Morgunblaðið - 04.03.2001, Síða 4

Morgunblaðið - 04.03.2001, Síða 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 4. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN25/2–3/3  TUGA MILLJÓNA króna tjón varð af völdum elds, reyks og vatns í versl- unarmiðstöðinni Kringl- unni á fimmtudaginn. Upp- tök eldsins voru í eldhúsi veitingastaðarins Hard Rock Café en þaðan komst eldur í loftræstistokk og síðan í þak bygging- arinnar.  BANKARÁÐ Búnaðar- banka Íslands hf. sam- þykkti á fundi sínum á fimmtudag að ráða Árna Tómasson, löggiltan end- urskoðanda, sem banka- stjóra frá 10. mars næst- komandi. Sólon Sigurðsson verður bankastjóri ásamt Árna, en þeir Stefán Páls- son aðalbankastjóri og Jón Adólf Guðjónsson banka- stjóri láta af störfum.  TVEIR flugvirkjar sem starfa hjá Flugleiðum voru handteknir á þriðjudaginn grunaðir um aðild að smygli á hassi til landsins. Efnið fannst í vínflöskum milli þilja aftan við flug- stjórnarklefa vöruflutn- ingavélar.  EIGENDUR Svínabúsins Brautarholti hafa eignast tæplega 30% hlut í Slát- urfélagi Suðurlands.  RÖSKVA sigraði naum- lega ellefta árið í röð í Há- skólakosningunum á mið- vikudaginn. Röskva hlaut 49,8% atkvæða en Vaka 47,4%.  REYKJAVÍKURBORG hefur keypt land í suð- urhlíðum Úlfarsfells af Mosfellsbæ fyrir 400 millj- ónir króna. Til stendur að skipuleggja um 3.000 íbúða byggð á svæðinu. Flugleiðir reknar með 939 milljóna tapi TAP Flugleiða og dótturfélaga nam 939 milljónum króna á síðasta ári en árið 1999 nam hagnaður samstæðunn- ar 1.515 milljónum króna. Tveir þættir eru taldir skipta mestu hvað varðar versnandi afkomu félagsins. Annars vegar versnandi rekstrarafkomu en hins vegar að á fyrra ári varð liðlega tveggja milljarða króna hagnaður af eignasölu en var 131 milljón króna árið 2000. Rekstrartekjur Flugleiða námu 35,1 milljarði króna árið 2000 saman- borið við 30,4 milljarða árið á undan. Rekstrargjöldin jukust um rúma 6 milljarða á milli ára. Flateyringar fá 158 milljónir DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra og Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra undirrituðu á mánudaginn samning um lokafrágang þeirra eftirmála snjó- flóðsins á Flateyri, sem snúa að rík- isvaldinu og Ofanflóðasjóði. Sam- kvæmt samningnum útdeilir ríkið 50 milljónum króna og Ofanflóðasjóður sömu upphæð. Þá var einnig tekin ákvörðun um að eftirstöðvar söfnunar- innar „Samhugur í verki,“ um 58 millj- óna króna, myndu fara í ýmis verkefni á Flateyri. Alls eru þetta því 158 millj- ónir króna sem renna nú til Flateyr- inga vegna snjóflóðsins fyrir rúmum fimm árum, sem tók 20 mannslíf. 7 ára fangelsi fyrir e-töflusmygl HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef- ur dæmt þá Gareth John Ellis og Víði Þorgeirsson í sjö ára fangelsi fyrir að- ild sína að innflutningi á rúmlega 5.000 e-töflum í júlí í fyrra. Tollverðir á Keflavíkurflugvelli fundu fíkniefnin í farangri Víðis þegar hann kom til landsins úr helgarferð til London. INNLENT Gin- og klaufaveikin um allt Bretland GIN- og klaufaveikin hefur nú borist um allt Bretland og hefur greinst á um 40 býlum allt frá Englandi í suðri til Skotlands og Norður-Írlands í norðri. Hefur verið gripið til mikilla ráðstaf- ana til að reyna að hefta útbreiðsluna og má segja, að öll landsbyggðin sé í eins konar sóttkví. Hefur fólk verið beðið að vera þar ekki á ferð að nauð- synjalausu, íþróttaleikjum hefur verið aflýst og flutningar á búfé takmark- aðir. Á Írlandi gætir fjölmennt lög- reglulið landamæranna við N-Írland og á meginlandinu hefur bresku sauðfé þar verið slátrað. Allur útflutn- ingur á landbúnaðarafurðum frá Bret- landi er bannaður og hjólbarðar á bíl- um og skófatnaður þeirra, sem frá Bretlandi koma, er sótthreinsaður. Veikin hefur nú einnig greinst í Tyrk- landi en ekki er vitað hvort það tengist á nokkurn hátt faraldrinum á Bret- landi. Mikið tjón í Seattle vegna jarðskjálfta MJÖG öflugur jarðskjálfti, 6,8 stig á Richter, reið yfir norðvesturhluta Bandaríkjanna síðastliðinn