Morgunblaðið - 09.02.2001, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 09.02.2001, Blaðsíða 23
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 23 RICHARD Tomlinson, fyrrverandi njósnari bresku leyniþjónustunnar MI6, heldur því fram í bók, sem gefin var út í Rússlandi nýlega, að þekktur ritstjóri í Bretlandi, Dominic Lawson, hafi verið á mála hjá MI6 og Nelson Mandela, fyrrverandi forseti Suður- Afríku, hafi lengi verið í leynilegu sambandi við leyniþjónustuna. Law- son og Mandela hafa báðir vísað þessu á bug sem algjörum þvættingi og sjálfur hefur Tomlinson viður- kennt að hafa spunnið það upp að breska leyniþjónustan væri viðriðin dauða Díönu prinsessu. Rekinn fyrir slæma frammistöðu Tomlinson hóf störf fyrir MI6 árið 1991 og var rekinn fjórum árum síðar fyrir slæma frammistöðu í njósna- ferðum til Bosníu. Hann bar því við að hann hefði þjáðst af þunglyndi á þess- um tíma og verið óreyndur. Hann hélt til Nýja-Sjálands og hugðist snúa aft- ur til Bretlands í því skyni að höfða mál gegn leyniþjónustunni vegna brottvikningarinnar. Hann fór einnig til Ástralíu og reyndi að fá þarlent út- gáfufyrirtæki til að gefa út endur- minningar sínar. Þegar Tomlinson sneri aftur til Bretlands árið 1996 var hann handtekinn og dæmdur í árs fangelsi fyrir að afhenda ástralska út- gáfufyrirtækinu ágrip af endurminn- ingum sínum og brjóta þannig bresk lög um verndun ríkisleyndarmála. Tomlinson var leystur úr haldi árið 1998 og flúði land, fyrst til Evrópu- ríkja og síðan Nýja-Sjálands, Ástralíu og Ameríkuríkja. Hann segir að út- sendarar bresku leyniþjónustunnar hafi brotist inn í hús hans eða ráðist á hann a.m.k. ellefu sinnum í sex lönd- um. Hann dvelur nú á Ítalíu og segir að útsendarar MI6 hafi stolið skjölum og tölvu úr dvalarstað sínum fimm dögum eftir að hann gerði samning um útgáfu endurminninga sinna, „Brotið mikla“, í Rússlandi. Bókin var gefin út á ensku í 10.000 eintökum og ráðgert er að selja helm- ing þeirra í Bretlandi. Breskur dóm- stóll hefur úrskurðað að ekki megi greiða Tomlinson höfundarlaun fyrir bókina þar sem hann hafi undirritað samning við MI6 árið 1997 um að hann afsalaði sér öllum réttindum til höfundarlauna fyrir bækur eða grein- ar um störf sín fyrir leyniþjónustuna. Tomlinson segir að hann hafi verið þvingaður til að undirrita samninginn þegar hann var í fangelsi en MI6 neit- ar því. Samningurinn mun hafa kveð- ið á um að leyniþjónustan greiddi Tomlinson 60.000 pund, andvirði 7,5 milljóna króna, fyrir að skýra ekki frá störfum sínum sem njósnara. Dularfullt útgáfufyrirtæki Áður óþekkt fyrirtæki í Rússlandi, Narodní Variant, gaf bókina út og er það talið tengjast rússnesku leyni- þjónustunni FSB, arftaka KGB. Breskt netfyrirtæki, 192.com, annast sölu bókarinnar á Netinu og kveðst gera það í nafni málfrelsis. Breska ut- anríkisráðuneytið segist ekki ætla að reyna að hindra útgáfuna en vill koma í veg fyrir að Tomlinson hagnist á bókinni. Norodní Variant hefur aldrei gefið út bækur áður, er ekki með neina skrifstofu og finnst hvergi í opinber- um skrám yfir rússnesk fyrirtæki. Útgáfufyrirtækið LCIC í Moskvu hefur tekið við útgáfu bókarinnar og segir að Norodní Variant einbeiti sér nú að „nýju verkefni með öðrum höf- undi“. Tomlinson segist hafa fengið 28.000 pund, andvirði 3,5 milljóna króna, í fyrirframgreiðslu frá Norodní Vari- ant. Rússi, sem kallar sig Sergej Korovín, hefur komið fram fyrir hönd „fyrirtækisins“ og The Daily Tele- graph segir að vestrænir leyniþjón- ustumenn telji sig hafa fengið óyggj- andi sannanir fyrir því að hann sé á mála hjá FSB. Rétt nafn hans sé Kir- ill Vladislavovítsj Tsjastsjín og hann hafi lýst sér sem „sérfræðingi í upp- lýsingatækni“ þegar hann hafi heim- sótt Bretland árið 1997. Vildu ná sér niðri á MI6 MI6 telur að rússneska leyniþjón- ustan hafi ekki aðeins gefið endur- minningar Tomlinsons út heldur einnig bætt við köflum í bókina til að klekkja á bresku leyniþjónustunni, gömlum erkifjanda KGB. Oleg Gordíevskí, fyrrverandi KGB- maður sem flúði til Bretlands eftir að hafa njósnað fyrir MI6 í nokkur ár, tekur undir þetta. Hann segir í grein í The Daily Telegraph að enginn vafi leiki á því að rússneska leyniþjónust- an hafi gefið bókina út og skrifað stór- an hluta hennar. Gordíevskí segir að rússneska leyniþjónustan hljóti t.a.m. að hafa skrifað kafla um Platon Obukhov, rússneskan stjórnarerindreka sem gerðist njósnari fyrir MI6 1995, árið sem Tomlinson var rekinn. Gordí- evskí segir að Tomlinson hafi verið lágt settur í bresku leyniþjónustunni