Morgunblaðið - 24.01.2001, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 24.01.2001, Qupperneq 28
LISTIR 28 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ MYNDLISTARSÝNINGIN Íslensk myndlist um aldamót: Fjársjóður nútímans stendur nú yfir í Galleríi Fold, en henni lýkur 28. jan- úar. Um er að ræða stærstan hluta sýningar sem haldin var í sýningarsal Alþjóðagjald- eyrissjóðsins í Washington í október síðast- liðnum og efnt var til í tilefni af því að þús- und ár eru liðin frá landafundum norrænna manna í Vesturheimi. Að sýningunni stóðu íslenska sendiráðið í Washington og Gallerí Fold auk styrktaraðila en Alþjóðagjaldeyr- issjóðurinn lagði til húsnæði og vinnu fyrir sýninguna í Washington. Á sýningunni í Gallerí Fold eru verk eftir Braga Ásgeirsson, Daða Guðbjörnsson, Guð- björgu Lind Jónsdóttur, Guðrúnu Kristjáns- dóttur, Karólínu Lárusdóttur, Pétur Gaut Svavarsson, Soffíu Sæmundsdóttur, Tryggva Ólafsson og Þorgerði Sigurðardóttur. Auk þess voru á sýningunni í Washington verk eftir Guðrúnu Halldórsdóttur, Ingibjörgu Styrgerði Haraldsdóttur, Kristínu Guðjóns- dóttur og Magnús Þorgrímsson. Þversnið af íslenskri myndlist Hugmyndin var að gefa sýnishorn af ís- lenskri myndlist um aldamótin, en Elínbjört Jónsdóttir, eigandi Gallerís Foldar, var sýn- ingarstjóri og valdi verkin á sýninguna. Þrettán listamenn urðu fyrir valinu og reyndi Elínbjört að hafa hópinn sem breið- astan. Hún ákvað að velja listamenn sem fást við hefðbundna listmiðla auk þess sem hún leitaðist við að velja verk sem mynduðu e.k. fagurfræðilega heild hvað liti varðar. ,,Sýningin tókst mjög vel úti og fékk góða umfjöllun, og var því brugðið á það ráð að flytja sýninguna heim og setja hana upp hérna í galleríinu,“ segir Jóhann Ágúst Hansen listmunasali í Gallerí Fold. „Reynt er að sýna það sem er að gerast í myndlistinni í samtímanum, það sem er að seljast í dag og e.t.v. það sem almenningur metur hvað mest. Vonandi verður eitthvert framhald á sam- starfi af þessu tagi, þ.e. við stofnanir erlend- is og innlendis sem standa utan við listina en geta stuðlað að því að kynna hana almenn- ingi,“ segir Jóhann Ísland sem viðfangsefni Soffía Sæmundsdóttir myndlistarkona hefur verið með verk í sýningunni í Wash- ington og hér heima. Henni þótti það ánægjuleg reynsla að vera viðstödd opn- unina í Washington. ,,Þetta var mjög skemmtilegt, því daginn áður hélt Sinfón- íuhljómsveitin tónleika í Kennedy Center og síðan var þessi glæsilega opnun haldin. Það var því mjög skemmtilegt að upplifa þessa tvo íslensku viðburði í höfuðborg Bandaríkj- anna.“ Soffía segir sýninguna vera ágætis þver- skurð af því sem er að gerast á ákveðnu sviði við þessi tímamót. „Þótt þetta sé skemmti- lega breiður hópur hugsa ég að við vinnum öll út frá Íslandi á okkar máta. Það er nátt- úrulega ekki allt þarna inni, margt fleira mætti tína til, en engu að síður finnst mér þetta gefa glögga mynd af einhverju sem er að gerast á Íslandi.