miðviku- dag og var hann einna harðastur í Seattle og nágrenni. Er eignatjónið talið nema hundruðum milljarða ís- lenskra króna en það þykir ganga kraftaverki næst, að ekki skyldi verða neinn mannskaði að ráði. Er aðeins eitt dauðsfall rakið til skjálftans og var þar um að ræða konu sem fékk hjarta- áfall. Átti skjálftinn upptök sín mjög djúpt í jörðu, á 50 km dýpi, og er það talið helsta ástæða þess, að tjónið varð ekki meira. Neyðarástandi var lýst yf- ir á svæðinu og George W. Bush Bandaríkjaforseti lofaði að veita þá að- stoð sem hann gæti. Þetta var mesti jarðskjálfti í Washington-ríki í 52 ár eða síðan 1949 en þá létu átta manns lífið.  FLEST bendir til, að samstarf færeysku stjórn- arflokkanna sé úti en An- finn Kallsberg lögmaður og leiðtogi Þjóðarflokks- ins lagði til í síðustu viku, að fyrirhugaðri þjóð- aratkvæðagreiðslu 26. maí nk. um sjálfstæði yrði aflýst. Vildi hann ekki hætta á, að Færeyingar höfnuðu sjálfstæðinu eins og skoðanakannanir bentu til, að þeir myndu gera. Högni Hoydal í Þjóðveldisflokknum og Helena Dam í Sjálfstjórn- arflokknum eru andvíg tillögu Kallsbergs og Hoy- dal lagði fram tillögu á þingi þess efnis, að staðið yrði við fyrri samþykktir.  ÍSRAELSKI Verka- mannaflokkurinn ákvað í vikunni að taka þátt í myndun nýrrar stjórnar undir forystu Ariels Shar- ons, leiðtoga Likudflokks- ins, og verður Shimon Pe- res utanríkisráðherra. Er hann nú ókrýndur leið- togi Verkamannaflokks- ins eftir að Ehud Barak, fráfarandi forsætisráð- herra, ákvað að hætta af- skiptum af stjórnmálum.  TALIBANAR í Afgan- istan hafa hafist handa við að brjóta allar styttur í landinu, þar á meðal um 2.000 ára gamlar styttur af Búdda. Hafa ríkis- stjórnir um allan heim og alþjóðlegar stofnanir mót- mælt þessari villimennsku harðlega en það hefur ekki hrinið á Talibönum sem segja stytturnar ýta undir hjáguðadýrkun. ERLENT könnuninni, framleiðir 12 vött af orku og er á stærð við gosdós og vegur um hálft kíló. Samkvæmt upplýsingum frá Skeljungi mun þetta vera í fyrsta skipti sem gerð er tilraun til að mark- aðssetja efnarafala knúna vetni til al- menningsnota. Unnt er að framleiða efnarafalana í ýmsum stærðum og gerðum til notk- unar við ýmsar aðstæður þar sem þörf er fyrir orku. Samningurinn kveður á um að Skeljungur verði um- boðs- og dreifingaraðili á efnaraföl- unum á þeim mörkuðum sem kunna að finnast. DCH-fyrirtækið hefur ennfremur gert samning við Íslenska nýorku, samtök nokkurra alþjóðlegra og ís- lenskra fyrirtækja, um að sjá notend- um DCH-efnarafala fyrir vetni í að- stöðu sem Íslensk nýorka mun koma upp í Reykjavík. Til stendur að selja vetnið á lægra verði en almennt er gert hjá seljendum vetnis í viðskipt- um og iðnaði. Báðir samningarnir tengjast áformum Íslenskrar nýorku um að stuðla að almennri notkun vetnis á Íslandi og eru í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. DCH-efnarafallinn var kynntur í húsakynnum Skeljungs á Suður- landsbraut 4 í gær og á meðal gesta var Barbara J. Griffith, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, sem og for- ráðamenn DCH Technology og sér- fræðingar frá Norsk Hydro. BANDARÍSKA fyrirtækið DCH Technology hefur samið við Skeljung um að Skeljungur annist, á næstu sex mánuðum, könnun á markaði fyrir DCH-efnarafala á Íslandi. DCH- efnarafalinn, sem notaður verður í Efnarafall fyrir al- menning á markað JÓNÍNA Bjartmarz, annar þing- maður Framsóknarflokksins í Reykjavík, hefur tekið ákvörðun um að bjóða sig fram til varaformennsku í Framsóknarflokknum, þegar flokksþingið fer fram í Reykjavík 16. til 17. mars næstkomandi. Tilkynnti hún þessa ákvörðun sína í gær. Er hún þriðji frambjóðandinn um vara- formannsembættið, en áður hafa Ólafur Örn Haraldsson, fyrsti þing- maður flokksins í Reykjavík, og Guðni Ágústsson landbúnaðarráð- herra, gefið kost á sér. Jónína, sem er lögfræðingur að mennt, hefur setið á Alþingi sem að- almaður frá ársbyrjun í fyrra og var áður varaþingmaður. Meðal annarra starfa má nefna að hún hefur um