Morgunblaðið - 09.02.2001, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 09.02.2001, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. HLUTUR launþega í þjóðartekjum er nú í sögulegu hámarki og því geta launþegar vart búist við frekari kjarabótum nema hagvöxturinn glæðist. Þetta kom m.a. fram í erindi Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Þjóð- hagsstofnunar, á kjaraþingi Verslun- armannafélags Reykjavíkur í gær. Magnús L. Sveinsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöld að miðað við núverandi verðbólgu væru engar forsendur til uppsagna á kjaraliðum samninga. „Það eru forsendur í samningi okkar fyrir því að verðbólgan lækki frá því að samningar voru gerðir í maí í fyrra. Þá var verðbólgan 5,8% og samkvæmt upplýsingum forstjóra Þjóðhagsstofnunar er verðbólgan núna á bilinu 4–5%. Svo það er ljóst að þessar forsendur hafa haldið, þær eru ekki brostnar.“ Viðskiptahallinn gífurlegur Þórður Friðjónsson sagði að at- vinnulífið á Íslandi ætti nú undir högg að sækja, hagnaður væri í sögulegu lágmarki, vextir háir, skuldasöfnun mikil og væntanlega verulegar af- skriftir vegna mikilla fjárfestinga undanfarin ár. Þórður sagði að horfur í efnahags- málum væru tvísýnni nú en þær hefðu verið um langt skeið, bæði hér heima og erlendis. Hér á landi eru ýmis vandamál í efnahagslífinu og ber þar hæst viðskiptahallann, að sögn Þórðar. Viðskiptahallinn er gífurleg- ur um þessar mundir og meiri en hann hefur áður verið. Í fyrra var hallinn 61 milljarður króna, eða 9,1% af landsframleiðslu, og samkvæmt spám stefnir hann í 68 milljarða króna á þessu ári, sem eru 9,3% af landsframleiðslu. Árin 1998 og 1999 var viðskiptahallinn á bilinu 40–50 milljarðar. Þórður sagði að laun hér- lendis hefðu hækkað talsvert meira en í samanburðarlöndum og að hlutur launþega í þjóðartekjum væri nú í sögulegu hámarki. Þjóðartekjum má í aðalatriðum skipta milli launa og hagnaðar, annars vegar er það sem launþegar fá samanlagt í sinn hlut og hins vegar það sem fjármagnið ber úr býtum. Fram yfir miðjan síðasta áratug var hlutfall launþega að jafnaði á bilinu 60–63%, árið 1998 fór það í 64%, í fyrra var hlutfallið orðið 65,1% og stefnir í svipaða tölu í ár. Þjóðhagsstofnun telur hlut launþega í þjóðartekjum í sögulegu hámarki Formaður VR segir for- sendur samninga halda  Launakönnun/12 TVEIR hrafnar veittust að fálka á þaki Þjóðleikhússins í gær og vakti atgangurinn óskipta athygli ljós- myndara Morgunblaðsins sem átti leið hjá. Ólafur Nielsen, fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, sagði kunningsskap þessara fugla eiga sér djúpar rætur enda væru hrafnar og fálkar fjendur frá fornu fari. Hrafnar réðust á ránfugla, þ.á m. fálka, hvenær sem þeir hefðu tækifæri til, sem skýrðist af því að fálkar gera sér ekki hreiður sjálfir heldur ræna hreiðrum hrafnsins og eiga jafnvel til að vera svo ófor- skammaðir að leggja undir sig hreiður sem enn eru í smíðum. Þrátt fyrir fjaðrafok, stríðs- skræki og harðar atlögur hrafnanna tveggja slapp fálkinn á Þjóðleikhúsþakinu ómeiddur, enda sagði Ólafur að fullvaxinn lífs- reyndur fálki ætti í fullu tré við hrafna og gæti auðveldlega drepið þá ef hann beitti sér. