Morgunblaðið - 09.02.2001, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.02.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ SVARTOLÍAN sem lak úr olíu- geymi Skeljungs hf. við Hólmaslóð á Granda síðdegis á miðvikudag barst hvorki í holræsi né út í sjó, að sögn Halls Árnasonar, deildarstjóra hjá Reykjavíkurhöfn. Um 5.000 lítr- ar af olíu láku út úr geyminum en samkvæmt upplýsingum frá Skelj- ungi varð óhappið vegna mannlegra mistaka. Unnið var að hreinsun í gær. Jarðvegur umhverfis geyminn var fjarlægður og fluttur til förg- unar. Olíugeymirinn stendur við verk- smiðju Faxamjöls. Hann er tengdur við olíuleiðslu sem liggur frá olíu- birgðastöðinni í Örfirisey að elds- neytisafgreiðslu fyrir olíubáta olíu- félaganna við Faxagarð. Í fréttatilkynningu frá Skeljungi hf. segir að óhappið verði á engan hátt rakið til bilunar, hvorki í olíu- stöðinni né í geyminum, heldur ein- göngu til mannlegra mistaka. Svartolía var síðast sett á geyminn á þriðjudag. Í fréttatilkynningunni segir að þá hafi láðst að skrúfa fyrir loka sem tengir geyminn við olíu- leiðsluna niður að Faxagarði. Þetta hafi valdið því að þegar dæla átti olíu um leiðsluna í olíuflutn- ingaskipið Lauganes fór olían þess í stað á geyminn, sem yfirfylltist með þeim afleiðingum að 5.000 lítrar af svartolíu flæddu upp úr honum. Gunnar E. Kvaran, yfirmaður kynningarsviðs Skeljungs, segir að um leið og menn hafi gert sér grein fyrir því sem var að gerast hafi ver- ið gerðar ráðstafanir til að stöðva lekann og hefja hreinsunarstarf. Breitt var yfir niðurföll í nágrenn- inu til að koma í veg fyrir að olía færi ofan í þau. Lúðvík E. Gúst- afsson, sviðsstjóri umhverfissviðs heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, segir að hafi 5.000 lítrar lekið út úr geyminum sé óhappið með þeim stærri sem orðið hafa á undanförn- um árum. Heilbrigðiseftirlitið mun kanna málið. Mannleg mistök ollu því að um 5.000 lítrar af svartolíu láku út úr olíugeymi Olían barst hvorki í holræsi né út í sjó Morgunblaðið/Árni Sæberg Olíugeymirinn sem olían flæddi úr er fremstur tankanna á myndinni, svartur að lit. Gagnrýni á kjöt sem ekki er til MATTHÍAS Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Nóatúns, segir gagn- rýni umhverfis- og heilbrigðisnefnd- ar Reykjavíkur um sölu á kjöti frá Hollandi, byggða á miklum misskiln- ingi þar sem Nóatún væri ekki leng- ur með erlent kjöt í kjötborðum verslana sinna. Í bókun nefndarinnar, sem sam- þykkt var með sex einróma atkvæð- um á fundi hennar í gær segir: „Um- hverfis- og heilbrigðisnefnd Reykjavíkur lýsir yfir áhyggjum sín- um og vonbrigðum yfir því að versl- unin Nóatún skuli enn á ný bjóða til sölu nautakjöt frá kúariðusýktu landi, nú síðast frá Hollandi.“ Matthías Sigurðsson segir Nóa- túnsverslanirnar hafa haft hollenskt kálfakjöt til sölu í fyrrasumar og fram á haust, því sé nú verið að gagn- rýna kjöt sem ekki sé til. Matthías kvaðst undrast bókunina þar sem upplýsingar um þetta tiltekna mál hefðu verið sendar til allra aðila sem málið varðaði og hann hefði því talið að allar hliðar þess lægju ljósar fyrir. BISKUP Íslands, Karl Sigurbjörns- son, er nú á ferð á Indlandi til að kynna sér þróunarverkefni sem fjár- mögnuð hafa verið með söfnunarfé