Morgunblaðið - 24.01.2001, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 24.01.2001, Blaðsíða 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001 41 ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður í samráði við aðstandendur Sími 581 3300 allan sólarhringinn — utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Kistur Krossar Duftker Legsteinar Sálmaskrá Blóm Fáni Erfidrykkja Tilk. í fjölmiðla Prestur Kirkja Kistulagning Tónlistarfólk Val á sálmum Legstaður Flutn. á kistu milli landa Sjáum um útfararþjónustu á allri landsbyggðinni. Áratuga reynsla. Ég fann ljóð sem á við þitt líf elsku Siggi „bró“. Vér viljum þakka þér, velgjörðum þínum ei gleyma, vér viljum treysta þér, oss muntu framvegis geyma. Fulltreystum því, framrás með tímans á ný líkn þína látir fram streyma. Elsku ástkæri bróðir minn, mágur og frændi okkar. Við erum enn ekki búin að sætta okkur við fráfall þitt en við munum gera það með tím- anum. Við vitum að þú munt alltaf vera hjá okkur og hvetja okkur áfram því þér þótti svo afar vænt um okkur og litlu frænkur og frænda. Elsku bróðir minn, ég mun alltaf hugsa til þín er ég horfi á fótbolta, því okkur þótti það svo gaman að horfa saman. Svo vil ég þakka þér fyrir allar góðu stundirnar okkar saman í beitningunni. Það voru oft „geggjaðar“ stundir eins og við myndum segja. Þótt söknuður muni ríkja í skúrn- um veit ég að þú munt hjálpa mér að beita. Ég vil svo minnast þess hvað við vorum samrýndir þegar við vor- um yngri. Sérstaklega hvað þú varst háður mér og kallaðir mig „dattan“ en ekki Kjartan, því þú heyrðir það þannig. Ég var sérstaklega ánægður þeg- ar þú komst vestur til mín því þá gat ég stutt þig. Og ég man sérstaklega eftir því þegar ég kom þér upp á að horfa á fótbolta og Formúluna. Ég veit, Sigurður Páll, að okkar skemmtilegustu stundir voru þegar við horfðum á Formúluna, þú studd- ir Häkkinen en ég Schumacher. Það voru frábærar stundir. Ég vil bara muna það líka hvað það var alltaf stutt í brosið þitt. Bara hvað var yndislegt að vera bróðir þinn, en núna mun hinn bróðir okk- ar, sem fæddist andvana, taka á móti þér og litla stúlkan hennar systur okkar. Þú passar hana vel. En elsku bróðir minn, þú munt alltaf lifa í hjarta mér. Minningarnar munu geymast í hjarta mínu. Ég mun varðveita vel allar okkar stundir saman og elsku bróðir, ég kveð þig að sinni. En bró, ég mun verða sterkur og verða mikill stuðningur fyrir fjöl- skyldu okkar því ég veit að þú verð- ur alltaf hjá mér fyrir vestan. Og frændi þinn og frænkur munu koma til með að muna þig vel því þú varst þeim svo góður frændi. Og þú varst svo stoltur af þeim. Ég bið þig að vernda börnin mín um ókomna fram- tíð. En, jæja, elsku bró, við sjáumst seinna, en mágkona þín eða „mamma“ eins og þú kallaðir hana stundum vill kveðja þig og hún vill þakka þér fyrir alla hjálpina með börnin og hún elskar þig. Við mun- um koma til með að horfa á mynd- bönd af þér oft. Siggi bró, við kveðjum þig að sinni. Guð geymi þig. Þinn „bró“, Kjartan, Maríanna og börn. Ástkæri bróðir, ég veit að þér líð- ur vel uppi hjá bróður okkar og litlu frænku. Ég veit að afi okkar tekur vel á móti þér og passar þig fyrir mömmu. Ég man allar góðu minningarnar okkar og ég vona að þér