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fornir fjendur fljúgast á FYRSTA hópsýking af völdum svo- kallaðrar caliciveiru hefur verið staðfest hér á landi en slíkar hópsýk- ingar eru vel þekktar erlendis. Vitað er til þess að 27 einstaklingar hafi smitast um miðjan desember sl. en sýking af völdum caliciveiru veldur uppköstum, niðurgangi, hita og bein- verkjum og verða sjúklingar fyrir vökvatapi ef einkennin eru svæsin. Að meðaltali vara einkennin í 36 klukkustundir og eru sjúklingar oft nokkra daga að jafna sig eftir að ein- kennin hverfa. Að öllum líkindum hefur smitið borist með snittum frá sama fyrir- tækinu sem allir hinir sýktu borðuðu fyrir hádegi 13. desember á fjórum mismunandi stöðum. Að sögn Rögn- valds Ingólfssonar hjá Heilbrigðis- eftirliti Reykjavíkur var í þessu til- felli ekki hægt að sýna fram á hvenær veiran barst í matinn. Ekk- ert sérstakt benti til þess að það hefði gerst í fyrirtækinu sem seldi snitturnar og heimsókn í fyrirtækið 19. desember gaf ekki tilefni til at- hugasemda. Grunsemdir vaknað áður Rögnvaldur segir að áður hafi vaknað grunsemdir um veiruhóp- sýkingu en ekki hefur tekist að stað- festa það nema í þetta skipti. „Þarna er staðfest hópsýking með þessum veirum. Þetta eru svona gubbupest- arveirur og berast þarna að öllum líkindum með þessum mat. Menn losna við þetta mjög fljótlega og það tekur nokkra daga að hreinsa sig af veirunum en það kemur fyrir að frískt fólk geti verið smitað í ein- hvern tíma.“ Caliciveirur eru harðgerar og þola hitameðferð tiltölulega vel og einnig sumar tegundir sótthreinsiefna. Veirurnar geta borist í matvæli í frumframleiðslunni eða við mat- reiðslu. Ef veirurnar berast í mat- væli fjölgar þeim ekki þar, heldur berast þær einungis með matnum og smita þannig við neyslu hans. Mjög lítið magn þarf til að sýkja fólk en veirur í matvælum sýkja oft yfir 50% neytenda. Einnig geta veirur borist frá manni til manns með snertismiti. Rögnvaldur segir það ekkert lög- mál að þessar veirur grasseri og að fólk þurfi að gæta sín vel varðandi hreinlæti til að koma í veg fyrir smit. 27 manns veiktust af völdum caliciveiru í matvælum Fyrsta hópsýkingin af völdum veirunnar Í LOK síðasta árs voru 2.853 börn á biðlista eftir leikskóla- plássi í Reykjavík eða um 23% fleiri en árið áður. Þegar litið er fimm ár aftur í tímann kemur í ljós að börnum á biðlista hefur fjölgað um 43%, þrátt fyrir að byggðir hafi verið níu nýir leik- skólar á tímabilinu. Bergur Felixson, fram- kvæmdastjóri Leikskóla Reykjavíkur, sagðist í samtali við Morgunblaðið vera afar óhress með stöðu mála, en hann sagði að aukinn dvalartími barna á leikskólunum og skort- ur á starfsfólki hefði m.a. leitt til þessarar þróunar. Samkvæmt þriggja ára áætl- un um rekstur, framkvæmdir og fjármál Reykjavíkurborgar er gert ráð fyrir því að á árinu 2004 til 2005 verði framboð á leikskólaplássum fullnægjandi. Leikskólar Reykjavíkur Tæplega 3.000 börn á biðlista  Börnum/14 FJÓRIR voru fluttir á slysadeild Landspítala – háskólasjúkrahúss í Fossvogi eftir árekstur tveggja bif- reiða á gatnamótum Bústaðavegar og Grensásvegar um kl. 17 í gær. Ökumenn og farþegar bifreiðanna kvörtuðu allir undan bakáverkum eða áverkum á hálsi og síðu. Allir fjórir voru fluttir með sjúkrabifreið á slysadeild, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Reykjavík. Báðar bifreiðarnar voru óökufær- ar og voru þær fjarlægðar af vett- vangi með dráttarbíl. Fjórir á slysa- deild eftir árekstur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.