“ Þetta sjónarmið segist Soffía hafa orðið vör við bæði hjá þeim útlendingum og Ís- lendingum sem sáu sýninguna. Aðspurð seg- ir Soffía það líklegt að finna megi einhver tengsl milli bláa litarins sem lagt var upp með við val sýningarinnar og Íslands sem viðfangsefnis. ,,Það er kannski bara þessi birta sem við höfum hérna sem hefur ráðið því,“ segir Soffía að lokum. Fjársjóður nútímans Interiör eftir Tryggva Ólafsson. Lífsins fljót eftir Soffíu Sæmundsdóttur. MAGNÚS Baldvinsson bassa- söngvari hlaut lofsamlega dóma þegar hann söng hlutverk Ferr- ando í Il Trovatore sem flutt var í Óperuhúsinu í Frankfurt á síð- asta ári. Óperan verður nú tekin til sýninga á ný í tilefni af hundr- að ára dánardegi Verdis og mun Magnús þá syngja á móti Krist- jáni Jóhannssyni tenórsöngvara. Magnús var á leiðinni á fyrstu æfinguna með Kristjáni þegar blaðamaður hringdi í hann til Frankfurt þar sem hann er bú- settur. „Það verður gaman að syngja með Kristjáni,“ segir Magnús um samstarfið. „Hann fer með hlutverk trúbadorsins Manricos sem er mjög erfitt. Það hafa þónokkrir tekist á við það í þessari uppfærslu en þeir hafa ekki allir staðið sig. Það má því segja að nú sé loksins kominn tenór í þetta hlutverk sem mun valda því fullkomlega og syngja það með sóma.“ Uppfærslan verður fyrst flutt hinn 27. janúar en þá verða sem fyrr segir hundrað ár liðin frá dánardegi Verdis. „Það er mikið flutt eftir Verdi um allan heim um þessar mundir í tilefni af því en í Frankfurt verður það þessi uppfærsla á Il Trovatore en auk þess mun ég syngja í Attila sem verður sett á svið með heims- frægum söngvurum á borð við Roberto Scandiuzzi,“ segir Magnús. Magnús hefur verið á föstum samningi hjá Óperuhúsinu í Frankfurt undanfarið en hann var fastráðinn til tveggja ára um mitt ár 1999. Hann segir þennan tíma hafa verið mjög árangurs- ríkan, enda hafi hann haft mjög góð hlutverk. Hann hefur sungið í mörgum Verdi-óperum og mun halda því áfram á næstunni. „Fram að sumri er ég t.d. með fimm Verdi-óperur,“ segir Magn- ús. Það eru fyrrnefndar Il Trov- atore, Attila og auk Nabucco í Frankfurt, I vespri siciliani í Darmstadt og Aida á sumarhátíð- inni í Savonlinna í Finnlandi.“ Mönnum hefur komið saman um að rödd Magnúsar henti sér- lega vel fyrir bassahlutverk Verdis, en gagnrýnandi á blaðinu Das Opernglas sagði rödd hans vera eins og skapaða fyrir þau hlutverk. „Tónlist Verdis er mjög holl fyrir röddina. Sama er að segja um ítalska tungu. Aftur á móti er þýska tungan miklu harð- ari, fyrir mig er það miklu auð- veldara að syngja á ítölsku og hef ég því einbeitt mér að því. Magn- ús kemst þó ekki hjá því að syngja á þýsku við og við en hann fékk góða dóma fyrir söng sinn í Hollendingnum fljúgandi nýlega. Aðspurður segist Magnús ætla að vera eitt ár í viðbót hjá Óp- eruhúsinu í Frankfurt en eftir það hyggur hann á lausa- mennsku. „Ég hef fengið mikið af tilboðum í lausamennsku en hef orðið að hafna svo mörgum þeirra vegna þess að ég er fastráðinn hér og það er forgangur á því sem ég er að gera hér í húsinu.“ Magnús verður þó á svipuðum slóðum í verkefnavali og verið hefur, „ég mun halda mig við klassíkina ef ég má einhverju um það ráða. Ég er ekki mikið fyrir þessar nútímaóperur.