Morgunblaðið - 09.02.2001, Blaðsíða 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 25
Rustic
Sutter Street
TAUGAVEFIR sem bannað er að
flytja á milli landa vegna hættu á kúa-
riðusmiti fundust í gær í nautakjöts-
sendingu sem flutt hafði verið inn frá
Þýskalandi til Írlands, að sögn írskra
embættismanna. Hluti úr mænu
fannst í einu kjötstykki í sendingu 240
stykkja þegar verið var að rannsaka
kjötið í samræmi við reglur sem settar
hafa verið til að reyna að hindra út-
breiðslu kúariðu.
Yfirvöld á Írlandi segjast líta málið
mjög alvarlegum augum. Landbúnað-
arráðherra Þýskalands, Renate Kün-
ast, hvatti í gær embættismenn í hin-
um 16 sambandsríkjum Þýskalands
að taka upp strangara eftirlit.
Fimmtán ár eru síðan breskir vís-
indamenn staðfestu uppgötvun sína á
kúariðu. Rúmir tveir mánuðir eru síð-
an fyrstu tilfelli fundust á Spáni. Þar
efndu bændur til fjöldamótmæla í gær
til að krefjast bóta vegna taps sem
þeir hafa orðið fyrir í kjölfar kúariðu-
fársins. Að sögn kjötframleiðenda á
Spáni hefur salan minnkað um 75%
síðan fyrstu tilfellin fundist.
Hingað til hefur kúariða einskorð-
ast við lönd í Evrópu. Á miðvikudag
varaði Alþjóðamatvæla- og landbún-
aðarstofnun Sameinuðu þjóðanna
(FAO) hins vegar við því að kúariða
geti hæglega breiðst út til allt að 100
landa um allan heim og ætti ekki að
líta á sjúkdóminn sem evrópskt fyr-
irbæri eingöngu.
Stofnunin hvetur lönd sem hafa
flutt inn kjöt- og beinamjöl eða naut-
gripi frá ríkjum Evrópusambandsins
(ESB) til að banna að kjöt- og beina-
mjöl verði notað til fóðurs. „Rann-
sóknir okkar sýna að a.m.k. 100 lönd
eru í hættu vegna kúariðu vegna þess
að þau fluttu inn nautgripi og kjötmjöl
frá Evrópu á níunda áratugnum,“
sagði Jacques Diouf, framkvæmda-
stjóri FAO. „Á þessu tímabili var mik-
ið selt af kjötmjöli frá Bretlandi til
Austur-Evrópu, Asíu og Austurlönd-
um nær.“
Að mati Financial Times á þessi við-
vörun eftir að vekja mikinn ugg í kjöt-
iðnaði í löndum sem líta á kúariðu sem
evrópskt vandamál. Bent er á að þeg-
ar farið var að gera athuganir á naut-
gripum í öllum löndum ESB komu
kúariðutilfelli í ljós í löndum sem töldu
sig laus við smit eins og Þýskaland.
Starfsmenn FAO eru tregir til að
segja hvaða lönd séu í mestri hættu en
bentu á að kjötmjöl var flutt inn til
Egyptalands, Írans, Íraks og Ind-
lands frá Bretlandi á níunda áratugn-
um.
Sérfræðingar hjá FAO telja að kúariða geti breiðst út um allan heim
Írar finna bann-
aða vefi í
innfluttu kjöti
Dublin, Madrid. AP, AFP.