Vísir - 30.05.1979, Page 29
VlSIR
Miðvikudagur 30. mai 1979.
FLVTJA
ÚT ORKU
en aðetns f dönskum rafhlöðum
Danmörk er ef til vili i hugum
okkar tslendinga orkusnautt
land þar sem engir fossar finn-
ast þar. En þegar betur er að
gáð er landið hlaðið orku þvi I
Danmörku eru Hellesens-
rafhlöðurnar framleiddar.
William Hellesen fann upp
þurrrafhlöðuna árið 1887 og
brátt var hafin fjöldafram-
leiðsla á þeim. Hellesens«verk-
smiðjurnar voru þær fyrstu sem
fóru að framleiða rafhlöður og
nú er fyrirtækið með stærstu
rafhlöðuframleiðendum i heimi
og eini framleiðandinn á
Norðurlöndum.
Hér á landi eru það Bræðurn-
ir Ormsson h.f. sem flytja inn
Hellesens-rafhlöðurnar.
Höfuðstöðvar Hellesens-
fyrirtækisins eru i Kaupmanna-
höfn en þar eru aðalskrifstofur,
rannsóknarstofur, verksmiðja
og söluskrifstofur.
Hellesens-rafhlöðurnar eru
framleiddar úr zinki, brún-
steini, grafiti og leiðandi efnum
en utan um rafhlöðuna er siðan
einangrun og málmhetta.
Framleiddiir eru tugir tegunda
af rafhlöðum til mismunandi
nota og i mismunandi stæröum
og gerðum.
Hellesens framleiðir rafhlöð-
ur allt upp i 120 volt.
Þetta elsta rafhlöðufyrirtæki
heims flytur vörur sinar á rúm-
lega 100 markaðssvæði út um
allan heim allt til kaldra Græn-
landsstranda og suður til hita-
beltislanda.
—KS.
Nýtisku vélakostur er notaður við framleiðslu á garni.
Hjertegarn
frá Odense
Danskt garn hef ur lengi verið velþekkt hérlendis og
þá ekki síst HJERTEGARN. Þá er ODELON garnið
velþekkt hjá mörgum svo og JUTLAND SOCKS.
Það er „De Danske Kamgarnspinderier A/S'' sem
framleiðir ofantaldar tegundir og selur hingað til
lands, en það er stærsti f ramleiðandi garns og sokka í
Danmörku.
Fyrirtækið var stofnað árið 1926 í Odense og hef ur
síðan stöðugt vaxiðog dafnað, enda leggur það jafnan
áherslu á nýjar uppskriftir og snið.
—SG.
Reisuleg verksmiðjubygging og „hráefnið” á beit.
'■‘Wl