og útilokað sé að hann hafi haft að- gang að svo viðkvæmum upplýsing- um. Hermt er að upplýsingarnar um Obukhov hafi ekki verið í drögum Tomlinsons að endurminningunum sem komust í hendur MI6. Obukhov var handtekinn árið 1996 og rússneska leyniþjónustan yfir- heyrði hann í fjögur og hálft ár. Hann var síðan dæmdur í ellefu ára fang- elsi. Gordíevskí telur að rússneska leyniþjónustan hafi gefið út bók Tomlinsons til að ná sér niðri á MI6, einkum vegna útgáfu svokallaðs Skjalasafns Mítrokhíns í september 1999 sem var álitinn mikill sigur fyrir bresku leyniþjónustuna. Vassilí Mítr- okhín var skjalavörður KGB og flúði til Bretlands árið 1992 eftir að hafa tekið afrit af skjölum leyniþjónust- unnar þar sem öllum mikilvægum að- gerðum hennar frá því um miðjan þriðja áratuginn og þar til Sovétríkin leystust upp var lýst nákvæmlega. „Rússnesku leyniþjónustumennirnir hafa leitað að einhverju, hverju sem er, til að hefna sín á MI6. Þeir fundu það í óútgefinni bók Tomlinsons,“ segir Gordíevskí. Dominic Lawson sagður hafa verið á mála hjá MI6 Tomlinson heldur því m.a. fram í bókinni að Dominic Lawson hafi verið á mála hjá MI6 þegar hann var rit- stjóri The Spectator og fengið dul- nefnið „Smallbrow“. Hann sakar ekki Lawson um að hafa njósnað fyrir leyniþjónustuna en segir að ritstjór- inn hafi aðstoðað hana við að senda njósnara til ýmissa landa undir því yf- irskini að þeir væru blaðamenn á veg- um vikublaðsins. Hann kveðst til að mynda hafa notað kynningarbréf frá Lawson, sem hafi kynnt hann sem blaðamann The Spectator, þegar hann var sendur í njósnaferð til Skopje í Makedóníu. Lawson er nú ritstjóri The Sunday Telegraph og vísar þessum fullyrð- ingum á bug sem „kjaftæði“. Mandela sakaður um tengsl við MI6 Tomlinson heldur því einnig fram að Nelson Mandela hafi verið í leyni- legu sambandi við MI6 frá því hann var ungur lögfræðingur og lítt þekkt- ur félagi í Afríska þjóðarráðinu (ANC). Mandela og eiginkona hans, Winnie, fóru til Frakklands árið 1990, skömmu eftir að hann að hann var leystur úr haldi eftir 27 ára fangels- isvist. Tomlinson segir að þau hafi þá farið í „leynilega“ heimsókn til Bret- lands með þyrlu breskra sérsveita. Þau hafi verið flutt í hús í Kent og átt þar „leynilegar viðræður“ við fulltrúa MI6. Þremur árum eftir heimsóknina á breska leyniþjónustan að hafa fengið upplýsingar um að hægriöfgamenn í Suður-Afríku hefðu lagt á ráðin um að myrða Mandela. MI6 afstýrði bana- tilræðinu, að sögn Tomlinsons. Mandela hefur lýst þessum fullyrð- ingum sem „svívirðilegum upp- spuna“. Tomlinson fullyrðir einnig að MI6 hafi lagt til að Slobodan Milosevic, fyrrverandi Júgóslavíuforseti, yrði ráðinn af dögum og skrifað tveggja síðna skýrslu um hvernig standa ætti að tilræðinu. Játar ósannsögli Að sögn Tomlinsons snerist starf- semi MI6 einnig um peninga. Hann heldur því m.a. fram að háttsettur embættismaður í þýska fjármála- ráðuneytinu hafi verið á mála hjá MI6 og veitt leyniþjónustunni upplýsingar um fyrirhugaðar vaxtabreytingar. Leyniþjónustan hafi einnig lagt mikla áherslu á fá til liðs við sig embætt- ismenn í stofnunum eins og Seðla- banka Evrópu og Efnahags- og fram- farastofnuninni (OECD). Tomlinson heldur því fram í bók- inni að breska leyniþjónustan hafi verið viðriðin dauða Díönu prinsessu, sem dó í bílslysi í París 1997, en hann viðurkenndi eftir útgáfu bókarinnar að sú fullyrðing væri uppspuni. Í bókinni eru allnákvæmar lýsingar á starfsháttum MI6 en sérfræðingar í málefnum leyniþjónustunnar segja Tomlinson hneigjast til að gera of mikið úr eigin afrekum og upphefja sjálfan sig. Andrew Roberts, sem kynntist Tomlinson þegar þeir voru við nám í Cambridge, hefur eftir vinum hans að hann hafi verið haldinn „007-geð- flækju“ og litið á sig sem nokkurs konar James Bond. Hann hafi alltaf þráð frægð og valið rangt starf því það sé aðal góðs njósnara að vekja ekki á sér athygli. „Richard þurfti að skrifa bók, ekki aðeins vegna peninganna, heldur einnig vegna gríðarlegrar löngunar í frægð,“ skrifar Roberts í The Sunday Telegraph. Bók fyrrverandi njósnara MI6 gefin út í Rússlandi Leyniþjónusta Rússa bendluð við útgáfuna Reuters Rússneskur útgefandi kynnir bók Richards Tomlinsons á blaðamannafundi í Moskvu. Rússneska leyniþjónustan hefur ekki að- eins verið sökuð um að standa á bak við út- gáfu endurminninga Richards Tomlinsons, fyrrverandi njósnara bresku leyniþjónust- unnar MI6, heldur er hún einnig sögð hafa bætt nokkrum köflum við bókina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.