Morgunblaðið - 24.01.2001, Síða 22

Morgunblaðið - 24.01.2001, Síða 22
VIÐSKIPTI 22 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ SÉRFRÆÐINGAR SPH, Már Wolf-gang Mixa og Bjarni Rafn Eiríks-son, segja að miðað við bókfærtinnra virði deCODE síðastliðið haust, þá þróunarvinnu og uppbyggingu sem þá þegar hafði átt sér stað og sérstöðu þess, sé hægt að færa rök fyrir því að núverandi gengi hlutbréfa félagsins sé lágt. Þeir segja að búið sé að ryðja úr vegi mörgum óvissu- þáttum fyrirtækisins undanfarna mánuði og framtíð þess hafi líklegast aldrei verið jafn björt. „Að okkar mati er deCODE því orðinn áhugaverður fjárfestingarkostur í dag,“ segja sérfræðingarnir. „En að sjálfsögðu er um áhættufjárfestingu að ræða.“ Þeir segjast halda sínu striki hvað áhættu- fjárfestingarkosti varðar og spá ekki fyrir um vænt gengi deCODE innan 12 mánaða. Þeir leggja áherslu á að fyrirtæki mánaðar- ins að þessu sinni sé áhættufjárfesting en áhættan sé þó minni nú en áður þar sem de- CODE sé nú skráð á markaði. Sérstaða á sviði erfðagreiningar á heimsvísu Að sögn sérfræðinganna er erfitt að rýna í verðmæti fyrirtækis á borð við deCODE og möguleika þess í framtíðinni. Ekki sé raun- hæft að yfirfæra gengisþróun annarra líf- tæknifyrirtækja yfir á deCODE og gera þannig ráð fyrir margföldun. Ótal þættir hafi áhrif á það hvort fyrirtækinu vegni vel í framtíðinni og þó það gerist sé ekki víst að fjárfestar á hlutabréfamarkaði meðtaki þann árangur. Þeir segja að íslensku félagi hafi aldrei áð- ur tekist að safna saman eins miklu áhættu- fjármagni frá erlendum fjárfestum til fjár- festinga hér á landi og deCODE. Markmiðin hafi verið háleit frá upphafi, starfsemin vaxið jafnt og þétt og starfsfólki fjölgað mikið. Fyrirtækið hafi á fáum árum náð miklum ár- angri í rannsóknum sínum og hafi nú þegar tryggt rekstrarstöðu sína, ef svo megi að orði komast, með frumútboði (IPO) síðasta sumar og skráningu á Nasdaq-hlutabréfa- markaðinn, fyrst íslenskra fyrirtækja. Þeir segja að deCODE stefni að því að byggja sérstöðu á sviði erfðavísinda á heims- vísu með því að nýta sér þá eiginleika sem íslenska þjóðin býr yfir. Með ættfræðilegum upplýsingum og aðgangi að upplýsingum um þjóð með einsleitan bakgrunn hafi deCODE tækifæri til að þróa rannsóknir með sér- sniðnari hætti en önnur fyrirtæki í svipuðum geira, auk þess sem tækifæri skapist til ann- arra nálgana í vinnslu verkefna en flestum öðrum samkeppnisaðilum standi til boða. Margir óvissuþættir koma að rekstrinum Að sögn sérfræðinganna kemur væntan- legt tekjustreymi deCODE úr þremur átt- um; Genaleit og erfðarannsóknum, gagna- grunnsþjónustu og hugbúnaðargerð. Tæki- færin og áhætturnar sem fylgja rekstri deCODE segja þeir að séu nokkuð ljósar, miðað við þá óvissu sem rekstrinum fylgja. Ef viðskiptaáætlun félagsins muni bera við- unandi ávöxt innan 10 ára þá séu tækifærin gífurleg. Á hinn bóginn beri að líta til þess að mjög margir óvissuþættir komi að rekstr- inum og hugsanlega sé langt í að rekstr- arniðurstaðan sýni áþreifanlegan árangur. Sérfræðingarnir segja að þó það sé kostur að hafa gnótt af ættfræðilegum upplýsing- um, þá veiti þær einar og sér litla yfirburði yfir önnur fyrirtæki sem vinni í líftæknigeir- anum. Sérstaða íslensku þjóðarinnar geri de- CODE