“ Það verður því í mörgu að snú- ast hjá Magnúsi Baldvinssyni á næstunni. „Ég mun halda mig við klassíkina“ Magnús Baldvinsson og Kristján Jóhannsson syngja í Frankfurt Magnús Baldvinsson söng í Il Trovatore eftir Verdi á síðasta ári og mun nú syngja á móti Kristjáni Jóhannssyni tenórsöngvara. UNGUR að árum fékk Hans Jó- hannsson brennandi áhuga á því merkishljóðfæri, fiðlunni. Kveikjan lítt notuð fiðla sem hékk uppá vegg hjá afa hans, einkum uppá punt. En hún átti eftir að gegna merku hlutverki, því einn góð- an veðurdag stóðst sveinninn ekki mátið. Tók hljóðfærið niður af veggnum og hlutaði niður í frumparta. Leit- aði svars við leyndar- dómnum hversvegna afi gamli gat ekki náð öðru en sargi úr þessu fínlega instrúmenti, þegar öðrum tókst að laða fram fegurstu óma sinfóníunnar. Þar með var teningunum kastað. Þegar Hans var fulltíða nam hann fiðlusmíði og starfar sem slíkur. Steinþór Birgisson og Fríða Björk Ingvarsdóttir, höfundar Fiðlunnar, heimildarmyndarinnar um lista- smiðinn, velja snjallan frásagnar- máta; fylgja eftir smíði á einni, til- tekinni fiðlu. Við fylgjumst með því er Sandrine Cantoreggi, einn þekkt- asti fiðluleikari Benelúxlandanna, kemur að máli við Hans og falast eft- ir smíðisgrip. Sem segir okkur allt sem segja þarf um það álit sem smið- urinn hefur áunnið sér í listgrein sinni. Til að byrja með þarf Hans að kynnast kaupandanum, heyra áherslurnar í leik hennar, glöggva sig á persónuleikanum, síðan er hægt að hefjast handa. Næst tekur við margra mánaða vinna; smiðurinn velur af kostgæfni viðinn í hina ýmsu hluta hljóðfær- isins. Sporjárn, heflar og önnur handverkfæri leika í höndum hans. Það þarf einstaka hæfileika til að fást við slíka völundarsmíð. Menn þurfa að vera dverghagir í höndum, með næmt tóneyra og mannþekkj- arar. Þá er aðeins fátt eitt talið. Sem fyrir töfra sjáum við viðarbútana úr hinum hefðbundnu trjátegundum til fiðlusmíðar, hlyn og greni, taka smám saman á sig sinn eilífðarsvip háls, brjósts, sálar og annarra hluta þessa fínlega og fagra hljóðfæris. Nöfnin dregin af líkamshlutum mannsins, samkvæmt gamalli, ung- verskri þjóðsögu. Að lokum er fiðlan tilbúin til með- höndlunar eigandans og þá hefst annar hluti ferilsins. Við tekur nokkurra mánaða frá- gangur og stillingar, uns hljóðfærið er tilbú- ið til margra vikna „til- keyrslu“ eigandans – áður en hann getur far- ið að nota nýju fiðluna sína opinberlega. Ná fram rétta tóninum, bindast hljóðfærinu til- finningaböndum. Meðfram ferlinu rekur Hans ýmsan fróðleik um aldagaml- ar hefðir við fiðlusmíð- ina, lakkgerðina o.fl., og útskýrir nokkuð af leyndardóm- um verksins, sem rekja má langt aft- ur í aldir, til gullgerðarmannanna. Annað lætur hann aldrei uppi, því ekki má skerða dulúðina sem umlyk- ur þessa völundarsmíð. Fiðlan er vandvirknisleg og sett fram á lifandi og áhugaverðan hátt og gefur áhorfandanum góða innsýn í þetta merkilega handverk. Fiðlan verður enn merkilegri og dularfyllri á eftir og Hans Jóhannsson, geðugur og aðlaðandi snillingur, listamaður af guðs náð. Steinþór og Fríða Björk og þeirra aðstoðarfólk hafa unnið á réttum nótum og útkoman í alla staði hin ánægjulegasta. Fiðla fyrir Sandrine Sæbjörn Valdimarsson HEIMILDAR- MYND R í k i s s j ó n v a r p i ð FIÐLAN – THE VIOLIN Leikstjóri Steinþór Birgisson. Handritshöfundur Fríða Björk Ingvarsdóttir. Heimildarmynd. Sýningartími 60 mín. Sýndi í Sjón- varpinu 21. janúar 2001. Lynx Productions, Lúxemborg, o.fl. Árgerð 2000. Hans Jóhannsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.