Morgunblaðið - 09.02.2001, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.02.2001, Blaðsíða 22
ÚR VERINU 22 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ NÓTA- og togveiðiskipið Ingunn AK kom til Akraness í fyrradag og held- ur senn á loðnuveiðar. Skipið var smíðað hjá ASMAR-skipasmíðastöð- inni í Talcahuano í Chile. Það er 72,90 metra langt, 12,60 m breitt og getur borið allt að 2.000 tonn af afla, en það kostar um 850 milljónir króna. Haraldur Sturlaugsson segir að kaupin á Ingunni séu liður í upp- stokkun skipastóls HB og stefnan sé að vera með tvö skip, Ingunni og Vík- ing, við veiðar á uppsjávarfiski. Burð- argeta þeirra sé samtals rúmlega 3.000 tonn sem sé svipað og var á Vík- ingi, Elliða og Óla í Sandgerði. Óli í Sandgerði hefur verið seldur og er gert ráð fyrir að hann fari til Noregs um næstu mánaðamót. Elliði er einn- ig til sölu. „Burðargeta Ingunnar er meiri en hinna skipanna og við vild- um vera með öflugt skip til flottrolls- og nótaveiða á loðnu, síld og kol- munna. Að öllu jöfnu eigum við að geta veitt kvóta okkar í uppsjávar- fiski á tveimur skipum í stað þriggja áður og í því felst mikil hagræðing.“ Fyrsta nýsmíðin síðan 1964 HB fékk nóta- og togskipið Óla í Sandgerði í janúar 1999 og var skipið keypt nýtt frá Noregi, en Ingunn er fyrsta skipið sem fyrirtækið lætur smíða fyrir sig frá grunni síðan nóta- skipið Höfrungur III kom til Akra- ness 1964. Höfrungur var fyrsta fiski- skip í heiminum með hliðarskrúfur og Ingunn er fyrsta fiskiskipið sem smíðað er fyrir Íslendinga í Chile, en tvö önnur eru þar í smíðum og þaðan kom nýja hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson. Að sögn Haralds fékk HB gott skip á hagstæðu verði í Chile. Hann segir að markmið HB hafi verið að end- urnýja flotann í nýjum skipum, sem væru þá söluvara á alþjóðlegum skipamarkaði. Smíðaárið gildi alltaf við sölu, þótt skip séu gerð upp 99% og því hafi komið betur út að selja Óla en Víking. Það er ekki á vísan að róa í uppsjávarfiskveiðum og miklar svipt- ingar í veiðiheimildum. Því geti verið gott að vera með skip sem sé góð söluvara til að draga úr áhættunni við fjárfestinguna. „Þótt afhending Ing- unnar hafi tafist höfum við ekki skað- ast á því. Við erum með skip í hönd- unum sem kostar um 850 milljónir en gangi salan á hinum skipunum upp nemur endurnýjunin á uppsjávarflot- anum, sem hófst með sölunni á Höfr- ungi AK 91 fyrir tveimur árum, um 500 milljónum vegna endurnýjunar á uppsjávarflotanum,“ segir Haraldur. Verðugt nafn Haraldur Böðvarsson hóf útgerð frá Akranesi 1906 og er HB elsta starfandi útgerðarfyrirtæki landsins. Þegar séra Eðvarð Ingólfsson bless- aði nýja skipið og áhöfn þess sagði hann verðugt að það bæri nafn Ing- unnar Sveinsdóttur, eiginkonu Har- alds Böðvarssonar, sem stóð eins og stoð og stytta við hlið eiginmannsins í allri uppbyggingu fyrirtækisins. Skipið ber líka nafn langalangömmu Haralds Sturlaugssonar, Ingunnar Jónsdóttur, eiginkonu Hans Péturs- sonar Hoffmann, en þau bjuggu í Bakkafit við Búðir á Snæfellsnesi á ofanverðri 19. öld. Þau eignuðust 12 börn og komust sjö þeirra upp. Hans dó úr taugaveiki og einn sonur þeirra og stóð Ingunn ein uppi með allan barnahópinn. Ekki hvarflaði að henni að gefast upp og tók hún þegar upp sjóróðra en þegar Pétur Hoffmann, yngsta barnið, var níu ára, varð hann háseti hjá móður sinni. Talið er að Ingunn sé ein fyrsta konan ef ekki sú fyrsta sem reri til fiskjar á Íslandi. Helga María og Ingunn Haraldur segir að fyrirtækið hafi rekið 60 til 70 skip en