Morgunblaðið - 24.01.2001, Blaðsíða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001 29
Útsala Útsala Útsala
Klapparstíg 44 - sími 562 3614
VERKFALL er skollið á hjá at-
vinnumönnum í ruðningi (football), og
góð ráð dýr hjá eiganda liðs í Wash-
ington DC (Jack Warden). Hann ræð-
ur gamalfrægan, atvinnulausan þjálf-
ara, McGinty (Gene Hackman) að
nafni, til að leysa af meðan á verkfall-
inu stendur og ráða lið af staðgengl-
um. McGinty tekur boðinu, með því
skilyrði að hann einn ákveði ráðning-
ar leikmannanna. Byrjar á að þefa
uppi ungan mann, Falco (Keanu
Reeves), sem þótti bráðefnilegur en
fór á taugum í úrslitaleik og hvarf af
sjónarsviðinu. Aðrir eru af svipuðu
sauðahúsi. Meðal annars japanskur
glímumaður og Walesbúi (Rhys Ifin),
sem kann að sparka bolta.
Dæmigerð sjálfumglöð fantasía,
þar sem allt gengur smám saman
upp. Það nægir að horfa á fyrsta
stundarfjórðunginn, þegar Hackman
er að koma skikki á hópinn. Sem tap-
ar naumt upphafsleiknum, svo fer
boltinn að rúlla og allt er fyrirsjáan-
legra en sólarlagið. Í klisjusúpuna er
bætt ómerkilegum, persónulegum
vandamálum sem allir bíógestir kann-
ast við, í raun gerist ekkert sem við
höfum ekki séð áður. Og það oftar en
einu sinni.
Staðgenglarnir er ekki illa gerð
tæknilega og sum atriðin á vellinum
eru hressing fyrir augað. Það er
frumleikinn sem vantar, það er ótrú-
legt að vera boðið uppá enn eina
Rockyútgáfuna þegar allt sæmilega
óbrjálað fólk er fyrir löngu orðið leitt
á þeim og menn hafa ekki neinu nýju
við að bæta. Dapurt að sjá gamla góða
Hackman í jafnútslitnu hlutverki og
hér, hann er þó sá sem telst með sjá-
anlegu lífsmarki.
Gamlar lummur
„Dapurt að sjá gamla góða Hackman í jafnútslitnu hlutverki og hér,
hann er þó sá sem telst með sjáanlegu lífsmarki.“
KVIKMYNDIR
B í ó b o r g i n ,
K r i n g l u b í ó
Leikstjóri: Howard Deutch. Hand-
ritshöfundur: Vince McKewin. Tón-
skáld: John Debney. Kvikmynda-
tökustjóri: Tak Fujimoto.
Aðalleikendur: Keanu Reeves,
Gene Hackman, Brooke Langton,
Jack Warden, Rhys Ifans, Jon Favr-
eau, Orlando Jones, Brett Cullen.
Sýningartími: 120 mín. Bandarísk.
Warner Bros. Árgerð 2000.
THE REPLACEMENTS Sæbjörn Valdimarsson
STÓRSVEIT Reykjavíkur lætur
ekki deigan síga og sl. laugardags-
kvöld var boðið uppá tónleika með
gestastjórnanda, sænska trompet-
leikaranum Fredrik Norén. Ýmsir
ráku upp stór augu og héldu þetta
einhvern misskilning maðurinn spil-
aði á trommur en ekki trompet. Svo
var þó ekki – hann er bara alnafni
Fredriks Noréns trommara, sem í
þrígang hefur leikið hér með hljóm-
sveit sinni. Síðast í ágúst sl. á Kaffi
Reykjavík. Við þekkjum svosem al-
nafnana í íslensku tónlistarlífi: Jó-
hannana G. og Jónana þrjá Sigurðs-
syni; Jón bassa, Jón trompet og Jón
dægurlagasmið í bankanum.
