eins og hann hefur gert frá árinu 1991. Að loknum skemmtiatriðum tók við dunandi dans en BG og Margrét frá Ísafirði héldu uppi fjöri langt fram á nótt. Gestir þorrablótsins létu ekki sitt eftir liggja og var dansgólfið fullt allan tímann. Kvenfélags- konur með þorrablót á Patró Morgunblaðið/Guðrún G. Bergman Sifjarkonurnar Þórey, Styrgerður, Guðný, Dröfn, Anna, Nína og Gróa með glæsilegt matartrog. Morgunblaðið/Guðrún G. Bergmann Mikið var um söng og skemmtiatriði á þorrablótinu. Sauðárkróki - Við athöfn í Vestur- farasetrinu á Hofsósi síðastliðinn föstudag voru afhent Hvatningar- verðlaun Iðnþróunarfélags Norður- lands vestra en slík afhending fór nú fram í annað sinn. Það var Guðmundur Skarphéðins- son frá Siglufirði, stjórnarformaður í INVEST, sem afhenti Valgeiri Þor- valdssyni, framkvæmdastjóra Vest- urfarasetursins, viðurkenninguna sem er leirlistaverk eftir Grétu Jós- efsdóttur, listakonu á Hvamms- tanga. Í ræðu sinni sagði Guðmundur: „Valgeir Þorvaldsson hefur með uppbyggingu Vesturfarasetursins á Hofsósi sýnt kjark og áræði sem vakið hefur athygli landsmanna og einnig afkomenda Íslendinga í Norð- ur-Ameríku. Lagði hann upp með viðskiptahugmynd sem á sér enga hliðstæðu í íslensku samfélagi og hefur mikla menningarlega sér- stöðu. Uppbygging Vesturfaraset- ursins hefur tekist vel, aðsókn að setrinu hefur aukist ár frá ári og Ís- lendingadagurinn sem haldinn er um verslunarmannahelgi hefur áunnið sér sess, bæði sem hátíð Íslendinga og einnig fólks af íslensku bergi brotins í Norður-Ameríku. Á síðastliðnu sumari var opnuð sýning um för Íslendinga í Utah, í nýju húsi sem þá var opnað og hlaut við það tækifæri nafnið Frænda- garður.“ Valgeir Þorvaldsson þakkaði þá viðurkenningu sem felst í hvatning- arverðlaununum og sagði þá athygli sem Vesturfarasetrið hefur vakið hvatningu til enn frekari átaka. Að lokum þáðu gestir veitingar í boði Iðnþróunarfélagsins. Morgunblaðið/Björn Björnsson Guðmundur Skarphéðinsson, stjórnarformaður Invest, og Valgeir Þor- valdsson með hvatningarverðlaun Invest. Vesturfarasetrið hlaut Hvatningar- verðlaun INVEST Sauðárkróki - Fjölmenni var við opnun sýningar í Safnahúsinu á Sauðárkróki á ljósmyndum og ýmsum munum sem tengjast ut- anríkisþjónustu Íslendinga. Um er að ræða farandsýningu sem ber yfirskriftina: Yfirlit yfir þróun ís- lenskrar utanríkisþjónustu í sex- tíu ár. Það var Pétur Thorsteinsson, starfsmaður í utanríkisráðuneyt- inu, sem bauð gesti velkomna, en síðan tók Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra, til máls í for- föllum Halldórs Ásgrímssonar, ut- anríkisráðherra, sem ekki átti þess kost að opna sýninguna svo sem gert hafði verið ráð fyrir. Í ræðu sinni gerði hún grein fyrir starfsemi utanríkisráðuneyt- isins og nefndi til dæmis nokkra þætti sem snertu Sauðárkrók og Skagafjörð. Sýningin var sett upp í Reykjavík á síðasta ári en síðan hefur sýningin verið sett upp á nokkrum stöðum utan höfuðborg- arinnar. Morgunblaðið/Björn Björnsson Valgerður Sverrisdóttir ávarpaði gesti við opnun sýningarinnar í for- föllum Halldórs Ásgrímssonar. Myndir úr utan- ríkisþjón- ustunni Búðardalur - Laugardaginn 20. janúar var haldið þorrablót Lax- dæla hér í Dalabúð. Blótið var það fjölmennasta sem verið hefur síð- astliðin ár, um 240 manns mættu og skemmtu sér vel. Heimamenn sáu um skemmtiatriðin af alkunnri snilld, en að venju samdi Gísli Gunnlaugsson góðan hluta efnis- ins, en hann er nú á förum úr byggðarlaginu. Uppistaða skemmtiatriðanna var sagan „Dalirnir heilla“, sem fjallaði um fjölskyldu sem sótti Dalina heim og fékk að kynnast heimamönnum og öllu því helsta sem gerðist á síðasta ári. Kvartett heimamanna söng við undirleik Halldórs Þórðarsonar. Eftir glensið var dansað fram eftir nóttu undir tónlist Leyniþjón- ustunnar. Gunnar Björnsson sá um matinn sem var að venju frá- bær. Stefán Jónsson, fyrrverandi sveitarstjóri Dalabyggðar, var veislustjóri og stóð hann sig með stakri prýði eins og við var að bú- ast. Fyrrum fréttaritari heiðruð Kristjana Ágústdóttir, sem lét af störfum um áramótin sem frétta- ritari Morgunblaðsins, var heiðruð af Ungmennafélaginu Ólafi Páa og þorrablótsnefnd, en þorrablótið var haldið í nafni ungmennafélags- ins. Kristjana var í fyrstu bygg- ingarnefnd Dalabúðar og var um árabil formaður Ólafs Páa. Hún hefur ætíð barist af krafti til að vegur Dalabúðar yrði sem mestur og að ekki gleymdist saga hússins. Hún varð áttræð í síðasta mánuði. Morgunblaðið/Guðrún Kristinsdóttir Halldór Þórðarson lék undir fjöldasöng á harmóniku, hér er hann með hluta af meðlimum Leyniþjónustunnar. Þorrablót Laxdæla Fagradal - Þorrinn byrjaði með roki og rigningu í Mýrdalnum, en þessi Mýrdælingur á myndinni lét það ekki aftra sér að fara í gönguferð í Víkurfjöru þrátt fyrir mikið brim, rigningu og rok. Það sem af er vetrar hefur veðráttan í Mýrdalnum verið með allra besta móti, varla hægt að segja að snjógráði hafi fest á jörðu og muna elstu menn varla eftir öðru eins. Þorri byrj- ar með roki og rigningu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.