útgerðin hafi byrjað með sexæringnum Helgu Maríu 1906. Frystiskipið Helga María hafi líka verið síðasta skip út- gerðarinnar á nýliðinni öld og engin önnur skip útgerðarinnar hafi borið kvenmannsnafn, en nú sé komin ný öld og henni fylgi nýtt kvenmanns- nafn. „Í tengslum við tafirnar á Ingunni hef ég gjarnan sagt að Ingunn hafi ekki viljað trufla stöðu nýliðinnar ald- ar heldur viljað koma til landsins á þessari öld,“ segir Haraldur. „Helga María var fyrsta og eina kvenmanns- nafnið í skipastóli fyrirtækisins á öld- inni sem leið og nú tekur Ingunn við.“ Ljósmynd/Snorri Snorrason Ingunn AK 150 er með stærstu og glæsilegustu skipum flotans, 72,90 metrar að lengd og 12,6 metrar á breidd. Burðargetan er um 2.000 tonn af fiski. „Ingunn vildi frekar koma á þessari öld“ Morgunblaðið/RAX Beðið eftir skipinu. Það var mikil eftirvænting á bryggjunni á Akranesi þegar Ingunn var að leggjast að. Sturlaugur Sturlaugsson aðstoðar- framkvæmdastjóri bíður skipsins ásamt tveimur ungum drengjum. Morgunblaðið/RAX Þeir ráða ferðinni. Haraldur Sturlaugsson, framkvæmdastjóri HB, og skipstjórarnir Guðlaugur Jónsson og Marteinn Einarsson, en sá síð- arnefndi sigldi skipinu heim frá Chile. „ÞAÐ eru spennandi tímar fram- undan. Það er að sjálfsögðu mikill áfangi að taka við nýju og glæsi- legu skipi. Nú er loðnan fram- undan, en skipið hefur ekkert verið reynt við veiðar ennþá. Það á samt allt að ganga og við hlökk- um til veiðanna,“ segir Marteinn Einarsson, skipstjóri á Ingunni Ak, en hann sigldi skipinu heim. Skipstjóri á móti Marteini er Guð- laugur Jónsson. „Siglingin tók akkúrat 23 sólar- hringa og gekk mjög vel,“ segir Marteinn. „Þetta er gott sjóskip og síðustu tvö sólarhringana fengum við haugabrælu og 8 til 10 vindstig á móti og það var ekk- ert vandamál. Þrisvar yfir bauginn Það er vissulega léttir að vera kominn með þetta glæsilega skip heim eftir 7.000 sjómílna siglingu, sem var í raun mjög skemmtileg. Það var til dæmis mjög gaman að sigla yfir miðbaug við Ekvador og sjá þegar 0 fór úr suðri yfir í norðrið. Það er ekki oft sem mað- ur siglir yfir miðbaug, þannig að við tókum einn hring suður yfir aftur og því höfum við farið þrisv- ar yfir bauginn. Við lentum því miður í myrkri í Panamaskurðinum og sáum því lítið í kringum okkur. Ferðin í gegnum skurðinn tók átta tíma og við fórum um 6 stiga á leiðinni. Það var líka gaman að sigla um Karabískahafið, en við fórum á milli Kúbu og Haíti. Hitinn var reyndar anzi mikill á leiðinni, sér- staklega við Panama og rakinn var um 70%. Þá hefði maður þeg- ið loftkælingu um borð, en annars er ólíklegt að við þurfum að nota slíkan búnað hér við land.“ Ingunn AK er alls 72,90 metrar að lengd og 12.60 á breidd. Hún ber um 2.000 tonn af fiski í kæli- tönkum. Vélin er 5.800 hestöfl og ganghraði á 70% álagi á heimleið- inni var um 14 mílur. Skipið er búið til veiða á uppsjávarfiski í nót og flottroll. Byrjum á loðnunót „Nú er bara að koma skipinu á veiðar og við gerum ráð fyrir að það gangi á tveimur til þremur dögum. Við byrjum á loðnunót fyrir vestan, en þegar loðnunni lýkur förum við á kolmunnann með flottroll í apríl og svo tekur norsk-íslenzka síldin við. Ég byrjaði með Óla í Sandgerði fyrir tveimur árum, þegar hann var keyptur til landsins ásamt Guðlaugi Jónssyni. Við verðum svo með Ingunni til skiptis, enda er búið að selja Óla, en ekki víst hvenær hann verður afhentur. Nú er bara að standa sig í stykkinu,“ segir Marteinn Einarsson. „Spennandi tímar framundan“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.