Norén gerði hér stuttan stans á
leið yfir hafið og æfingarnar urðu
þrjár með Stórsveitinni. Efnisskráin
samanstóð af útsetningum eftir Bill
Holman, Bob Brookmeyer, Jim Mc-
Nelly og Göran Strandberg á eigin
verkum og annarra og voru sum all-
flókin, ekki síst verk Jims McNelly,
og stóð þó ekki í hljóðfæraleikurun-
um að flytja þau. Erlendir gesta-
stjórnendur Stórsveitarinnar síðustu
árin hafa orðið undrandi á að hitta
slíkt einvala lið atvinnudjassleikara
norður við heimskautsbaug og rak
Norén ekki upp minni augu en Ask-
enazy um daginn er hann stjórnaði
Sinfóníunni. Er það sannast sagna að
báðar eru sveitir þessar Íslendingum
til mikils sóma – munurinn er bara sá
að Stórsveitin nýtur ekki fulltingis
annarra en Reykjavíkurborgar. Nú
er komið að ríkinu og einkafyrirtækj-
um að bætast í hópinn og tryggja
áframhaldandi starf sveitarinnar
sem Sæbjörn Jónsson stofnaði fyrir
næstum áratug. Ekki væri hún síðri
landkynning í útlandinu en Sinfónían
og frændþjóðir okkar norrænar eru
iðnar við að senda stórsveitir sínar í
menningarleg strandhögg erlendis.
Tónleikarnir hófust á útsetningu
Bills Holmans á Old Man River úr
Show Boat eftir Jerome Kern og í
kjölfarið fylgdu tvær aðrar útsetn-
ingar eftir Holman: Lover Man eftir
píanistann gleymda Roger Ramirez
og Nígeríuópus Sonny Rollins: Areg-
in. Birkir Freyr og Ólafur Jónsson
blésu sólóa í þessum lögum utan Lov-
er man sem var einleiksverk Sigurð-
ar Flosasonar með hljómsveitinni.
Hann blés lagið fallega án þess að
láta tilfinningasemina hlaupa með sig
í gönur einsog mörgum hættir við er
þeir leika þetta lag með taugaáfall
Parkers í undirvitundinni.
Næst voru á dagskrá útsetningar
eftir Bob Brookmeyer á Fats Waller
og W.C. Handy og Norén með
trompetinn í hönd fyrir framan
hljómsveitina. Hann blés skemmti-
lega og notaði ýmis brögð gömlu
svíngarana. Þó hann sé módernisti
kann hann gamla svíngið og oft
gægðist Harry „Sweets“ Edinson
fram í sólóum hans. Í St. Louis-
blúsnum blés Eyþór Kolbeins bás-
únusóló og man ég varla eftir að hafa
heyrt hann gera slíkt áður. Tókst
honum vel upp og hrynsveitin á
stundum með fönkbragði a la Lee
Morgan. Jóhann Hjörleifsson er í
góðri sókn sem stórsveitartrommari.
Eftir hlé voru verk eftir Jim Mc-
Neely og Göran Strandberg á dag-
skrá. McNeely, sem flestir þekkja frá
því hann lék á píanóið með Stan Getz,
stjórnar nú stórsveit danska útvarps-
ins, tók þar við af Bob Brookmeyer.
Einsog getið er hér að framan voru
útsetningar McNelly ekkert barna-
meðfæri og blés Norén með tromp-
etsveitinni, en Sigurður Flosason,
saxaleiðtogi, rammaði lögin inn. Það
munaði um Norén í trompethópnum
og krafturinn í sveitinni var kynngi-
magnaður, þó ekki hefði verið verra
að Norén hefði haft fleiri daga með
hljómsveitinni. Jóel átti fína sólóa í
verkum McNeely svoog píanistinn
ungi Davíð Þór, en hann galt nokkuð
fyrir hve píanóið var illa magnað. Var
það eina hljóðfærið sem var lyft utan
bassans, en Gunnar Hrafnsson
komst vel í gegnum lúðraþytinn og
trommusláttinn.
