Morgunblaðið - 24.01.2001, Page 36

Morgunblaðið - 24.01.2001, Page 36
UMRÆÐAN 36 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ENGINN er fæddur meðhatur til annars mannsvegna litarháttar hans,uppruna hans eða trúar. Hatur verða menn að læra, og ef þeir geta lært að hata, er einnig hægt að kenna þeim að elska, því að kærleikur er eðlislægari manns- hjartanu en andstæða hans. Þessi orð eru hvorki ættuð frá trúarleiðtoga né heimspekingi, heldur eru þau sótt í sjálfsævisögu stjórnmálamannsins Nelsons Mandela, Long Walk to Freedom (1994), sem reyndar er bæði óvenjulegur stjórnmálamaður og óvenjulegur maður. Það þarf óvenjulegan mann til að ganga beiskjulaus út úr 27 ára fangels- isvist fyrir skoðanir og réttlætis- baráttu – og ganga síðan fram fyr- ir skjöldu til sátta og til að reyna að sameina þjóð sem var sundruð af hatri og óréttlæti. Kannski þurfa menn að kenna á þvílíku harðræði til að skilja óréttlæti nógu vel til að geta fyrirgefið það í eigin dæmi en ekki fyrir hönd þjóðar sinnar. Mandela hefur líka skilið að varanleg lausn á djúp- stæðum mannlegum vanda fæst hvorki með hernaðarmætti né skyndisamningum, heldur einungis með þeirri breytingu sem erfiðust er, breytingu hugarfars. Þótt sumum hafi þótt nóg um sjálfhælni forsvarsmanna í samn- inganefndum grunnskólakennara og sveitarfélaga, komu þar fram í umfjöllun hugtök sem ekki hafa verið okkur tungutöm. Er þar átt við orðin „forsendusamningur“ og „togstreitusamningur“. Ljóst er af þessum hugtökum að ekki er ein- asta örðugra að ná saman í tog- streitusamningum, heldur munu þeir endast illa og skila litlum við- varandi árangri. Það helgast af því að þeir snúast um einstök, tiltekin atriði en beinast ekki að heildar- lausn til frambúðar. Endanlega snúast núverandi deilur kennara og viðsemjenda þeirra nefnilega ekki um kaup og kjör einstakra hópa, heldur um framtíð mennt- unar með þjóðinni. En þessum pistli er ekki ætlað að fjalla um kennaraverkfall, heldur vil ég nota hugtökin hér að framan í víðtækari merkingu í miklu alvarlegri vanda- málum. Það er bæði erfitt og hryggi-legt að verða daglega vitniað mannvígum á landssvæði Gyðinga og Palestínumanna og vita um leið að þau eru sprottin af langvinnu hatri og tortryggni er ristir svo djúpt í tilfinningum að al- menn skynsemi kemur að litlu haldi. Og svipaða sögu má segja um Norður-Írland, Kosovo og Indónesíu, og raunar hvarvetna þar sem illdeilur kvikna af því að fólk af ólíkum toga þjóðernis og trúar telur sig ekki geta unað sam- búð á sama landssvæði. Út frá þeim forsendum má segja að slíkar deilur virðist illleysanlegar, af því að hvorugur deilenda er fáanlegur að ljá máls á skilningi á vanda hins. Óvild í garð fólks af öðrum toga, af öðru þjóðerni, litarhætti eða trú, er venjulega talin stafa af fáfræði. En það eru ekki fáfróðir menn sem ekki geta samið um frið í Ísrael og Palestínu. Hins vegar snýst öll við- leitni þeirra um togstreitusamn- inga en ekki forsendusamninga. Grundvöllur viðræðna þeirra er átök: um Jerúsalem, um lands- svæði, um endurkomu flóttafólks. Við bætast svo persónulegar að- stæður einstakra leiðtoga. Þeir Barak og Arafat hugsa einnig um stöðu sína og völd, um leið og völd þeirra takmarkast af slíkum hugs- unum. Ef þeir gefa eftir til sátta, eru þeir þá um leið að hætta stöðu sinni? Ísraelsmenn geta ugglaust hald- ið áfram að kúga Palestínumenn um hríð