árabil verið formaður landssamtak- anna Heimili og skóli og veitt félagi kvenna í atvinnurekstri formennsku. Í viðtali við Morgunblaðið segist Jónína hafa verið að velta framboði fyrir sér undanfarnar vikur. „Ég hef áhuga, vilja og metnað til að koma sterkar að pólitískri stefnu- mótun Framsóknarflokksins og fyrir hvatningu og óvæntan stuðning, meiri en ég átti von á víða að, hef ég ákveðið að gefa kost á mér í varafor- mannskjörinu. Mér hefur verið bent á að ég væri ekki að axla ábyrgð í pólitík ef ég skoraðist undan. Ég býð mig ótrauð fram til þessa embættis og tek því sem að höndum ber. Ég geri mér ekki vonir um annað en drengilega baráttu á milli þeirra sem í kjöri eru,“ segir Jónína. Hún segir ekkert nema gott að segja um framboð Ólafs Arnar Har- aldssonar. „Reykjavíkurkjördæmi rúmar vel tvo frambjóðendur, auk þess sem kjördæmin verða tvö í næstu kosn- ingum. Við þekkjum einnig dæmi úr Sjálfstæðisflokknum þar sem bæði formaður og varaformaður koma úr Reykjavík. Mér finnst ekki óeðlilegt að frá stærsta kjördæmi landsins komi tveir frambjóðendur í þetta embætti,“ segir Jónína. Engir eiga rétt til framboðs umfram aðra – Hvað segirðu um þau ummæli Ólafs Arnar að hann telji óeðlilegt að 2. þingmaður flokksins í Reykjavík bjóði sig fram á móti 1. þingmanni? „Með því að gefa kost á mér vil ég auka val framsóknarmanna. Ólafur hefur gert grein fyrir þessari skoðun sinni en ég held að menn séu al- mennt ekki sammála honum. Ekki er við neinar reglur að styðjast í þeim efnum og engir sem eiga einhvern rétt umfram aðra til að bjóða sig fram. Allir flokksmenn geta gefið kost á sér til varaformannsins. Ólaf- ur fer fram á sínum forsendum og ég á mínum og engin tengsl eru þar á milli, annað en sú staðreynd að við erum eins og er í sama kjördæminu.“ Aðspurð um áherslur með sínu framboði segist Jónína vera að gefa kost á sér til varaformanns fyrir framsóknarmenn á landinu öllu. Því sé ekki að neita að til þessa hafi fremur verið litið til Framsóknar- flokksins sem landsbyggðarflokks. „Ég hef mikinn metnað fyrir hönd flokksins og vil sjá að áherslur hans og stefnumál nái betur eyrum kjós- enda í Reykjavík. Flokkurinn stend- ur fyrir sterkum og sígildum gildum og áherslum, sem enginn er að tala um að breyta enda eiga þær erindi jafnt til allra landsmanna. Sameig- inlegir hagsmunir allra landsmanna eru miklu ríkari og fleiri en sérhags- munir dreifbýlis og þéttbýlis,“ segir Jónína. Getum stórbætt okkar fylgi Hún segist ekki leggja fram neina sérstaka stefnuskrá, hennar stefna sé stefna Framsóknarflokksins sem mótuð sé á flokksþingi, en hver þing- maður hafi sínar áherslur. Hún vill beita sér fyrir fjölskyldumálum í stærra samhengi, landbúnaðar- og umhverfismál séu þar meðtalin. „Skóla- og menntamál, heilbrigð- is- og félagsmál og önnur sem snerta aðbúnað og aðstæður fjölskyldna eru mér hugleiknari en önnur. Þetta eru málefni sem varða fólk um allt land og eru ekki bundin við Reykjavík eða eitt einstakt kjördæmi,“ segir Jónína ennfremur. Framsóknarflokkurinn hefur átt undir högg að sækja í skoðanakönn- unum frá síðustu þingkosningum og þegar Jónína er spurð að því hvernig auka megi fylgið segir hún flokkinn hafa mörg sóknartækifæri. „Við ættum að geta stórbætt okk- ar fylgi. Menn leita að ýmsum skýr- ingum á því að fylgið hafi ekki verið meira. Sumir kenna þar um sam- starfinu við Sjálfstæðisflokkinn og aðrir telja að flokkurinn hafi ekki staðið nógu vel að sínum kynning- armálum. Vel má vera að eitthvað sé til í hvoru tveggja og ég tel fulla ástæðu til að skoða vel hvernig koma megi áherslum okkar betur á fram- færi. Baráttumál Framsóknar- flokksins eiga að geta náð til kjós- enda um allt land og ég vil gera flokkinn að raunhæfari valkosti fyrir stærri hóp kjósenda en hann hefur verið hingað til,“ segir Jónína. Reykjavík rúmar tvo frambjóðendur Morgunblaðið/RAX Jónína Bjartmarz Jónína Bjartmarz gefur kost á sér til varaformennsku í Framsóknarflokknum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.