Morgunblaðið - 24.01.2001, Blaðsíða 19
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001 19
janúarm
ánaðar
ÞORSTEINN EA, fjölveiðiskip
Samherja hf. á Akureyri, kom til
heimahafnar frá Póllandi í gær,
eftir umfangsmiklar breytingar og
er skipið nú eitt það öflugasta í ís-
lenska fiskiskipaflotanum. Skipið
var lengt um 18 metra, stýrishús
var fært fram um 11 metra, sett
var 1.500 hestafla ljósavél um
borð, auk ýmissa annarra breyt-
inga. Með breytingunum eykst
burðargeta Þorsteins EA um 75%
og getur skipið nú borið um 2.000
tonn af loðnu, að sögn Kristjáns
Vilhelmssonar, framkvæmdastjóra
útgerðar Samherja.
Þorsteinn hélt til Póllands hinn
1. október í haust en breytingar á
skipinu fóru fram hjá skipasmíða-
stöðinni Grysia í Stettin. Kristján
sagði að verkið í Póllandi hefði
gengið ágætlega en á því urðu
nokkrar tafir, m.a. þar sem ráðist
var í meiri framkvæmdir en ráð
var fyrir gert í upphafi. Þorsteinn
hélt frá Póllandi seint á fimmtu-
dag og tók siglingin heim því
rúma fjóra og hálfan sólarhring.
Kristján sagði að siglingin heim
hefði gengið vel en ráðgert er að
skipið haldi til loðnuveiða eftir
2–3 daga.
Morgunblaðið/Kristján
Þorsteinn EA, fjölveiðiskip Samherja hf., kom til heimahafnar í gær eft-
ir umfangsmiklar breytingar í Póllandi.
Þorsteinn EA til heima-
hafnar eftir breytingar
RANNSÓKNARDEILD lögregl-
unnar á Akureyri handtók tvo menn
um þrítugt í fyrradag, sem við yf-
irheyrslur viðurkenndu þrjú innbrot.
Mennirnir viðurkenndu innbrot í
Umferðarmiðstöðina á Akureyri um
helgina, þaðan sem stolið var um 100
kg peningaskáp sem í voru bókhalds-
gögn og um 80.000 krónur í pening-
um og vöruvagni. Einnig viður-
kenndu þeir innbrot í Endur-
vinnsluna á Akureyri um helgina,
þaðan sem m.a. var stolið verkfæra-
setti og innbrot í íþróttahúsið á Þela-
mörk fyrir um hálfum mánuði þaðan
sem stolið var um 30-40 þúsund
krónum í peningum. Þá viðurkenndi
annar mannanna að hafa stolið
GSM-síma.
Viður-
kenndu
þrjú innbrot
OPIÐ hús verður fyrir eldri borgara
í Safnarðarheimili Akureyrarkirkju
á fimmtudag, 25. janúar frá kl. 15 til
17.
Þórhalla Þorsteinsdóttir flytur
hugleiðingu um ævikvöldið, fluttur
verður samtíningur um Þorrann eft-
ir Halldóru Ingimarsdóttur, Erling-
ur Níelsson stjórnar fjöldasöng og
séra Jóna Lísa Þorsteinsdóttir flytur
bænarorð. Boðið veður upp á kaffi-
veitingar. Bíll fer frá Kjarnalundi kl.
14.15, Víðilundi kl. 14.30 og Hlíð kl.
14.45.
Akureyrarkirkja
Opið hús
eldri borgara
♦ ♦ ♦