í skjóli hervalds síns. En það leiðir aldrei til friðar, jafnvel þótt þeir geti barið niður uppreisn- ina með hörku. Og sagan segir okkur að kúgun stenst ekki til frambúðar. Meira að segja sterk- ustu stórveldi sem samtímanum virðist ósigrandi eru um síðir dæmd til að sundrast og líða undir lok. Og jafnvel þótt friðargæslulið gengi á milli stríðandi fylkinga og héldi þeim aðskildum, þá er orsök ósamlyndis ekki þar með horfin. Það sjáum við á Norður-Írlandi og í Kosovo. Þvílík gæsla getur ekki staðið um ókominn aldur. Munum einnig að þótt talið hafi verið í lok síðari heimsstyrjaldar að þá hafi unnist endanlegur sigur á fasisma, er það ekki svo. Slík mannvonsku- hugsun hefur náð völdum í nokkr- um löndum í heiminum og jafnvel hafa fasistaflokkar náð umtals- verðu kjörfylgi í löndum eins og Frakklandi og Austurríki. Af hverju í ósköpunum? Getur mann- kynið aldrei lært af sínum eigin skelfingum? Í raun snýst deila Ísraels- ogPalestínumanna ekki einungisum framtíð þeirra innbyrðis, heldur um framtíð mannkynsins. Um framtíð sem er háð þeirri for- sendu að við lærum að skilja marg- breytileika manna, þjóða og trúar- viðleitni – og lærum að virða þann margbreytileika. Því er nefnilega svo undarlega háttað að mannkyn- ið getur því aðeins sameinast að við viðurkennum margbreytileik- ann og virðum hann. Við erum ekki eins, þurfum ekki að vera eins og eigum ekki að vera eins. En við er- um hér saman, núna. Því þyrftu Ísraels- og Palestínumenn (og fleiri) að hætta að þrátta sífelld- lega um einstök deiluefni og snúa sér í staðinn að þeirri spurningu sem þeir hafa forðast eins og heit- an eld: hvernig eigum við að fara að því að læra að lifa saman? For- senda þess er auðvitað gagnkvæm virðing sem ekki er fyrir hendi. Þess vegna er næsta spurning: hvernig getum við lært að virða hver annan? Nelson Mandela talar umhatur og kærleika. Efmenn geta lært að hata, ætti einnig að vera hægt að kenna þeim kærleika. En – svo að notuð séu orð Douglas Lockhart í for- mála fyrir bók hans Jesus the Her- etic (1997) – „eins og allir vita er kærleikur, líkt og hatur, ekki grip- inn úr lausu lofti – hann verður að spretta fram innra með okkur vegna djúprar samkenndar okkar með öðrum“. Til þess að svo geti orðið þarf að verða sú breyting sem erfiðust er, hugarfarsbreyt- ing. Og þegar slík breyting hug- arfars er orðin, þarf reyndar ekki lengur neina samninga. Samningar um frelsi og frið Höfundur er prófessor í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands. Meðal annarra orða Eftir Njörð P. Njarðvík NÚ þegar norska ríkisstjórnin hefur ákveðið að leyfa út- flutning á hvalkjöti, þrátt fyrir alþjóðlegt hvalveiðibann, er óhætt að fullyrða að al- gjörlega ný staða er komin upp varðandi hugsanlegar hvalveið- ar Íslendinga. Fram til þessa hafa íslensk stjórnvöld dregið lapp- irnar í þessu mikil- væga máli og beitt fyr- ir sig þeim rökum að lítill tilgangur og ávinningur sé fólginn í hvalveiðum ef enginn markaður er til staðar fyrir afurð- irnar. Þessi rök eru góð og gild. Norðmenn telja sig hins vegar geta hafið útflutning á hrefnuafurðum til þriggja landa án þess að það stang- ist á við alþjóðlega sáttmála um bann við verslun með tegundir í út- rýmingarhættu (CITES). Þessi lönd eru Ísland, Japan og Perú, sem öll hafa lýst yfir andstöðu við að hrefna sé á lista CITES yfir dýr í útrýming- arhættu. Japansmarkaður