Morgunblaðið - 09.02.2001, Síða 51
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 51
JT VEITINGAR á Hótel Loftleiðum
söfnuðu í samstarfi við Duni um-
boðið og styrktarfélagið Neistann
305 þúsund krónum fyrir hjartveik
börn. Söfnunin fór fram meðal veit-
ingagesta í jólahlaðborði Idu Dav-
idsen jólin 2000.
Sami háttur var hafður á við
söfnunina og árin áður. Fyrir hvert
kerti sem gestir keyptu á 100 krón-
ur og settu á góðgerðartréð, sem
Sveinn Markússon, listamaður í
Gallerí Járn, smíðaði og gaf af
þessu tilefni, lögðu JT veitingar til
100 krónur. Söfnunarféð rennur
óskipt til Neistans, styrktarfélags
hjartveikra barna. Á myndinni eru
María Klara Jónsdóttir sem afhend-
ir Val Stefánssyni og Guðnýju Sig-
urðardóttur styrkinn.
Gjöf til Neistans
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
FRÆÐSLUFUNDUR verður laug-
ardaginn 10. febrúar á vegum for-
eldra- og aðstandendahóps sem
starfar á vettvangi Samtakanna ’78.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði
félagsins, Laugavegi 3, og hefst kl.
16. Yfirskrift fundarins er: Fordóm-
ar og mismunun.
Guðrún Pétursdóttir félagsfræð-
ingur, mun fjalla um þetta efni. Guð-
rún er starfsmaður í Miðstöð nýbúa
og hefur haldið fjölda fyrirlestra og
námskeiða um fordóma og mismun-
un og hér beinir hún sjónum að mál-
efnum samkynhneigðra. Á eftir er-
indinu verða umræður. Fundurinn
er öllum opinn.
Á vettvangi foreldra- og aðstand-
endahópsins starfa foreldrar, systk-
ini, börn, vinir og frændfólk samkyn-
hneigðra. Hópurinn hittist á
miðvikudagskvöldum í húsnæði
Samtakanna 7́8 og eru fulltrúar hans
eru til staðar frá kl. 20 ef einhver
hefur þörf fyrir spjall. Fyllsta trún-
aðar gætt, segir í fréttatilkynningu.
Fræðslufundur
um fordóma
ANNAR fundur um lýðræðið í
fundaröð Samfylkingarinnar verður
haldinn laugardaginn 10. febrúar kl.
11–14 í Norræna húsinu. Yfirskrift
fundarins er „Lýðræði – hugsjón og
veruleiki“.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, þing-
kona Samfylkingarinnar, flytur
ávarp og að því loknu verða flutt er-
indi. Hrund Gunnsteinsdóttir þróun-
arfræðingur fjallar um skuldavanda
fátækustu ríkja heims og tilraunir til
lausnar á honum. Eiríkur Bergmann
Einarsson stjórnmálafræðingur
fjallar um alþjóðlega samvinnu og
mikilvægi hennar í lýðræðisþróun-
inni. Natasa B. Friðgeirsson blaða-
maður fjallar um uppbyggingu lýð-
ræðislegra stjórnarhátta í fyrr-
verandi Júgóslavíu og áhrif
stríðsátaka á lýðræðisþróun. Loks
fjallar Sigurður Líndal lagaprófess-
or um valdmörk dómstóla og skörun
dómsvalds og löggjafarvalds.
Fundarstjóri og stjórnandi um-
ræðna er Björgvin G. Sigurðsson.
Fundur
um lýðræði
HÁTT á annað hundrað manns hafa
skráð sig á kvöldnámskeið um Há-
lendi Íslands hjá Endurmenntunar-
stofnun HÍ. Umsjónarmaður og fyr-
irlesari er Guðmundur Páll Ólafsson,
höfundur bókarinnar Hálendið í nátt-
úru Íslands og handhafi íslensku bók-
menntaverðlaunanna.
Námskeiðið hefst 19. febrúar og
stendur yfir fjögur kvöld. Fjallað
verður í máli og myndum um stað-
hætti og náttúru á miðhálendinu, um
fornar þjóðleiðir, ferðalög, undirbún-
ing þeirra og tilgang og um fræðilega
ferðamennsku. Þá verður rætt um
náttúruvernd og gildi hálendisins fyr-
ir komandi kynslóðir.
Námskeiðið er öllum opið og er það
liður í námskeiðaröðinni Ísland fyrir
íslenska ferðamenn sem hefur notið
mikilla vinsælda undanfarin ár. Enn
er hægt að skrá sig á námskeiðið.
Námskeið um
hálendi Íslands
SÍMINN hefur nú í samvinnu við
Kast ehf. verið að þróa nýja þjón-
ustu sem gerir viðskiptavinum
kleift að skrá sig fyrir auglýsing-
um og fá þær sendar í GSM sím-
ann sinn sem SMS-skilaboð.
Viðskiptavinurinn skráir sig á
www.vit.is og hefur hann mögu-
leika á að velja um auglýsingar úr
ýmsum flokkum, eins og veitingar,
skemmtanir, tölvur, íþróttir, ferða-
lög ofl. Fyrir hverja auglýsingu
sem send er í símann fær við-
skiptavinurinn fjórar krónur lagð-
ar inn á viðskiptareikninginn sinn
einu sinni í mánuði. Hægt er að
skrá sig fyrir allt að fjórum aug-
lýsingum á dag og þannig hefur
hver viðskiptavinur möguleika á að
fá allt að 480 kr. færðar sem inn-
eign inn á símreikninginn sinn í
hverjum mánuði. Þóknun við-
skiptavinar í Frelsi kemur á móti
kostnaði sem myndast vegna SMS
og VIT notkunar. Fyrsta þriðjudag
hvers mánaðar færist inneign á
frelsiskort þeirra viðskiptavina
sem enn eiga inni þóknun.
Með þessu móti er mögulegt að
senda allt að 50-SMS skeyti eða
tala í allt að 40 mínútur ókeypis í
hverjum mánuði. Skilaboðin birt-
ast strax á skjánum, líkt og tal-
hólfsskilaboð en þau vistast ekki
sjálfkrafa í símanum líkt og önnur
SMS skilaboð. Einungis er hægt
að hafa ein slík skilaboð á skjánum
í einu.
Viðskiptavinir gátu byrjað að
skrá sig fyrir SMS auglýsingum á
vit.is og siminn.is á fimmtudag en
útsending auglýsinga hefst innan
tveggja vikna.
Nýjungar
á sviði
SMS-þjónustu