líði vel og þú fylgist með okkur allan tímann. Það var gott að við gátum átt 12 góð ár saman og ég man þegar þú fórst út SIGURÐUR PÁLL JÓRUNNARSON ✝ Sigurður PállJórunnarson fæddist í Reykjavík 18. febrúar 1982. Hann lést af slysför- um 13. janúar síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Graf- arvogskirkju 22. janúar. með mér í göngutúr. Ég veit af þér þarna uppi. Þín elskandi systir, Sólný Lísa. Elsku frændi. Hinn 14. janúar sl. barst mér sú sorgarfrétt að þú værir látinn. Guð minn góður, hugsaði ég, mér fannst ég ekki ná and- anum og gat ekki sagt neitt. Ég gat ekki trúað þessu, ekki hann. En því miður varð ég að trúa því að þetta var raunveruleik- inn. Að kvöldi þessa dags fór ég snemma í rúmið. Ég lá lengi og hugsaði: Af hverju? Ég brast í grát og grét mig í svefn. Dagana á eftir leið ekki sú stund sem ég hugsaði ekki um þig. Ég rifja upp þær fáu en góðu minningar sem ég á um þig. Guð blessi þig og hvíldu í friði, og takk fyrir allar góðu stundirnar sem við Kjartan bróðir áttum með þér. Elsku Lóló og fjölskylda. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð og bið Guð að blessa ykkur og veita ykkur styrk í sorginni. Sesselja Guðmundsdóttir, Stykkishólmi. Það er erfitt að skilja, hvers vegna sumir þurfa að deyja ungir, og svona skyndilega eins og Sigurður Páll. Það er mér minnisstætt þegar Lóló sagði mér frá samtali hennar og Sól- nýjar Lísu. Lóló hafði þá sagt að ef hann hefði ekki farið vestur eftir jól- in þá hefði þetta ekki gerst. Sagði Sólný Lísa þá, að kannski hefði hann þá annars dáið í bílslysi, því hann hefði átt að deyja núna. Það hlýtur að vera erfitt fyrir 12 ára barn að sætta sig við missi bróður síns sem var henni svo kær, svo og foreldrana og hin systkinin. Svona er lífið, Guð skapar og þroskar okkur með ýms- um raunum sem við eigum erfitt með að skilja. Þegar við komum í heimsókn til Lólóar og fjölskyldu tók Sigurður Páll sérstaklega vel á móti börnun- um okkar og sá til þess að þau ættu skemmtilega stund og færu með góðar minningar heim. En samveru- stundir okkar Sigurðar voru ekki margar vegna búsetu okkar í Stykk- ishólmi, en við fylgdumst með úr fjarlægð. Minning um ljúfan og barngóðan dreng lifir að eilífu. Kæri frændi, við þökkum þér stundirnar sem við fengum að eiga með þér, og segjum við þig eins og við fjölskyldan segjum hvert við annað áður en við leggjumst til hvíldar að kvöldi: Guð geymi þig. Elsku Lóló og fjölskylda, við vott- um ykkur okkar dýpstu samúð. Guð veri með ykkur. Bragi, Rakel, Sesselja, Kjartan og Fjóla. Elsku Sigurður, með þessu ljóði kveðjum við þig, kæri vinur, hinni hinstu kveðju og biðjum góðan Guð að styrkja foreldra þína, systkini og aðra ástvini í djúpri sorg þeirra. Guð geymi þig: Þau ljós sem skærast lýsa þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast. Og fyrr en nokkurn uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið logaskæra sem skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik Guðni Þórl.) Rannveig (Randý), Magnús, Kjartan og Bjarki. Hví fölnar jurtin fríða og fellir blóm svo skjótt? Hví sveipar barnið blíða svo brátt hin dimma nótt? Hví verður von og yndi svo varpað niður í gröf? Hví berst svo burt í skyndi hin besta lífsins gjöf? (Björn