Morgunblaðið - 09.02.2001, Síða 44
MINNINGAR
44 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Guðbjörg Þor-láksdóttir fædd-
ist í Reykjavík 30.
september 1958.
Hún lést á deild
21A á Landspítalan-
um við Hringbraut
aðfaranótt 29. janúar
síðastliðinn.
Foreldrar hennar
eru Þorlákur Ás-
geirsson húsasmíða-
meistari, f. 4.12. 1935
og Ásta Guðbjörns-
dóttir, f. 31.7. 1937.
Sustkini Guðbjarg-
ar eru Kristín Dagný
Þorláksdóttir, f. 16.6. 1957, sam-
býlismaður hennar er Gauti
Gunnarsson. Börn Dagnýjar eru
Ása Kolbrún, Bjarni Már, Pétur
Óskar og Birgir Ólafur.
Ásgeir Þorláksson vélvirki, f.
2.12. 1959, eiginkona hans er Eva
Hildur Kristjánsdóttir og barn
hennar Ragnar Páll Rafnarsson.
Vilhjálmur Þorláksson bakari,
f. 20.4. 1962, eiginkona hans er
Sigrún Guðmundsdóttir. Börn
þeirra eru Davíð Þór og Hildur
María.
Guðbjörg átti Guðnýju Helga-
dóttur, f. 28.5. 1977 með Helga
Magnússyni, f. 18.8. 1950.
Eftirlifandi eiginmaður Guð-
bjargar er Þorgeir Jón Pétursson,
mótasmiður hjá
Kassagerð Reykja-
víkur, fæddur á Ísa-
firði 29.12. 1949.
Þau hófu sambúð
1986 og giftu sig
þann 17. júní 1997.
Barn Guðbjargar og
Þorgeirs er Sindri
Þór Þorgeirsson, f.
21.12. 1987.
Foreldrar Þor-
geirs eru Óskar Pét-
ur Einarsson, f. 20.3.
1920 d. 14.4. 1996 og
Guðbjörg Rósa Jóns-
dóttir, f. 27.5. 1921.
Þorgeir átti fyrir Ragnheiði
Örnu Þorgeirsdóttur, f. 11.7.
1970, eiginmaður hennar er Að-
alsteinn Símonarson, f. 20.12.
1970. Börn þeirra eru Símon Val-
geir, Atli og Þórir.
Guðbjörg útskrifaðist frá
Sjúkraliðaskóla Íslands 15. októ-
ber 1982. Hún starfaði víða sem
sjúkraliði meðal annars á Reykja-
lundi, Landspítalanum v/Hring-
braut, Sjúkrahúsinu í Vestmanna-
eyjum og á Ísafirði og síðustu ár á
hjúkrunarheimilinu Skjóli og
Laugaskjóli við umönnun alz-
heimersjúklinga.
Útför Guðbjargar fer fram frá
Laugarneskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka,
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Í dag kveðjum við með söknuði
Guðbjörgu systur okkar í hinsta sinn.
Á þessari sorgarstund koma marg-
ar hugsanir í hugann.
Af hverju er hún á besta aldri tekin
frá fjölskyldu sinni og börnum? Hver
er tilgangurinn?
Guðbjörg greindist með krabba-
mein fyrir um þrem árum og hefur
barist af miklum krafti við þann ill-
víga sjúkdóm sem nú hefur haft betur
í þeirri baráttu.
Guðbjörg var mjög meðvituð um
afleiðingar sjúkdómsins og gerði allt
sem hún gat til að undirbúa sína nán-
ustu. Hún talaði opinskátt um hann
og upplýsti okkur um stöðuna hverju
sinni. Við fengum að vita í lok ársins
að það gæti orðið stutt eftir. Þó svo að
þessar staðreyndir blöstu við trúðum
við því ekki að það yrði svo stutt sem
raun varð á, við vonuðumst eftir að
hún gæti verið meðal okkar lengur,
allavega fram yfir fermingu hans
Sindra nú í vor, enda var hún ekkert
að gefast upp.
Elsku Guðbjörg, nú ert þú farin og
eftir standa góðar minningar sem
ekki verða frá okkur teknar. Við mun-
um eftir þeim góðu samverustundum
sem við áttum saman, heima og í
ferðalögum innanlands og utan, úti-
legum í Landmannalaugum og fleiri
fögrum stöðum þar sem við skemmt-
um okkur konunglega saman.