einstakt á sviði upplýsingamiðlunar og rannsókna tengdum erfðavísindum. Á þeim grunni sé hægt að byggja starfsemi fyrirtækisins til að virkja tekjumöguleika þess. SPH telur að deCODE hafi tækifæri til að gera samstarfssamninga við fleiri fyrirtæki en Roche, sem nú sé í gangi. Nokkrir samn- ingar séu nú þegar í farvatninu en nauðsyn- legt sé að slíkir samningar séu umfangs- miklir til að uppfylla þær arðsemiskröfur sem gerðar séu til fyrirtækisins. Þá telja sérfræðingar SPH vel hugsanlegt að deCODE muni fá stærri hlutdeild tekna af uppgötvunum sínum ef fyrirtækið hefur fjárhagslegt bolmagn til að taka sjálft þátt í frekari þróun afurða. Með því sé hins vegar að sjálfsögðu einnig tekin meiri áhætta en gríðarlegt fjármagn þurfi til að þróa, fram- leiða og koma nýjum lyfjum á heimsmarkað. Sátt um gagna- grunninn nauðsynleg „Við teljum það nauðsynlegt að aukin sátt náist um gagnagrunninn,“ segja sérfræðing- ar SPH. „Hann er hluti af því sem veitir de- CODE sérstöðu á alþjóðagrundvelli. Hlúa þarf vel að siðferðislegum og viðskiptalegum sjónarmiðum. Því hefur t.d. verið haldið fram að gögn úr grunninum gætu verið per- sónugreinanleg en það gæti valdið einstak- lingum andlegum og fjárhagslegum skaða. Þó svo að hlutfallslega hafi ekki margir skráð sig úr grunninum, eins og kemur fram í útboðslýsingu fyrirtækisins, gæti það haft neikvæð áhrif á upplýsingagildi gagnanna, því oft eru aðeins örfáir einstaklingar með ákveðna gallaða erfðavísa sem verið er að rannsaka. Auk þess eykur öll neikvæð um- ræða um grunninn sölupressu á bréfin sem gæti valdið deCODE erfiðleikum, vilji það frekari fjármögnun með hlutabréfaútboðum eða yfirtaka önnur félög.“ Varðandi notkunargildi uppgötvana og gagnagrunns á alþjóðavísu segja sérfræð- ingar SPH hugsanlegt að þeir gölluðu erfða- vísar sem finnast hér á Íslandi eigi ekki al- mennt við um erfðavísa einstaklinga annarra landa. Sérstaða gagnagrunnsins gæti því ekki reynst sá styrkleiki sem annars hefði getað orðið. DeCODE hafi þó möguleika á því að sannreyna niðurstöður sínar með að- gangi að gögnum erlendra aðila og hafi nú þegar gert einn slíkan samning. Óvissa um framtíðartekjur „Eins og staðan er í dag hefur deCODE tiltölulega litla veltu en mikinn kostnað sem er stöðugt að aukast,“ segja sérfræðingar SPH. „Þó svo að byrjunin lofi góðu varðandi gagnasöfnun og rannsóknir er líklega enn langt í að fyrirtækið skili hagnaði. Þetta er ekki gagnrýni á félagið. Það er hins vegar óvissa með framtíðartekjur félagsins og hvort rannsóknir þess skili nokkru sem rétt- læti þann kostnað sem hlýst af þeirri vinnu sem nú er hafin. Sjáist ekki verulegur árang- ur innan nokkurra ára þarf að fá meira fjár- magn í reksturinn. Slíkt gæti reynst erfitt ef illa gengur að sannfæra menn um að árang- ur sé handan hornsins. Mörg fyrirtæki á ver- aldarvefnum hafi kynnst þessu illþyrmilega undanfarna mánuði, sagan gæti endurtekið sig í líftæknigeiranum næstu árin.