ætti því að standa opinn fyrir Íslendingum, líkt og Norðmönnum, þegar hval- veiðar hefjast hér við land. Það er mikil eftirspurn eftir hvalafurðum í Japan og „markaðsrökin“ gegn hval- veiðum eru því fyrir bí. Önnur rök gegn hvalveiðum Nú hafa aðilar í ferðaþjónustu, sem bjóða upp á hvalaskoðunarferð- ir, sett sig algerlega upp á móti öll- um hugmyndum um að hafnar verði hvalveiðar á ný. Talsmenn hvala- skoðunarfyrirtækja hafa til þessa verið ósparir á yfirlýsingar varðandi tekjur af hvalaskoðunarferðum og slá fram í fjölmiðlum háum tölum í því sambandi. Þessir sömu talsmenn fullyrða að þessari vaxandi atvinnu- grein verði fórnað með hvalveiðum. Hvalveiðar og hvala- skoðun geti með engu móti átt samleið. Sagt er að rúmlega 40.000 manns hafi farið í hvalaskoðun á síðasta ári og að slíkar ferðir hafi gefið af sér um 200 milljónir króna sem skiptist á milli 10–20 báta. Samt sem áður eru margar útgerðir hvalaskoðunarbáta farnar í gjaldþrot eða berjast í bökkum. Jafn- framt er fullyrt að þessar skoðunarferðir skili þjóðarbúinu um einum milljarði króna með tengdri þjónustu. Af þessu má draga þá ályktun að þessar tölur séu fengnar með mjög ótrúverðugum hætti. Þær séu margfaldaðar upp með reiknistuðlum sem standist ekki raunveruleikann. Þessu til rök- stuðnings er rétt að benda á að úr röðum hvalaskoðunarmanna hefur „lekið“ út sú staðhæfing, að uppgef- inn fjöldi fólks í þessum ferðum sé verulega oftalinn. Rök með hvalveiðum Þegar hvalveiðar hefjast á ný hér við land má slá því föstu að farið verði eftir ráðleggingum vísinda- manna í einu og öllu varðandi til- högun veiðanna. Hafrannsókna- stofnun telur að til að byrja með verði óhætt að hefja veiðar á 250 hrefnum (sem eru aðeins 0,45% af þeim 56.000 hrefnum sem eru á ís- lenska landgrunninu) og 200 lang- reyðum (sem eru 1,25% af stofninum sem er á milli Íslands og Austur- Grænlands). Með þessu yrði mjög varlega af stað farið og mætti vafa- lítið auka veiðarnar allnokkuð þegar fram í sækir án þess að skaða hvala- stofnana á nokkurn hátt. Þessi veiði, 200 langreyðar og 250 hrefnur, myndi gefa af sér um 4.000 tonn af kjöti og rengi að andvirði um 6 millj- arðar króna í hreinar útflutnings- tekjur miðað við það verð sem nú er í boði á Japansmarkaði. Hér er um að ræða svipaða upphæð og tekjur okkar Íslendinga af úthafskarfaveið- um, rækjuveiðum á Flæmingja- grunni og af veiðum úr norsk-ís- lensku síldinni samanlagt, þ.e.a.s. verðmætið gæti numið u.þ.b. 4% af útflutningsverðmæti Íslendinga. Það er því ljóst að hvalveiðar yrðu arðbærasta útgerð og atvinnugrein Íslendinga miðað við tilkostnað. Önnur rök með hvalveiðum snúa að lífríkinu. Það gefur augaleið að hóflegar hvalveiðar myndu draga úr afráni hvala. Við núverandi stöðu mála er talið að afrán hvala geti kostað okkur um 20% samdrátt í þorskveiðum í framtíðinni. Nýtum og njótum Eins og kom fram hér að ofan þá fullyrða talsmenn hvalaskoðunarfyr- irtækja að hvalveiðar og hvalaskoð- un geti með engu móti átt samleið. Þeirri uppbyggingu, sem átt hefur sér stað í ferðaþjónustu, tengdri hvalaskoðun yrði fórnað á altari hvalveiða. Hér er um óábyrga full- yrðingu að ræða. Nægir þar að nefna til sögunnar aðdráttarafl hval- stöðvarinnar í Hvalfirði á sínum tíma og reynslu Norðmanna. Veiðar Norðmanna hafa ekki á nokkurn hátt dregið úr aðdráttarafli hvala- skoðunarferða þar í landi. Hvalveiðimenn og