Morgunblaðið - 09.02.2001, Síða 16

Morgunblaðið - 09.02.2001, Síða 16
Edda Rögnvaldsdóttir, ritari hjá Veiðistjóraembættinu, dregur nöfn vinningshafa úr hópi þeirra veiðimanna sem skiluðu veiðikortum sínum fyrir tilskilinn tíma, þann 1. febrúar sl. ALLS skiluðu um 7.000 veiðimenn inn veiðiskýrslum fyrir 1. febrúar síðastliðinn en þá rann út frestur til að skila skýrslunum. Af þessum hópi voru um 4.000 manns, eða um 60%, sem skiluðu skýrslunum inn á Net- inu og sagði Bjarni Pálsson, verkefn- isstjóri veiðikorta, að það væri mjög gott. „Við erum gríðarlega ánægð með þessi skil á Netinu,“ sagði Bjarni en umhverfisráðherra, Siv Friðleifsdóttir, opnaði fyrir þann möguleika að senda skýrslurnar á rafrænan hátt í janúar síðastliðnum. Handhafar veiðikorta eru um 11 þúsund talsins hér á landi, þannig að enn vantar um 4.000 skýrslur og vilja starfsmenn Veiðistjóraembættisins hvetja menn til að skila skýrslunum inn en slíkt er skylda. „Það er um að gera fyrir þá sem eiga eftir að skila að drífa í því sem fyrst. Ef menn eru að draga þetta lenda menn oft í því að gleyma sér þar til á að fara á rjúpnaveiðar en það skapar mikið álag hér og óþægindi,“ sagði Bjarni. Starfsmönnum er einnig mikið í mun að fá skýrslurnar í hús sem fyrst svo hægt verði að fara að vinna úr þeim. 20 veiðimenn hlutu vinning Til að hvetja menn til að skila inn skýrslunum áður en frestur rennur út hefur embætti veiðistjóra haft þann háttinn á að allir sem hafa skil- að sínum veiðiskýrslum á réttum tíma fara í pott sem síðan er dregið úr og hljóta 20 manns vinning. Nú hefur verið dregið og hlaut Ólafur Örn Pétursson, Seyðisfirði, fyrsta vinning, GPS-staðsetningartæki. Óskar Guðmundsson, Keflavík, hlaut bókina Skotveiði í náttúru Íslands eftir Ólaf E. Friðriksson og þá hlutu fimm menn bókina Íslenskur fugla- vísir eftir Jón Óla Hilmarsson en þeir eru Víðir Þormar Guðmunds- son, Garðabæ, Guðlaugur Svan H. Trampe, Reykjavík, Guðmundur Pálsson, Dalvík, Anton Júlíusson, Hvammstanga, og Pétur Valbergs- son, Borgarnesi. Loks hlutu 12 manns áttavita. Um 7000 manns hafa skilað veiðiskýrslum til Veiðistjóraembættisins Um 60% veiðimanna skil- uðu skýrslunni á Netinu Morgunblaðið/Kristján AKUREYRI 16 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ VERKMENNTASKÓLINN Á AKUREYRI Upphaf vorannar Skólastarf á vorönn hefst mánudaginn 12. febrúar. Stundatöflur verða afhentar fyrir hádegi og kennsla hefst síðan samkvæmt stundaskrá kl. 13:15. Nemendur eiga að sækja töflur sínar sem hér segir: 9:00-10:00 Tæknisvið og hússtjórnarsvið 10:00-11:00 Uppeldissvið og viðskiptasvið 11:00-12:00 Almennt nám og heilbrigðissvið Skólameistari AKUREYRARBÆR LEIKSKÓLINN IÐAVÖLLUR Leikskólinn Iðavöllur óskar að ráða í eftirtaldar stöður. Leikskólakennarar: 2 stöður 100 % leikskólakennara með deildarstjórn. Almennir leikskólakennarar. Ef ekki tekst að manna stöðurnar leikskólakennurum verður ráðið annað starfsfólk í þær. Eldhús: 1 staða matráður 100% staða. 1 staða aðstoð í eldhús 100% staða, (möguleiki að ráða í tvær 50 % stöður). Ræsting: 2 stöður u.þ.b. 57% staða hvor. Iðavöllur kemur til með að flytja í nýtt húsnæði um mánaðamótin mars/apríl. Stækkar þá leikskólinn í 4 deildir. Ráðið verður í áðurnefndar stöður frá 20. mars nk. og fram eftir vori. Upplýsingar veitir Kristlaug Svavarsdóttir, leikskólastjóri, sími 462 3849. Laun samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra leikskóla- kennara við Launanefnd sveitarfélaga, og kjarasamningi Ein- ingar við Launanefnd sveitarfélaga. Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í störfin. Upplýsingar um kaup og kjör eru veittar á starfsmannadeild í síma 460 1000. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingaanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9. Einnig fást upplýsingar hjá skóladeild Akureyrarbæjar Glerárgötu 26, 1. hæð. Umsóknareyðublöðum á að skila á skóladeild eða í upplýsingaanddyri. Umsóknarfrestur er til 22. febrúar 2001. Frá huga til handar SÝNINGIN „Frá huga til handar – saga prentlistar og bókaútgáfu á Ís- landi í máli og myndum með sér- stakri áherslu á útgáfu Bibliunnar“ verður opnuð í lestrarsal Amtsbóka- safnsins á Akureyri á morgun, laug- ardaginn 10. febrúar, kl. 15. Sýningin er unnin í samvinnu Félags bókagerðarmanna, Hins ís- lenska biblíufélags, Samtaka iðnað- arins, Landsbókasafns Íslands–Há- skólabókasafns og Amtsbókasafns- ins á Akureyri og Minjasafnsins á Akureyri. Við opnun sýningarinnar flytja ávörp Emilía Sigmarsdóttir, Lands- bókasafni Íslands – Háskólabóka- safni, Gísli Jónsson, fyrrverandi menntaskólakennari, og Jón Páls- son, framkvæmdastjóri Hins ís- lenska biblíufélags. Amtsbókasafnið á Akureyri Ljóðakvöld á Sigurhæðum FIMMTA ljóðakvöld vetrarins verð- ur í Húsi skáldsins á Sigurhæðum í kvöld, föstudagskvöldið 9. febrúar, og hefst það kl. 20.30. Húsið er opið frá kl. 20 til 22. Erlingur Sigurðarson forstöðu- maður Sigurhæða mun þar takast á við ljóð skálda um óttann og hvernig má vinna bug á honum, en meðal þeirra eru Matthías Jochumsson, Hannes Hafstein, Stefán frá Hvíta- dal og Guðmundur Böðvarsson. RÚMLEGA tvítugur karlmaður hef- ur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur til að greiða 180 þús- und króna sekt í ríkissjóð vegna fíkniefnabrots. Maðurinn var á skil- orði er hann framdi brot sitt og var sá dómur látinn haldast. Manninum var gefið að sök að hafa skömmu fyrir jól 1999 selt tveimur ungum mönnum 10 grömm af kóka- íni á 90 þúsund krónur en afhending efnisins fór fram við heimili annars þeirra. Maðurinn kvaðst fyrir dómi vera saklaus og krafðist sýknu í mál- inu. Annar mannanna bar fyrir dómi að hann hefði keypt fíkniefnin. Seljandi efnanna játaði við skýrslutöku hjá lögreglu að hafa selt umrædd fíkniefni en dró játningu sína til baka, neitaði sakargiftum og andmælti frásögn kaupandans. Vís- aði hann til þess að við skýrslugjöf hjá lögreglu hefði hann verið and- lega miður sín eftir 10 daga gæslu- varðhald og því ranglega játað á sig sakir, aðallega til að losna úr vistinni. Þá kvaðst hann hafi verið beittur hótunum af hálfu þeirra sem með rannsókn málsins fóru og að hafa ekki notið aðstoðar verjanda við skýrslugjöfina. Í niðurstöðu dómsins kemur fram að maðurinn hafi játað sakargiftir skýlaust við skýrslutöku hjá lög- reglu og sé það í samræmi við skýrslur sem teknar voru af kaup- anda efnanna auk vitnis. Með hlið- sjón af frásögn lögreglumanna og at- vikum máls er það álit dómsins að skýringar mannsins fyrir breyttum framburði fyrir dómi teljist ótrú- verðugar. Ekki þótti því varhuga- vert að telja sannað að hann hefði gerst sekur um þá háttsemi sem hann var ákærður fyrir. Maðurinn hefur áður hlotið sekt- arrefsingar, fyrir umferðarlagabrot og vegna brota á ávana- og fíkniefna- löggjöf. Sekt vegna kókaínsölu Héraðsdómur Norðurlands eystra ♦ ♦ ♦ HALLGRÍMUR Tómasson á Ak- ureyri var einn af heppnum vinn- ingshöfum í skafmiðaleik sem Rydenskaffi hf. í samvinnu við Víf- ilfell og Skífuna stóð fyrir á síðustu þremur mánuðum. Neytendur sem keyptu sér poka af Maarud kartöfluflögum á tíma- bilinu fengu afhentan skafmiða þegar þeir greiddu fyrir vöruna. Gífurleg þátttaka var í leiknum enda margt góðra vinninga í boði. Hallgrímur keypti sér Maarud í Nettó á Akureyri og hann fékk í vinning á sinn miða snjóbretti, skó og annan útbúnað sem tilheyrir. Frá afhendingu verðlaunanna í Nettó á Akureyri. F.v. Inga Jónasdóttir, sölumaður Maarud á Akureyri, vinningshafinn, Hallgrímur Tómasson, Elfar Dúi Kristjánsson og Sigmundur Sigurðsson verslunarstjóri. Hallgrímur vann snjóbretti og búnað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.