Halld. frá Laufási) Elsku Siggi. Við hér í Rimaskóla erum harmi slegin vegna skyndilegs fráfalls þíns. Á skömmum starfstíma skólans ert þú annar af útskrifuðum nemendum okkar sem kveður þenn- an heim. Slíkt minnir okkur óþyrmi- lega á fallvaltleik lífsins og þá stað- reynd að enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér. Hlutverk okkar sem vinnum við kennslu er að taka þátt í því mik- ilvæga hlutverki að færa börn og ungmenni til aukins þroska. Á þeirri leið skiptast á skin og skúrir en ánægjustundirnar standa alltaf upp úr og ylja um hjartarætur þegar litið er um öxl. Þú varst einn af þeim nemendum sem náðu að snerta okk- ar innstu hjartastrengi, elsku Siggi. Þú varst ekki alltaf á sama máli og við en sýndir okkur þó oft að þú vild- ir gjarnan „hafa okkur góðar“. Móður Sigurðar Páls, systkinum, fósturföður og ástvinum öllum send- um við okkar innilegustu samúðar- kveðjur og óskir um styrk til að standast þá þungu raun sem á ykkur er lögð. Guð gefi dánum ró en hinum líkn sem lifa. Hildur Harðardóttir, Katrín Hjálmarsdóttir, Sigríður María Pétursdóttir, kennarar við Rimaskóla. Elsku Siggi minn, nú ert þú farinn burt frá okkur og það er svo erfitt að takast á við þá sorg sem býr í brjósti okkar. Þú varst svo góður strákur og það bjó svo mikill kærleikur í þér. Þú varst svo saklaus og ljúf sál, Siggi minn. Þú vildir allt fyrir alla gera og krafðist aldrei neins í staðinn. Það elskuðu þig allir og þú náðir að gleðja öll hjörtu. Þú varst mjúkur og sætur í þér en samt um leið varstu svo mikill töff- ari. Það eru allir í svo mikilli sorg núna því þú, Siggi, ert farinn frá okkur, farinn til englaborgar, til stóra bróður. Þegar þú varst hjá okkur fyrir jól áttum við gott og langt samtal, sam- tal um tilfinningar, um ástina og um væntumþykju. Ég man svo vel, Siggi minn, hvað þú talaðir mikið um það hvað þú elskaðir fjölskylduna þína mikið og í gegnum tárin núna gleðst ég yfir því að hafa getað sagt þér þá að mér þætti vænt um þig og hversu góður strákur mér þótti þú vera. Við töluðum líka um framtíðina og þú sagðir að ég og Guðni stóri bróðir þinn værum sköpuð hvort fyrir ann- að og að ég væri ein af fjölskyldunni þinni. Þess vegna græt ég svo sárt núna, vegna þess að ég hef misst einn úr fjölskyldunni vegna þess að við höfum öll misst hann Sigga okk- ar. Ég kveð þig nú, Siggi minn, og geymi minninguna um þig í hjarta mínu að eilífu. Þín mágkona, Svava Dögg. Þótt við höfum ekki þekkst lengi er sá tími sem við þekktum þig tími sem við gleymum aldrei. Við þrír hjálpuðumst að við að endurreisa Grænahúss-veldið í eitt sumar og tókum við báðir strax eftir því hversu jákvæður strákur þú varst, Siggi. Það var sjaldan sem eitthvað var ekki í lagi, en ef svo var þá var hægt að redda því. Þú varst alltaf bjartsýnn og hafðir trú á að allt myndi lagast og það smitaði út frá sér. Orð eins og: „Þetta er fínt“ og „Við reddum þessu, strákar“ voru einkennandi fyrir þig eins og við þekktum þig. Þú varst gæddur þeim einstaka eiginleika að geta sam- glaðst öðrum. Eitt atvik sem okkur er ofarlega í huga er þegar þú varst ákafastur okkar í að fagna prófsein- kunnum sem voru ekki einu sinni þínar. Við eigum ótal minningar um þig og höfum ekkert nema gott um þig