hvalaskoðunar- menn þurfa að grafa stríðsöxina og finna lausn á þessu máli þannig að sátt og sómi sé að, öllum Íslend- ingum til hagsbóta – njótum og nýt- um. Að vera eða vera ekki hval- veiðiþjóð? Karl Þór Baldvinsson Hvalveiðar Hvalveiðimenn og hvalaskoðunarmenn þurfa að grafa stríðs- öxina og finna lausn á þessu máli, segir Karl Þór Baldvinsson, þann- ig að sátt og sómi sé að. Höfundur er fyrrverandi hval- veiðimaður. SKÖMMU fyrir jól ákvað Alþingi við 3. umræðu fjárlaga að bæta 10 nýjum lista- mönnum í þann hóp, sem hlýtur heiðurs- laun frá Alþingi. Fyrir voru í hópnum 11 manns, svo nú er það 21 listamaður, sem nýtur heiðurslauna. Frétt þessa efnis birtist í dagblöðunum, en lét lítið yfir sér, og líklega fæstir veitt henni athygli í jóla- annríkinu. Í viðtali í Mbl. við varaformann mennta- málanefndar Alþingis, en hún ákvarðar hverjir hljóta skuli þessa viðurkenningu, kom fram, að góð samstaða hafi orðið um niðurstöð- una meðal nefndarmanna. Jafn- framt var þess getið, að fleiri nöfn listamanna hefðu komið til álita, þótt ekki kæmust þau upp á borðið að þessu sinni. Þá er kannski rétt að geta þess strax til upplýsingar, að í mennta- málanefnd sitja 9 manns, fulltrúar allra stjórnmálaflokka, sem eiga sæti á Alþingi. Formaður nefnd- arinnar er Sigríður Anna Þórðar- dóttir og varaform. Ólafur Örn Haraldsson. Nú vill svo til, að eitt þeirra nafna sem lögð voru fram til heið- urslauna og nefndin hafnaði, var nafn Guðmundar L. Friðfinnssonar, rithöfundar á Egilsá í Skagafirði. Það voru MENOR – Menningar- samtök Norðlendinga, en undirrit- aður er form. þeirra samtaka, sem lögðu fram tillögu þar um og kynntu hana nefndarmönnum í menntamálanefnd og fleiri aðilum í vetrarbyrjun 1999. Nefndin hefur því haft eitt ár til að skoða málið. Guðmundur L. Friðfinnsson er löngu þjóðkunnur maður og rithöf- undur. Hann hefur alla ævi verið búsettur á Egilsá og stundað þar búskap samhliða ritstörfum. Um langt árabil rak hann þar barnaheimili ásamt konu sinni, Önnu Sig- urbjörgu Gunnarsdótt- ur (d. 1982). Síðari árin hefur Guðmundur stundað skógarbúskap á jörð sinni og gerst einn af brautryðjendum í þeirri búgrein. Guðmundur, sem nú er hálftíræður að aldri, hefur verið sískrifandi í hálfa öld og er enn ungur í anda. Fyrstu bækur hans komu út árið 1950. Guðmundur átti því hálfrar aldar rithöfundarafmæli á nýliðnu ári. Hann hefur verið afkastamikill rithöfundur og fengist við allar höf- uðgreinar ritlistar, sem mun vera fátítt. Komið hafa út eftir hann 15 bækur um fjölbreytileg efni: ung- lingabækur, skáldsögur, ævisaga, ljóðabók, smásagnahefti og leikrit og svo bækur um þjóðlegt efni. Síðasta ritverk Guðmundar var bókin „Þjóðlíf og þjóðhættir“, sem út kom árið 1991 og fjallar um horfna þjóðlífshætti og mannlíf á skagfirskum sveitaheimilum í byrj- un þessarar aldar. Bók þessi er stórvirki og vakti verðuga athygli og fyrir hana hlaut Guðmundur Davíðspennann, verðlaun Fél. ísl. rithöfunda (1992), en einnig var bókin tilnefnd sem ein af fimm fræðibókum til ísl. bókmenntaverð- launanna. Guðmundur hefur skrifað nokkur leikrit, og hafa tvö þeirra verið flutt sem framhaldsleikrit í útvarpi, bæði fyrir börn og unglinga, auk þess leikþáttur í sjónvarpi. Þá hafa birst eftir hann margar smásögur og ljóð Mega heiðurs- launalistamenn búa úti á landi? Ólafur Þ. Hallgrímsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.