Old Man River var leikið að nýju
eftir hlé, að þessu sinni í útsetningu
Strandbergs með Norén í einleiks-
hlutverkinu. Sú útsetning var nokkuð
yfirborðsleg og stóð langt að baki út-
setningum Holmans á söngdansin-
um.
Lokalagið var einnig Holman-út-
setning; You Go To My Head – og
lauk þar stórskemmtilegum tónleik-
um í troðfullum sal Kaffi Reykjavík-
ur.
Vernharður Linnet
Þétt stórsveit DJASSK a f f i R e y k j a v í k
Einar Jónsson, Birkir Freyr Matth-
íasson, Örn Hafsteinsson, Freyr
Guðmundsson og Fredrik Norén
trompeta; Oddur Björnsson, Björn
R. Einarsson, Eyþór Kolbeins og
David Bobroff básúnur, Sigurður
Flosason, Ólafur Jónsson, Jóel Páls-
son, Stefán S. Stefánsson og Krist-
ján Svavarsson saxófóna, klarinett-
ur og flautur, Davíð Þór Jónsson
píanó, Gunnar Hrafnsson bassa og
Jóhann Hjörleifsson trommur.
Stjórnandi: Fredrik Norén. Laug-
ardagur 20. janúar.
STÓRSVEIT
REYKJAVÍKUR
ÞEGAR menningarári lýkur og ís-
lenskir tónlistargestir eru farnir að
spyrja sjálfa sig: „Er menning eftir
Reykjavík 2000?“, þá kemur svarið
frá kirkjununum, sem koma sterkar
inn á nýju ári, með skipulagðri tón-
listardagskrá og tónleikaröðum.
Tónleikar EÞOS-kvartettsins voru í
einni slíkri tónleikaröð í Neskirkju,
þar sem boðið er upp á fjölbreytta og
vandaða dagskrá.
EÞOS-kvartettinn er skipaður
þeim Auði Hafsteinsdóttur, Gretu
Guðnadóttur, Guðmundi Krist-
mundssyni og Bryndísi Höllu Gylfa-
dóttur en þau hafa starfað saman í 4
ár. Þau hófu tónleikana á strengja-
kvartett í C-dúr K.V.157 (1772) eftir
W.A. Mozart. Fyrsti þáttur var leik-
inn af öryggi og fremur hratt, jafnvel
aðeins of hratt og hefði ekki sakað að
hafa meiri tíma til móta línur skýrar.
Þetta gerði það að verkum að kaflinn
náði sér ekki alveg á fullt flug. Það
gerðist þó í næsta þætti Andante,
sem var mjög fallega mótaður, sem
og þriðji þáttur, Presto, sem bar með
sér einkenni ungverskrar danstón-
listar eða rytma, var glæsilega flutt-
ur.
Franz Berwald (1796-1869) var
sænskur fiðluleikari, og nokkurn
veginn sjálfmenntaður í tónsmíðum.
Honum auðnaðist ekki mikill frami í
heimalandi sínu í lifandi lífi. Eftir
hann liggja þó nokkur verk, mest
hljómsveitar- og kammermúsíkverk.
Frægust er þó líklega 3. sinfónían,
Sinfonie singuliére. Strengjakvart-
ettinn í a-moll er einn af þremur er
hann samdi og má segja, hvað stíl
varðar, að hann sé einskonar erfða-
skrá rómantísku meistaranna, allt
frá Schuberts til Brahms – fallegt
verk í heildina en á köflum nokkuð
sundurlaust og allt að því ofvaxið í
fremri endann. Flutningurinn var í
senn mjög góður og afar sannfær-
andi, sérstaklega í öðrum og þriðja
þætti, sem voru hlutfallslega stuttir
miðað við fyrsta þátt.
