Morgunblaðið - 09.02.2001, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 09.02.2001, Blaðsíða 54
54 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. VIÐ UNDIRRITAÐIR starfsmenn á leikskólanum Reykjakoti í Mos- fellsbæ viljum koma eftirfarandi á framfæri við þá sem málið snertir. Við hörmum þann málflutning sem verið hefur um leikskólann og telj- um ómaklega að okkur og leik- skólastjóra okkar vegið. Hér er um beinan atvinnuróg að ræða og í grein sem birtist í einu bæjar- blaðinu í Mosfellsbæ 18. janúar sl. erum við sem hér störfum sögð vinna ófaglega og höfnum við þeirri fullyrðingu algerlega. Okkur finnst hart að við og leikskólastjóri okkar skulum þurfa að sitja undir svívirð- ingum og rógi. Við hörmum að þeir aðilar sem hafa fundið sig knúna til þess að tjá sig skuli ekki hafa séð sóma sinn í því að gera það á heimavelli og reynt að leysa málin innanhúss. Við viljum benda á að hlutfall faglærðra leikskólakennara hér á Reykjakoti hefur farið úr 18% í yfir 40% síðan í haust. Hér er einnig úrvals ófaglært starfsfólk með mikla reynslu og metnað. Hér er unnið mjög gott starf sem við er- um stolt af undir frábærri stjórn Margrétar Pálu Ólafsdóttur. Nú er mál að linni, okkar vegna, og ekki síst barnanna vegna, óskum við eft- ir vinnufriði. Sigurbjörg Vilmundardóttir, Rakel Jóna Hreiðarsdóttir, Gyða Vigfúsdóttir, Svanhvít Magnúsdóttir, Lilja Sigurðardóttir, Ágústa María Arnardóttir, Guðrún Jónsdóttir, Bóas Hallgrímsson, Kristín Eyjólfsdóttir, Halldóra Halldórsdóttir, Guðrún Björg Pálsdóttir, Linda Björk Stefánsdóttir, Ingibjörg Ásmundsdóttir, Jóna Sigurðardóttir. Vinnufriður! Frá starfsmönnum á Reykjakoti: TILEFNI bréfs míns er bréf frá Ásdísi Arthursdóttir „nema í heim- spekideild“ sem birtist í Morgun- blaðinu 2. febrúar sl. á blaðsíðu 63. Fyrst vil ég segja að síðan ég man eftir mér hefur ríkissjónvarpið boðið upp á endemis lélega sjón- varpsdagskrá hvort sem það er jóla- dagur eða einhver annar og hefur það ekkert breyst. Ásdís kallar það heimsku að einkavæða ríkissjón- varpið, auðvitað á að gera það og hætta að neyða saklausa skattgreið- endur til að borga mánaðarlega há- ar fjárhæðir fyrir lélegt efni sem enginn horfir á. Sá sem vill menn- ingu getur farið á listasöfn eða óp- erutónleika. Langflestir Íslendingar hafa gaman að þessari svokölluðu „amerísku lágmenningu“ sem Ásdís talar um og hefur engan áhuga á né tíma til að vera að pæla í einhverri menningu sem að mínu mati er fyrir gamalt fólk, túrista og fólk sem hef- ur ekkert annað að gera. Mér finnst það sorglegt að heyra konu sem á lífið framundan tala svona illa um Stöð tvö og hinar einkareknu sjónvarpsstöðvarnar en svo vel um kommúnistamiðstöðv- arnar sem ríkisútvarpið og -sjón- varpið eru. Hvað hefur ríkissjón- varpið sýnt í gegnum tíðina annað en náttúrulífsmyndir og eldgamlar rússneskar sjónvarpsmyndir sem maður sofnar yfir að undanskildum nokkrum góðum þáttum eins og til dæmis Á tali hjá Hemma Gunn og Simpson-fjölskylduna sem ríkissjón- varpið tímdi ekki að halda áfram að sýna og lét því í hendurnar á Stöð 2. Tökum svo til dæmis alvöru sjón- varpsstöð eins og SkjáEinn sem er að mínu mati besta sjónvarpsstöð Íslands. Þar eru sýndir bestu og vinsælustu sjónvarpsþættir Banda- ríkjanna og Bretlands og má þar nefna til dæmis þættina Two guys a girl and a pizza place, Will and Grace, Dharma and Graig og The Practice. Einnig hefur SkjárEinn upp á að bjóða yfir tuttugu íslenska sjónvarpsþætti og má þar nefna frá- bæra þætti á borð við Sílikon, Björn og félagar, Djúpu laugina og marga fleiri, og er það meira en ríkissjón- varpið hefur nokkru sinni boðið upp á og þykjast þeir þó alltaf hafa besta úrvalið af innlendri dagskrá. Einnig má nefna þá staðreynd að SkjárEinn er ókeypis í opinni dag- skrá meðan maður er neyddur til að greiða fyrir ríkissjónvarpið í áskrift. Aldrei mun ég láta hafa það eftir mér að ég sé stoltur af því að börnin mín eða einhver í minni fjölskyldu horfi á ríkissjónvarpið eða eitthvað sem þar er sýnt heldur myndi ég telja það vera svartan blett á góðu nafni fjölskyldunnar. Ásdís sagði líka að skaupið hefði verið gott að vanda. Mér fannst skaupið vægast sagt hræðilegt eins og öllum öðrum sem voru viðstaddir í matarboði hjá okkur á gamlárs- kvöld og finnst mér það hafa versn- að með hverju árinu síðan foreldrar mínir vöndu mig á að horfa á það fyrir mörgum árum. En ekki lét ég það eyðileggja fyrir mér kvöldið eins og sjónvarpsdagskrá á til að gera fyrir Ásdísi. Í lokin vil ég segja að mér finnst ótrúlegt að enn sé til fólk undir áttatíu ára aldri sem hefur slíkar skoðanir sem Ásdís hefur og vona ég að hún sé ein af fáum sem vilja halda í gamlar hefðir sama hve þær eru orðnar úreltar og lélegar. JÓHANNES STEFÁN ÓLAFSSON, nemi í Menntaskólanum við Sund. Hvað er léleg sjón- varpsdagskrá? Frá Jóhannesi Stefáni Ólafssyni:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.