Við munum líka þegar við unnum
saman í byggingarvinnu á Klaustri og
þú vildir vera með í öllu og ekki láta
hlífa þér þótt þú værir eina stelpan í
hópi stráka. Þetta hugarfar hefur
fylgt þér síðan og þannig hefurðu með
dugnaði stýrt heimili þínu fram á síð-
ustu stundu. Þessi dugnaður gerði
það að verkum að hvort sem þú varst í
leik eða starfi varstu óspör á að láta í
té krafta þína til að hjálpa öðrum og
einnig varstu virk í félagsstörfum. Al-
veg fram á síðustu stundu vildirðu
fylgjast með því sem var að gerast í
kringum þig, vita hvað allir væru að
gera og hvernig aðrir hefðu það. Þessi
umhyggja fyrir öðrum og það sem þú
gafst af þér gaf okkur svo mikið.
Einnig varstu foreldrum okkar mikil
stoð og stytta.
Það var strax á unglingsárum sem
þú og Dagný fóruð að safna íslenskum
söngtextum. Þegar ný lög heyrðust
voruð þið fljótar að læra þau og sung-
uð með þegar færi gafst. Þessi söng-
elska hefur síðan fylgt þér og er það
víst að þegar við eigum eftir að koma
saman og syngja í góðra vina hópi
munum við minnast þín. Þegar þú
fórst að vinna á Skjóli og síðar á
Laugaskjóli söngst þú fyrir vistmenn-
ina þér og þeim til skemmtunar. Eftir
að þú veiktist og varst frá vinnu heim-
sóttir þú vistmenn til að eiga góða
stund með þeim og syngja saman.
Þetta gaf þér og vistmönnum mikið.
Elsku Guðbjörg, við systkinin og
fjölskyldur okkar viljum þakka þér
þær góðu stundir sem við áttum með
þér. Guð blessi þig og minningu þína.
Elsku Þorgeir, Guðný og Sindri,
megi guð gefa ykkur styrk í ykkar
miklu sorg og leiða ykkur áfram um
lífsins veg.
Ásgeir, Vilhjálmur og Dagný.
Mig langar í fáeinum orðum að
kveðja kæra mágkonu mína, sem
þrátt fyrir erfið veikindi bar sig svo
vel og alltaf var svo hress og glaðlynd.
Hetjulegri baráttu hennar er nú lokið.
Ég minnist hlýju hennar og hjálpsemi
á erfiðum og góðum stundum, og
hennar fallegu söngraddar, sem naut
sín svo vel í góðra vina hópi. Vil ég
þakka henni samfylgdina.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta,
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Elsku Guðbjörg,
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Sigrún.
Það er sárt að hugsa til þess að
Guðbjörg frænka skuli vera dáin.
Hún var búin að berjast hetjulega við
þann sjúkdóm sem dró hana til dauða
og hún ætlaði sannarlega ekki að gef-
ast upp. Það er lýsandi fyrir kjark
hennar og viljastyrk að þegar ég hitti
hana síðast heima hjá henni á milli
jóla og nýárs var hún að tala um að
láta minnka við sig morfínskammtinn
sem hún hafði orðið að fá við verkjum
síðustu vikurnar. Uppgjöf var fjarri
henni og þótt hún vissi að til beggja
vona gæti brugðið ætlaði hún samt
sem áður að lifa fram yfir fermingu
Sindra sonar síns í apríl. Henni varð
því miður ekki að ósk sinni og and-
aðist aðfaranótt 29. janúar sl.
Ég man fyrst eftir Guðbjörgu sem
lítilli hnellinni hnátu með ljósa þykka
hárið sitt sem einkenndi hana alla tíð.
Hún bjó þá ásamt fjölskyldu sinni á
Karlagötunni hjá afa og þangað kom-
um við oft í heimsókn úr Keflavík.
Hún var skapgóð og söngelsk og mikil
afastelpa. Þótt hún eltist og fjölskyld-
an flytti frá afa, m.a. um tíma út á
land, hætti hún síður en svo að vera
afastelpa. Samband þeirra einkennd-
ist af sérstakri vináttu sem hélst alveg
þar til afi var allur og Guðbjörg löngu
orðin fulltíða kona með sína fjöl-
skyldu.
Guðbjörg eignaðist Guðnýju dóttur
sína átján ára gömul og það var stolt
ung móðir sem sýndi mér frumburð-
inn sinn í maí 1977. Guðbjörg var
sjálfstæð að eðlisfari og þó að hún
ætti vísan stað í foreldrahúsum, ein
með lítið barn, ákvað hún að stofna
sitt eigið heimili með Guðnýju.