“ Að mati sérfræðinga SPH hefur sá kostn- aður sem farið hefur í starfssemi deCODE hingað til gefið litlar vísbendingar um hver framtíðarkostnaður fyrirtækisins verður. Reiknað sé með því að aukin vinna í að byggja upp gagnagrunninn eigi eftir að auka kostnað fyrirtækisins verulega. Nýta þurfi það innstreymi fjármagns sem kom í kjölfar hlutabréfaútboðsins í fyrra í auknum fjár- festingum og dýrari rekstri. Það eina sem hægt sé að reiða sig á séu spár fyrirtækisins sjálfs um að nægilegt fjármagn sé nú fyrir hendi til að halda starfseminni gangandi í nokkur ár. Samstarfsverkefni með fleiri fyrirtækjum nauðsynleg Stefnt er að því, að sögn sérfræðinga SPH, að nauðsynlegir samningar við heil- brigðisstofnanir náist fljótlega til þess að veita deCODE nægilegt magn af gögnum til þess að heilsteypt uppbygging á gagna- grunninum geti hafist. Nú þegar sé búið að semja við nokkrar stofnanir. Í útboðslýsingu fyrirtækisins komi fram að gagnagrunnurinn og uppsetning hans með tölfræðilegri úr- vinnslu verði ekki kominn á fullt skrið fyrr en eftir allt að 5 ár. Árið 2008 verði leyfið tekið til endurskoðunar en því ljúki í byrjun árs 2012, og þarfnist þá endurnýjunar. Afar mikilvægt sé því að ná samningum hið fyrsta til að hægt verði að moða úr þeim upplýs- ingum sem grunnurinn veitir og skapa nota- gildi áður en til endurskoðunar og endurnýj- unar kemur. „Sá samstarfssamningur sem er nú í gangi með Roche er einn sá stærsti sinnar teg- undar í erfðavísindum,“ segja sérfræðingar SPH. „Samkvæmt samningnum fær de- CODE ákveðna upphæð til að stunda leit að genum vegna tólf sjúkdóma. Roche hefur skuldbundið sig til að fjármagna þær rann- sóknir til febrúar árið 2003. Auk þess er samningur á milli fyrirtækjanna sem tekur tillit til þess árangurs sem rannsóknirnar leiða af sér. Roche greiðir deCODE hluta af tekjum vegna sölu af lyfjum og sjúkdóms- greiningum sem koma til vegna samsstarfs- verkefnis fyrirtækjanna. Að sama skapi greiðir deCODE til Roche hluta af tekjum af einkaleyfum á meingena meðferð og tengd- um vörum. Samstarfssamningurinn var ein af und- irstöðum þess að deCODE gat hafið al- mennilega starfsemi, starfsgrundvöllur var tryggður í nokkur ár auk þess sem fyr- irtækið fékk ákveðna virðingu á heimsvísu. Í dag er hins vegar mögulegt að slíkt samn- ingsform takmarki tekjumöguleika fyrirtæk- isins. DeCODE fær ekki nema hluta af þeim tekjum sem koma fram við frekari þróun af gagnaöflun og rannsóknum fyrirtækisins. Stefnt er að því að gera aðra samninga sem tryggja það að deCODE verði meiri þátttak- andi í því að búa til verðmæti sem eiga sér rót innan dyra fyrirtækisins. Möguleikar í því efni gætu t.d. verið að setja saman lyfjaþróunardeild með öðru fyrirtæki. Má í því efni benda á að tekjuöflun vegna rann- sókna eins og líftæknirannsókna einar sér veita þegar vel tekst til aðeins um fimmtung af þeim tekjum sem hlýst af þeirri sölu sem á endanum kemur til. Afgangur fer til lyfjaþróunardeildar og markaðsdeildar. Meiri áhætta fylgir því að verða þátttakandi á lengri hluta ferilsins frá uppgötvun gall- aðra gena til sjúkdómsgreininga og lyfja. Bæði er óvissan meiri hvort vinnan leiði til sölu og auk þess er lengri tími í að fjár- magnið sem fer í slíka vinnu skili sér til baka. Samstarfsverkefni með fleiri fyrirtækjum eru því nauðsynleg til að renna frekari stoð- um undir tekjugrundvöll deCODE. Hingað til hafa t.d. engar vörur verið þróaðar í sam- starfi við Roche, svo sem lyf sem hafa skilað sölutekjum. Því er erfitt að meta hversu miklar tekjur slíkt samstarf veitir, sérstak- lega þar sem deCODE ætlar sér að taka frekari þátt í lyfjaþróun, og sjálfsagt eðlilegt að uppbygging samninga sé mismunandi.