Giacomo Puccini (1856-1924)
samdi sinn eina strengjakvartett,
Crisantemi (Chrysanthemums) á
einu kvöldi árið 1890, í minningu her-
togans af Savoy. Efniviður þessarar
Elegíu, sem er einnig til sem hljóm-
sveitarverk, var síðar notaður í óp-
eruna Manon Lescaut. Treginn er
undirstrikaður með mikilli notkun á
krómatík og afgerandi notkun sellós-
ins gerir verkið mjög áhrifamikið og
dramatískt. Leikur kvartettsins var
með miklum ágætum, frábærlega vel
útfærður í samspili, samhljómi og vel
mótaður, enda skipaður frábærum
hljóðfæraleikurum.
Hljómburður Neskirkju er góður
og tær fyrir hljóðfæratónlist. Þó hef-
ur undirritaður það aðeins á tilfinn-
ingunni að hljómurinn sé aðeins ein-
angraður þarna upp við altari og
dýnamískar breytingar því ekki eins
skýrar og vænta mætti.
Í heild voru þetta mjög góðir tón-
leikar, skemmtileg efnisskrá og
mjög svo hæfileg tímalengd á tón-
leikunum. Það vill oft á tíðum brenna
við að lengd tónleika fer fram úr því
sem tónleikagestir hafa einbeitingu
og úthald í. Maður hugsar með sér
að það hefði mátt sleppa einhverju
verkinu. Á þessum tónleikum var því
öfugt farið, því ekki var laust við það
að gaman hefði verið að heyra eitt
verk til viðbótar.
Skemmtileg
efnisskrá
TÓNLIST
N e s k i r k j a
lék verk eftir: W.A. Mozart,
F. Berwald og Puccini.
Neskirkja. Sunnudaginn
21. janúar kl 15.
EÞOS-KVARTETTINN
Kári Þormar
MEGAS og Jón Ólafsson verða gest-
ir Ritlistarhóps Kópavogs í Gerðar-
safni á morgun, fimmtudag, kl. 17.
Megas flytur eigin verk við undir-
leik Jóns Ólafssonar.
Aðgangur er ókeypis.
Megas
gestur Ritlist-
arhópsins
Gallerí Sævars Karls
Sýningu Helga Þorgils Friðjóns-
sonar í Galleríi Sævars Karls í
Bankastræti lýkur á morgun,
fimmtudag.
Sýningu lýkur
Á ÞRIÐJU áskriftartónleikum
Tónlistarfélags Ísafjarðar í Hömr-
um annað kvöld, fimmtudags-
kvöld, kl. 20.30, leikur Helga
Bryndís Magn-
úsdóttir píanó-
leikari verk eftir
Haydn, Brahms,
Liszt og Ravel.
Helga Bryndís
stundaði nám
hjá Jónasi Ingi-
mundarsyni við
Tónlistarskólann
í Reykjavík og
framhaldsnám í
Vínarborg og
Helsinki. Hún hefur starfað við
Tónlistarskólann á Akureyri frá
árinu 1992. Hún hefur einkum
leikið kammertónlist, með söngv-
urum og í CAPUT-hópnum og
leikið einleik með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands og Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands.
Áskriftarkort gildir en stakir
miðar kosta 1.200 kr. og eru seldir
við innganginn. Skólanemendur 20
ára og yngri fá ókeypis aðgang.
Píanótón-
leikar á
Ísafirði
Helga Bryndís
Magnúsdóttir
PÉTUR Jón-
asson gítar-
leikari heldur
einleikstón-
leika í sal
Borgarhóls-
skóla á Húsa-
vík annað
kvöld, fimmtu-
dagskvöld kl.
20.30.
Á efnis-
skránni verða verk eftir Isaac
Albéniz, Manuel de Falla,
Francisco Tárrega, Atla Heimi
Sveinsson og Huga Guðmunds-
son.
Pétur mun svo leiðbeina gít-
arnemendum Tónlistarskólans
á námskeiði sem haldið verður
föstudaginn 26. janúar.
Tónleikarnir og námskeiðið
eru á vegum Tónlistarskóla
Húsavíkur.
Gítartón-
leikar á
Húsavík
Pétur
Jónasson
♦ ♦ ♦