frá Hjálparstarfi kirkjunnar. Með honum í för eru Jónas Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfsins, og Einar Karl Haraldsson, formaður stjórnarinnar. Ferð þeirra stendur til 21. febrúar. Jónas Þórisson tjáði Morgun- blaðinu að ferðakostnaður Hjálpar- starfsins væri ekki greiddur af söfn- unarfé heldur með öðrum tekjum. Hjálparstarf kirkjunnar greiddi ferðakostnað fulltrúa Hjálparstarfs- ins en biskupsembættið stæði straum af kostnaði vegna ferðar biskups. Farmiðann milli Íslands og Indlands sagði hann hafa kostað kringum 130 þúsund krónur og með öðrum kostnaði væri reiknað með um 200 þúsund króna kostnaði á mann. Matsatriði hvort kosti mikið Karl Sigurbjörnsson biskup tók undir með Jónasi Þórissyni að kostnaður við ferð fulltrúa Hjálpar- starfsins væri ekki greiddur af söfn- unarfé, allt söfnunarféð rynni óskipt til verkefna. Biskupsembættið greiddi kostnað við sína ferð. Hann sagði það alltaf matsatriði hvort ferðir sem þessar væru dýrar en ferðast væri á hagkvæmasta far- gjaldi og í starfi sem þessu væru slíkar heimsóknir og samskipti nauðsynleg. „Tilgangur ferðarinnar er að við kynnum okkur starfið sem sam- starfsaðilar Hjálparstarfs kirkjunn- ar eru að vinna hér. Það er m.a. með- al barna sem leyst hafa verið úr þrælaánauð fyrir fjármagn frá Ís- lendingum og ferðin var afráðin á síðasta ári,“ sagði biskup í samtali við Morgunblaðið síðdegis í gær. Biskup sagði að séra Marteinn, for- stöðumaður samtakanna Social Ac- tion Movement, sem hafa staðið fyr- ir starfi meðal hinna stéttlausu og lægst settu í landinu, hefði heimsótt Ísland á síðasta ári. Hann hefði þá lagt áherslu á að biskup Íslands kynnti sér starf samtakanna meðal annars í Chennai eða Madras. Alls söfnuðust um 30 milljónir króna til að leysa börn úr ánauð. Kynntu sér einnig jarð- skjálftasvæðin Biskup sagði jarðskjálftana í land- inu hafa sett nokkurt strik í reikn- inginn þar sem sumir fulltrúar sam- starfsaðila Hjálparstarfsins væru uppteknir vegna þeirra. En jafn- framt hefði gefist tækifæri til að sjá afleiðingar jarðskjálftanna og ræða við fulltrúa indverskra kirkjulegra hjálparsamtaka, Casa, sem stæðu að neyðarhjálp í landinu. Biskup sagði ACT, hjálparsamtök kirkna, einnig leggja lið við neyðarhjálp og ætti Hjálparstarf kirkjunnar aðild að því. Kostnaðurinn ekki greiddur af söfnunarfé Biskup Íslands og fulltrúar Hjálparstarfs kirkjunnar eru í tveggja vikna ferð á Indlandi ALLT útlit er nú fyrir að loðnufryst- ing fyrir Japansmarkað hefjist í næstu viku. Hrognafylling loðnunnar sem nú veiðist út af Vestfjörðum er um 13% en frysting á Japan hefst vanalega þegar hrognafyllingin er orðin um 15%. Mjög góð loðnuveiði er nú á miðunum á Látragrunni, út af Breiðafirði. Tvö skip voru í gær á loðnumiðunum fyrir austan land, um 50 sjómílur austur af Glettinganesi, en höfðu ekki séð neina loðnu. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hefur samið um sölu á að minnsta kosti 5.000 tonnum af frosinni loðnu til Japan. SH seldi á síðasta ári um 2.500 tonn af loðnu til Japan og mun því tvöfalda útflutning sinn náist að framleiða upp í samninga. Steindór Gunnarsson, innkaupastjóri hjá SH, segir að ekki sé enn ljóst hvaða verð fæst fyrir loðnuna í Japan. Hann seg- ir að Japansmarkaður taki við um 30 þúsund tonnum af frosinni loðnu á ári. Norðmenn ætli sér að framleiða um 20 þúsund tonn á þessari vertíð og því ætti að vera pláss fyrir ís- lensku loðnuna á markaðnum. Þá séu birgðir í Japan í jafnvægi Japanir eigi vanalega birgðir sem nemi ársneyslu. „Það eru því þokkalegar horfur á mörkuðum. Á síðasta ári var loðnan fremur smá en þá voru jafnan yfir 60 hrygnur í kílói. Loðnan í göngunni fyrir vestan þykir hinsvegar vænni og hefur hrygnufjöldinn verið á bilinu 46 til 52 stykki í kílói,“ segir Steindór. Alls voru flutt inn um 4.600 tonn af íslenskri loðnu til Japan í fyrra en minna var fryst á Japansmarkað á vertíðinni í fyrra en á vertíðum und- anfarin ár. Ætla má að verðmæti Japansloðnunnar í fyrra hafi numið tæpum 180 milljónum króna. Líklegt að frysting hefjist í næstu viku SH semur um sölu á loðnu til Japan FULLTRÚI ríkissaksóknara, sem ákært hefur tvo karlmenn fyrir að standa að innflutningi á rúmlega fimm þúsund e-töflum í fyrrasum- ar, telur annan manninn eiga meiri þátt í málinu en hinn og leggur minni trúnað á frásögn hans. Hvorugur ákærðu hefur viður- kennt sjálfa skipulagningu inn- flutningsins, en báðir játa hlut- deild að málinu. Sá sem ákæruvaldið telur hafa skipulagt innflutninginn er karlmaður með breskan ríkisborgararétt sem bú- settur hefur verið hérlendis síðast- liðin sex ár. Verjandi hans krafðist aðallega sýknu og til vara mildustu refsingar sem lög leyfa við aðal- meðferð málsins sem lauk í hér- aðsdómi Reykjavíkur í gær. Mót- mælti hann því að framburður ákærða væri ótrúverðugur eins og ákæruvaldið héldi fram og benti á að fíkniefnin hefðu fundist í far- angri meðákærða, Íslendings, við komuna til landsins í júlí sl. Frásögnin ótrúverðug og atburðarás tilviljanakennd Ákæruvaldið telur frásögn Bret- ans af veru sinni í London með Ís- lendingnum þegar efnin voru keypt ótrúverðuga og atburða- rásina of tilviljanakennda til þess að hægt sé að leggja trúnað á hana. Þá sé langlíklegast að fíkni- efnin hafi verið keypt fyrir gjald- eyri sem Bretinn tók út á Íslandi fyrir ferðina, að upphæð tæp millj- ón króna. Fingrafararannsókn tengi hann þá meira við málið en meðákærða. Mennirnir fóru í sama flugi til London, og gistu á sama gistihúsi. Segist Bretinn hafa verið sendur út af örkinni til að sækja fíkniefnin fyrir Íslendinginn. Verjandi hans benti á að ákæruvaldinu hefði ekki tekist að sanna að gjaldeyririnn hefði verið notaður í fíkniefna- kaup. Þá væri ákærunni og rann- sókn málsins ábótavant. Fram kom í gær að hvorugur mannanna hefur komið við sögu lögreglu vegna fíkniefnamála áður. Ekki hafði verið fylgst með þeim fyrir heimkomuna og því komst málið upp fyrir tilviljun við farangursleit í Leifsstöð. Minni trúnaður lagður á frásögn Bretans Breti og Íslendingur ákærðir fyrir stórfellt e-töflusmygl UNG stúlka sem var á leið yfir Lönguhlíð við gatnamót Drápuhlíðar varð fyrir bifreið um kl. 18.30 í gær- kvöldi. Stúlkan var flutt með sjúkra- bifreið á slysadeild. Samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglunni er stúlkan talin lærbrotin, ökklabrotin og er hugsanlega handleggsbrotin. Ekið á unga stúlku við Lönguhlíð ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.