“ Sérstaða deCODE gefur því forskot Sérfræðingar SPH segja að deCODE hafi aflað sér 182 milljóna Bandaríkjadala í hluta- fjárútboði í júlí 2000. Fyrirtækið ráðgeri að verja stærstum hluta þess fjármagns til upp- byggingar gagnagrunnsins. Þungamiðjan af uppbyggingu og þar með kostnaði fyrirtæk- isins sé tengd grunninum, enda sé hann það tól sem væntanlega komi til með að skapa mestu tekjurnar. „Eitt af því sem er mikilvægt að skoða þegar verið er að verðmeta félög er hlutfall tekna þess sem varið er í rannsóknir,“ segja sérfræðingar SPH. „Rannsóknir auka rekstrargjöld en skila sér vonandi síðar meir. Fyrirtæki með há hlutföll tekna sem varið er í þróunarvinnu eiga væntanlega meiri vöxt í vændum en önnur fyrirtæki. Erfitt er þó að meta hvað þær rannsóknir skila til baka. Stjórnendur fyrirtækja setja vart fjármagn í rannsóknir nema þeir telji að þær beri viðunandi ávöxt. Því er oftast litið á slíkar rannsóknir sem óþekkt en fast gildi, til dæmis X. Það gildi veitir að meðaltali sama árangur þegar til lengri tíma er litið (und- antekningar eru fyrirtæki með yfirburða- stöðu og/eða einokun á sínu sviði). Hvað de- CODE varðar má hins vegar bæta tveimur öðrum óþekktum stærðum við X. Í fyrsta lagi getur deCODE nýtt sér sérstöðu Íslands til erfðarannsókna. Auk þess eru leyfisgjöld vegna gagnagrunnsins tiltölulega lág miðað við þau verðmæti sem gagnagrunnurinn gæti hugsanlega skapað. Við verðmat á deCODE eru ofangreindir liðir órjúfanlegir hvað sér- stöðu fyrirtækins varðar. Af þessu má leiða að meiri líkur séu til þess að viðunandi arð- semi fáist af þróunarvinnu fyrirtækisins en flestum öðrum fyrirtækjum í sama geira.“ Innra virði félagsins á eftir að falla Sérfræðingarnir segja að miðað við nið- urstöðu þriðja árshluta síðastliðins árs hafi bókfært innra virði félagsins verið 4,9 Bandaríkjadalir á hlut. „Þar sem mestur hluti innra virðisins var í lausu fé, en ekki í illseljanlegum eigum, hefði mestur hluti þess fengist til baka. Það þýðir að ef deCODE hefði verið gert upp á þeirri stundu hefðu hluthafar fengið nálægt þá upphæð fyrir hverja einingu sem þeir áttu í félaginu. Hugtakið upplausnarvirði á þó ekki við í tilviki deCODE. Fjárfest verður fyrir miklar upphæðir næstu misseri í þekkingu sem von- ast er að skili arðsemi síðar meir. Innra virði félagsins á því eftir að falla, að minnsta kosti til styttri tíma. Ber því að vega og meta von- gildi framtíðar þess með tilliti til þeirrar þekkingar innanborðs og þess forskots sem deCODE hefur í samkeppninni með sérstöðu sinni,“ segja sérfræðingar á Viðskiptastofu SPH. deCODE fyrirtæki mánaðarins hjá Viðskiptastofu Sparisjóðs Hafnarfjarðar Framtíðin líklega aldrei jafn björt Viðskiptastofa SPH hefur valið deCODE, móðurfélag Íslenskrar erfðagreiningar, fyrirtæki mánaðarins. Sér- fræðingar SPH segja að deCODE sé orðið áhugaverður fjárfestingarkostur en leggja jafnframt áherslu á að um áhættufjárfestingu sé að ræða. Morgunblaðið/RAX Sérfræðingar SPH leggja áherslu á að fyrirtæki mánaðarins að þessu sinni sé áhættufjárfest- ing en áhættan sé þó minni nú en áður þar sem deCODE sé nú skráð á markaði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.