að segja. Okkur fannst þú misskilinn og fólk ekki alltaf gefa þér þau tæki- færi sem þú áttir skilið. Þú vildir engum illt. Þú varst frá- bær strákur, Siggi, og við gleymum þér aldrei. Bless, kæri vinur. Von- andi líður þér betur núna. Elvar og Ólafur (Onni). Það var okkur mikið áfall að heyra af andláti þínu, svona kærum og ná- komnum fjölskylduvini. Ekki áttum við von á að svona ungur og kátur drengur eins og þú varst, myndi fara svona snemma frá okkur hinum. Við héldum að eflaust myndum við sjá þig fljótlega, þegar þú kæmir í bæ- inn að heimsækja Villa, þar sem hann komst ekki til þín um áramótin. Við eigum okkur margar minningar um þig og með þér, og þín munum við ávallt minnast með söknuði og kærleik í huga. Kæra Jórunn og fjölskylda, við sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum þess að Guð verði með ykkur í þessari erfiðu raun. Eyþór, Inga, Ingi Sveinn, Kolbrún og Katrín. Það er sárt að þurfa að skrifa minningargrein um besta vin sinn og koma orðum að. Ég mun aldrei gleyma hve oft við hlógum saman. Þú hugsaðir alltaf vel um fjölskylduna þína og varst ávallt góður við mömmu þína. Þú varst líka alltaf að gefa Sólnýju litlu systur þinni gjafir. Ég mun aldrei gleyma þeim tíma sem við vorum saman. Ég veit að þú horfir niður til mín og brosir. Þú munt alltaf eiga stað í mínu hjarta. Ég mun ávallt minnast þín og hugsa hlýlega til þín, vinur minn. Kæra Jórunn og fjölskylda, megi Guð standa við bakið á ykkur í þess- ari erfiðu raun. Vilhjálmur Sv. Pétursson. Sumrin á Suðureyri eru alltaf yndisleg, full af gleði og fjöri. Sein- asta sumar urðum við þess heiðurs aðnjótandi að kynnast honum Sigga. Siggi var skemmtilegur persónu- leiki, glaðlyndur, ótrúlega ör, alltaf tilbúinn að hjálpa og hafði yndisleg- an kvikmyndasmekk. Ef hann ein- setti sér að gera eitthvað gerði hann það. Hann var svo sannarlega vinur vina sinna og alltaf var stutt í bros. Það er sagt að þeir deyi ungir sem Guð elskar og við trúum því að hans bíði æðri verkefni á betri stað. Elsku Siggi, við þekktum þig stutt en munum seint gleyma þér. Við hugsum til þín með sorg í hjarta en bros á vör. Það er okkur heiður að hafa fengið að kynnast þér. Góða ferð. Elsku Kjartan, Maja og börn. Guð gefi ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Kæru ættingjar og vinir, við vott- um ykkur innilega samúð. Siggi lifir áfram í minningum og hjarta þeirra sem þekktu hann. Sigrún og Sólveig. Kæri Friðjón. Stund- um eru orð ekki nóg til að láta í ljósi tilfinning- ar en gegnum fjarvistir geta ósýnileg og náin tilfinningabönd FRIÐJÓN GUÐMUNDSSON ✝ Friðjón Guð-mundsson fædd- ist í Miðgarði í Kol- beinsstaðahreppi á Snæfellsnesi 27. júlí 1916. Hann lést á Heilbrigðisstofnun- inni á Blönduósi 7. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Blönduós- kirkju 13. janúar. þróast. Við deildum gagnkvæmum skilningi á lífinu og ást á sama fólkinu og náttúrunni, hinum eilífa anda er við skynjum gegnum ein- veru með náttúruöflun- um. Mér finnst þess vegna að tengsl okkar séu djúp eins og fjalla- vötnin tæru sem eiga svo mikil ítök í okkur. Ég kveð þig, Friðjón, með innilegum hlýhug og votta fjölskyldu þinni samúð mína. Richard Bell.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.