Lengst af bjuggu þær mæðgur í
Torfufellinu og þar leið þeim vel. Guð-
björg fór í sjúkraliðaskólann á þess-
um árum og það varð síðar hennar að-
alstarf að sinna sjúkum. Síðustu árin
vann hún á Laugaskjóli með alzheim-
ersjúklingum sem sannarlega kunnu
að meta umönnun hennar.
Guðbjörg varð þeirrar gæfu að-
njótandi að kynnast eftirlifandi eig-
inmanni sínum Þorgeiri Péturssyni
frá Ísafirði. Þau hófu sambúð fyrir
u.þ.b. sextán árum og í desember
1987 fæddist svo Sindri sonur þeirra,
augasteinn foreldranna og stóru syst-
ur.
Við vorum jafnöldrur, vinkonur og
frænkur og þótt stundum liði nokkur
tími milli þess sem við hittumst viss-
um við alltaf hvor af annarri og fylgd-
umst með því sem hin var að gera. Ef
eitthvað bjátaði á studdum við hvor
aðra, það kom einhvern veginn af
sjálfu sér, við þurftum ekki að biðja
hvor aðra um hjálp. Þetta er alla vega
sú upplifun sem ég hef af sambandi
okkar Guðbjargar, hún studdi mig á
erfiðum tímum og vonandi hef ég get-
að gefið henni eitthvað á hennar erf-
iðu stundum.
Það er undarlegt til þess að hugsa
að eiga ekki eftir að hitta Guðbjörgu
aftur, hlusta á hana gleyma sér í frá-
sögnum af einhverjum skemmtileg-
um atburðum eða hitta hana á fjöl-
skyldumótum þegar systurnar,
mæður okkar, hittast með fjölskyld-
urnar. Söngur var Guðbjörgu alltaf
hugleikinn og hún hafði góða söng-
rödd. Hún var því sjálfskipaður for-
söngvari á mannamótum og kunni
auk þess ógrynni af söngtextum. Það
er svo sannarlega skarð fyrir skildi
þegar Guðbjörgu vantar í hópinn en
við erum ríkari eftir en áður að hafa
kynnst manneskju eins og henni.
Elsku Þorgeir, Guðný og Sindri,
Ása, Lalli og systkini, Guð veri með
ykkur í sorg ykkar. Það er erfitt að
sætta sig við það þegar ung mann-
eskja sem hafði svo mikið að lifa fyrir
skuli vera tekin burt svona allt of
snemma. Orð Spámannsins um dauð-
ann eru samt falleg og í þeim felst
ákveðin líkn: „Og hvað er að hætta að
draga andann annað en að frelsa hann
frá friðlausum öldum lífsins, svo að
hann geti risið upp í mætti sínum og
ófjötraður leitað á fund guðs síns?“
(Kahlil Gibran.)
Erla Þorbjörnsdóttir.
Okkur langar að minnast elsku
frænku okkar, hennar Guðbjargar,
sem lést 29. janúar sl. eftir hetjulega
baráttu við þann illvíga sjúkdóm sem
við svo mörg þekkjum.
Það eru margar minningar sem
koma upp í huga okkar við þessi
ótímabæru tíðindi.
Við munum hana Guðbjörgu með
ljósa sjálfliðaða hárið í kringum bros-
andi andlitið.
GUÐBJÖRG
ÞORLÁKSDÓTTIR
Erfisdrykkjur
50-300 manna
Glæsilegir salir
Bræðraminni ehf., Kíwanishúsinu,
Engjateigi 11, sími 588 4460.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður í samráði við aðstandendur
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Kistur
Krossar
Duftker
Gestabók
Legsteinar
Sálmaskrá
Blóm
Fáni
Erfidrykkja
Tilk. í fjölmiðla
Prestur
Kirkja
Kistulagning
Tónlistarfólk
Val á sálmum
Legstaður
Flutn. á kistu milli landa
Sjáum einnig um
útfararþjónustu á
allri landsbyggðinni.
Áratuga reynsla.
!
!"
!"
! !"
# !"
$ !
! !"
% ! & !
' (
)
"
&*+',-.',/*--'
$ 01#
2 34)
/ 5
#
$#
% #
&'
&(''
)
*)+ &','
0
"
-
"
'$'$67&*,/*--'
.! 08
!"9 :9
#
." # -
/
&,,'
$1 $1
$1; $1 )
& $1# )
$ $1
$ )*9 )
0 0
"
"
$76 7/,'$727$<=-7,/*--'
) !# + :1
9!"
41 !# :.:1 )
#
01
# -
&(
&,,'
$1# )
+ ! > ;)
.
/ , )
0 0##0